Morgunblaðið - 15.12.2016, Síða 79

Morgunblaðið - 15.12.2016, Síða 79
DÆGRADVÖL 79 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Vantreystu ekki sjálfum þér því þú ert fullfær um að takast á við hlutina og hef- ur næga þekkingu. Fáðu fólk til að taka höndum saman í sameiginlegu máli. 20. apríl - 20. maí  Naut Fæstar tilfinninganna sem ástvinir þín- ir tjá þér eru í orðum. Farðu á kaffihús, kauptu þér bók eða tímarit eða jafnvel tón- list sem er frábrugðin því sem þú ert vön/ vanur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það tekur sinn tíma að vinda ofan af hlutunum og láta koma í ljós að það sem þér er kennt um er annarra verk. Afstaða þín mun koma fjölskyldu og vinum á óvart. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Einhver kemur þér skemmtilega á óvart í dag. Ef ástvinir eru hjá þér er allt í þessu fína. Það er eitt af undirstöðuatriðum þess að þér verði eitthvað úr verki. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú munt njóta þess að fara í stutta ferð í dag. Innra með þér búa sex ára, þriggja ára og 72 ára persónur sem berjast um það í dag, hvað það merkir að haga sér í samræmi við aldur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur hvatt sjálfan þig til að sleppa takinu, láta alheiminn styðja þig og elska lífið þitt, og það virkar. Vertu ánægður að búa að þínu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú býrð yfir þeim gáfum og þeirri orku sem þarf til þess að skipuleggja tómstundir fyrir þig og aðra. Nýttu tækifærið og reyndu að koma sem mestu í verk. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Veittu fjölskyldu þinni og heimili sérstaka athygli í dag. Aðalatriðið er að segja ekkert vanhugsað sem þú gætir séð eftir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú finnur hjá þér hvöt til þess að tala opinberlega fyrir hönd annarra. Verð- launin slá margfalt út smá höfuðverk. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er oft lærdómsríkt að vera baksviðs og fylgjast með því sem gerist á bak við tjöldin. Gættu þess þó að vita út í hörgul hvað þú vilt því annars nærðu engum árangri. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Skelltu ekki skollaeyrum við að- vörunum annarra þótt þér finnist þú sigla lygnan sjó. Sökum þess kannt þú vel að meta hvers konar list. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur lent í erfiðri aðstöðu og átt ekki gott með að losa þig úr henni. Minn- ingar úr æsku þinni munu hugsanlega koma upp í hugann. Vegna samhengisins þykir mérrétt að rifja upp þessa limru Sigurlínar Hermannsdóttur sem hún kallar Lönguvitleysu á Boðnarmiði: Það síðast ég heyrði af Herði að hann væri að reyna við Gerði sem er kærasta Kalla sem kyssti hún Malla þótt Malla sé hrifin af Merði. Hólmfríður Bjartmarsdóttir hélt þræðinum: Leitt var að heyra um Láru og laglegu strákana kláru sem buðu henni heim í bjórglas með þeim en samt vildi ‘ún sofa hjá Báru. Sigurlín sló svo botninn í söguna: Á bárunni létt er hún Bára – sem brátt verður sjötíu ára – með Unni og Öldu af ölinu köldu kúta sjö náðu að klára. Ingólfur Ómar orti á Leir: Aldrei heyrist eymdargól þó ekki sé ég fjáður. Buddan tóm og bráðum jól en brosi jafnt sem áður. Sem olli „stöðuuppfærsla klerks“, – sr. Skírnis Garðarssonar: Hugsi mjög er hempu-þór, hátíðar- um -annirnar. Auð er jörð og enginn snjór, umhleypingatíðarfar. Þetta er frá sjónarhóli mínum – p.s. Veðrið er lykilatriði nefnilega. Blöndal þetta birta má, – brátt mun lengjast dagur – Meinvill þjóð í myrkri lá, mun þó vænkast hagur. Við erum á réttri leið…: Rösk mun þjóðin rétta úr kút, og ráðdeild bæta. Brátt mun S sér bregða út, og byrja að mæta. Og bætti við, „Verkkvíða þekkja allir“. Vissulega eru viðsjár á þingi – Ár- mann Þorgrímsson talar um „Sturl- ungaöld…“ sem kannski er full djúpt í árinni tekið: Minnast ætti þrasgjörn þjóð þess sem friður okkur gefur gengum áður grýtta slóð gleymt þeim tíma margur hefur. Á aðventunni hafa menn gott af brjóstbirtunni. Pétur Stefánsson yrkir: Ekki er ég í anda sljór, ekkert hef að fela. Keypti ég mér kippu af bjór kók og vodkapela. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Þrjár limrur og stöðuuppfærsla klerks Í klípu „EINS OG MÓÐIR MÍN SAGÐI ALLTAF, EF ÞÚ HÖNDLAR EKKI HITANN, YFIRGEFÐU SKRIFSTOFUNA MÍNA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „VIÐ ERUM PÍANÓFLUTNINGAMENN!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að þurfa stundum að gleyma og halda áfram með líf sitt. MEGRUNAR- FÆÐI MEGRUNARFÆÐIS- GRETTA SJÁÐU, HELGA! SNATI ER ALGJÖR KJÖLTU- RAKKI! ÞÚ MEINAR ALGJÖR BUMBU-RAKKI? Víkverji er nýkominn úr fæðingar-orlofi fyrir frumburðinn sinn, Víkverja yngri. Víkverji eldri er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að eyða tíma með syninum og kynnast honum betur. Má nánast líta á það sem forréttindi að búa í landi sem geri mönnum það kleift, jafnvel þó að ýmislegt hér og þar mætti laga í útfærslunni. x x x Faðir Víkverja, Víkverji elsti, áttiþess til dæmis ekki kost að taka sér feðraorlof með sínum börnum. Víkverjabræðurnir voru vart komn- ir í heiminn en hann var mættur í vinnuna. Í aðdraganda kosningabar- áttunnar bar svo við að einn smