Morgunblaðið - 15.12.2016, Qupperneq 77
ingum en Jens Garðar fór í sitt fyrsta
prófkjör er hann var 22 ára, í Austur-
landskjördæmi gamla.
Jens Garðar hefur setið í ýmsum
stjórnum og nefndum á vegum sveit-
arfélagsins, starfað í Hollvina-
samtökum Fjórungssjúkrahússins í
Neskaupstað og sinnt ýmsum öðrum
félagsstörfum í sínum heimabæ, s.s.
setið í Sjómannadagsráði, stjórn Sjó-
minjasafns Austurlands, sóknarnefnd
og karlakórnum. Þá situr hann í
stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands
og Háskólaráði Háskólans á Akur-
eyri.
Jens Garðar er Austfirðingur í húð
og hár: „Austurland er draumastaður
í alla staði og ekki síst þegar kemur
að stang- og skotveiði sem eru mitt
helsta áhugamál. Þær eru ófáar
stundirnar sem ég hef verið svo hepp-
inn að fá að eiga með fjölskyldu og
vinum við árbakkann í fallegu veðri í
mögnuðu umhverfi. Thor sonur minn,
13 ára, er kominn með veiðidellu á
hæsta stigi og við förum a.m.k. einu
sinni á ári í veiði saman. Hann hefur
meira að segja hannað flugu handa
pabba sínum sem heitir Jens Garðar.
Ég vil sérstaklega geta þess að
varðveisla sögunnar og viðgerð gam-
alla húsa er mér afar hugleikin. Ég
gerði upp gamalt hús, Dahlshús, frá
1880, fyrir þremur árum. Þá vakti
fyrir mér að bjarga húsinu og leggja
mitt af mörkum til að bjarga menn-
ingarverðmætum. En síðan hefur
húsið verið vettvangur fyrir lista- og
handverkssýningar, fundarstaður
fyrir m.a. íbúasamtökin, jóga-
námskeið, upptökustúdíó og nú síðast
fá hljómsveitir krakkanna hér í bæ að
vera með aðstöðu í húsinu. Það er
gefandi að geta lagt sitt af mörkum til
samfélagsins sem maður býr í.“
Fjölskylda
Sambýliskona Jens Garðars er
Kristín Lilja Eyglóardóttir, f. 21.9.
1978, heilaskurðlæknir á Sahlgrenska
í Gautaborg. Móðir hennar er Eygló
Lind Egilsdóttir, meðhjálpari í Borg-
arnesi, og Sigurður Friðrik Sigurðs-
son, var starfsmaður Volvo í Svíþjóð
en er nú látinn.
Fyrri kona Jens Garðars er Erna
Þorsteinsdóttir, f. 25.7. 1977, starfs-
mannastjóri Eskju hf.
Börn Jens Garðars og Ernu eru
Hekla Björk Jensdóttir, f. 2.2. 1998,
námsmaður í Reykjavík; Thor Jens-
son, f. 18.11. 2003, og Vöggur Jens-
son, f. 21.9. 2005.
Albróðir Jens Garðars er Sturla
Már Helgason, f. 4.12. 1983, starfs-
maður Sensa í Reykjavík.
Hálfsystur Jens Garðars, sam-
mæðra, eru Ingibjörg Gunnarsdóttir,
f. 20.11. 1961, húsfreyja í Hafnarfirði;
Sveinbjörg Gunnarsdóttir, f. 24.10.
1962, starfsmaður Morgunblaðsins,
búsett í Hafnarfirði, og Guðbjörg
Gunnarsdóttir, f. 4.1. 1966, starfs-
maður MS, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Jens Garðars: Helgi
Garðarsson, f. 10.11 1938, d. 20.1.
2011, rafvirkjameistari á Eskifirði, og
Jóna Herdís Hallbjörnsdóttir, f. 24.2.
1944, lengst af starfsmaður dvalar-
heimilisins Hulduhlíðar á Eskifirði.
Úr frændgarði Jens Garðars Helgasonar
Jens Garðar
Helgason
Ingibjörg G. Stefánsdóttir
húsfreyja á Eskifirði
Einar Baldvinsson
kennari og sjóm. á Eskifirði
Ingigerður G.B. Einarsdóttir
húsfreyja í Rvík
Hallbjörn Bergmann Elímundarson
húsasmíðameistari í Kópavogi
(fósturf.: Sturla Hólm Kristófersson
verkamaður í Rvík)
Jóna Herdís Hallbjörndóttir
lengi starfsmaður við
dvalarheimilið Hulduhlíð
Sigurlaug Cyrusdóttir
húsfr. á Hellissandi, bróður-
dóttir Ögmundar, föður Karvels
oddvita og útg.m. í Njarðvík
Elímundur Ögmundsson
sjómaður á Hellissandi
Sæmundur Elímundarson
sjúkraliði og kaupm. í Rvík
Ólafur Elímundarson
sagnfræðingur
Guðrún Ástríður Elímundardóttir
húsfreyja í Rvík
Sigurður E. Guðmundsson
fyrrv. forstj. Húsnæðis-
stofnunar ríkisins
Anna Elísabet Elímundardóttir
húsfreyja
Erlendur Haraldsson
prófessor emeritus í sálfr. við HÍ
Guðmundur Kr. Sæmundsson
kennari og rithöfundur
Viðar Sæmundsson
prófessor í bókmenntafr. við HÍ
Augusta Meyer Andersen
húsfreyja á Eskifirði
Karl Jónasson
útgerðarm. á Eskifirði
Jensína María Karlsdóttir
húsfreyja á Eskifirði
Jón Garðar Helgason
bifreiðastj. og öku-
kennari á Eskifirði
Helgi Garðarsson
rafvirkjam. á Eskifirði
Jónína Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Eskifirði
Helgi Jónsson
sjómaður á Eskifirði
Í Oddsskarði Jens Garðar og Kristín.
ÍSLENDINGAR 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
Þórunn Gísladóttir, ljósmóðirog grasalæknir, fæddist íYtri-Ásum í Skaftártungu
15.12. 1846, dóttir Gísla Jónssonar,
bónda í Ytri-Ásum, og Þórunnar
Sigurðardóttur ljósmóður.
Þórunn var af mikilli og frægri
ljósmæðra- og grasalæknaætt.
Amma Þórunnar Gísladóttur og
móðir Þórunnar Sigurðardóttur,
Þórunn Þorsteinsdóttir, var einnig
ljósmóðir sem og yngri systir henn-
ar. Systir Þórunnar Gísladóttur var
Kristín ljósmóðir en sonur Þór-
unnar var Erlingur Filippusson
grasalæknir, faðir Ástu grasalækn-
is. Sonur Erlings var Gissur, þýð-
andi og fyrrv. umdæmisstjóri Pósts
og síma sem varð 104 ára, afi Didda
fiðlu, föður Ólafs Kjartans óp-
erusöngvara en hans sonur er
Fjölnir söngvari. Föðurbróðir Þór-
unnar Gísladóttur var Eiríkur,
langafi Runólfs og Páls sand-
græðslustjóra en sonur Páls er
Sveinn landgræðslustjóri. Annar
föðurbróðir Þórunnar var Jón,
langafi Ragnars í Smára.
Þórunn lærði ljósmóðurfræði og
tók próf hjá Þorgrími Johnsen,
lækni í Odda, 1870. Hún var ljós-
móðir í stóru umdæmi, í Fljótshverfi
og Austur-Síðu sem var afar erfitt
yfirferðar, yfir mikil og ströng vötn
að fara. Síðar var hún ljósmóðir í
Borgarfjarðarumdæmi eystra.
Þórunn sótti um leyfi til amt-
manns að fá að nota fæðingartangir
þegar þess væri þörf. Var umsóknin
borin undir landlækni sem lagðist
gegn henni á þeim forsendum að
slíkar tangir tíðkuðust hvergi hjá
ljósmæðrum í danska ríkinu.
Þórunn lærði grasalækningar af
móður sinni, var þekktasti grasa-
læknir hér á landi og gjarnan nefnd
Grasa-Þórunn. Vegna færni hennar
spunnust um hana þjóðsögur sem
m.a. má lesa í þjóðsagnasafni Sig-
fúsar Sigfússonar.
Þórunni sundreið ströng vatnsföll
þegar aðrir töldu ófært og var um
skeið á vetrarvertíð á Suðurnesjum,
m.a. bátsformaður þar.
Þórunn lést 19.7. 1937.
Merkir Íslendingar
Þórunn
Gísladóttir
100 ára
Aðalbjörg Jónsdóttir
90 ára
Bjarni Jónsson
85 ára
Janus Bragi Sigurbjörnsson
Sigurður Sigfússon
80 ára
Þorsteinn Ingi Kragh
75 ára
Jón Haraldsson
Sigurbjörg Jóhanna
Ólafsdóttir
70 ára
Guðríður Þorsteinsdóttir
Indiana B. Gunnarsdóttir
Karólína Sveinsdóttir
Marta Gunnlaug
Ragnarsdóttir
Sigurjón Guðjónsson
Þórdís Njálsdóttir
60 ára
Ásta Jóhannsdóttir
Guðný Klara Sigurðardóttir
Guðrún Ágústsdóttir
Jón Kristinn Guðmundsson
Óskar Jóhannsson
Sigríður Kr. Kristjánsdóttir
Sigurbjörg A.
Guttormsdóttir
Sigurlaug Guðfinna
Gunnarsdóttir
50 ára
Brynja Dýrleif Svavarsdóttir
Elísabet Herdís
Guðjónsdóttir
Hulda Garðarsdóttir
Jóhanna Anna
Jóhannesdóttir
Kristín Gunnarsdóttir
Laufey Úlfarsdóttir
Ragnar Hólm Gíslason
Sigríður Kjartansdóttir
Sigríður K.
Sigurbjörnsdóttir
Tomasz Mazur
Til hamingju með daginn
30 ára Harpa Dröfn ólst
upp í Borgarnesi, býr í
Mosfefllsbæ, lauk sveins-
prófi í framreiðslu frá MK
og sér um veislur og við-
burði hjá Hilton Nordica í
Reykjavík.
Bræður: Pálmi, f. 1978;
Elís, f. 1981, og Þorvaldur,
f. 1990.
Foreldrar: Blængur Al-
freðsson, f. 1958, og Þór-
dís Þorvaldsdóttir, f.
1962. Þau búa í Borg-
arnesi.
Harpa Dröfn
Blængsdóttir
30 ára Bjarni ólst upp í
Reykjavík, býr í Hafnar-
firði og stundar nám og
vinnur sem vélvirki.
Maki: Íris Stella Sverris-
dóttir, f. 1986, nemi í sál-
fræði við HA.
Dætur: Ísalind Emma, f.
2012, og Dagbjört Erika, f.
2015.
Foreldrar: Vilhjálmur Páll
Bjarnason, f. 1962, renni-
smiður, og Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, f. 1967, hús-
freyja.
Bjarni Björgvin
Vilhjálmsson
30 ára Axel ólst upp í
Hafnarfirði, lauk sveins-
prófi í rafvirkjun og er raf-
virkjameistari á Reykjum
á Skeiðum.
Maki: Ásta Björg Nat-
hanaelsdóttir, f. 1989,
húsfreyja.
Börn: Kristín Ágústa, f.
2011; Hjörvar Ingi, f. 2014,
og óskírður, f. 2016.
Foreldrar: Þórdís Eiríks-
dóttir, f. 1956, hjúkrunar-
fræðingur, og Stefán F.
Arndal, f. 1958, rafvirki.
Axel S.
Arndal
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
40 ára
Anna María Þórhallsdóttir
Brimar Bragi Magnússon
Daniel Marcin Kryc
Einar Gunnar Karlsson
Gustav Þór Eiríksson
Jens Garðar Helgason
Jóhann Vignir Gunnarsson
Kjartan Sigurjónsson
Sara Dögg Gylfadóttir
Þorvaldur Harry
Þorvaldsson
30 ára
Andri Már Sigurðsson
Axel S. Arndal
Bjarni Björgvin
Vilhjálmsson
Harpa Dröfn Blængsdóttir
Jaroslaw Puchalski
Júlíus Kristjánsson
...með nútíma
svalalokunum
og sólstofum
Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is
Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16
• Svalalokanir
• Glerveggir
• Gler
• Felliveggir
• Garðskálar
• Handrið
Við færumþér logn & blíðu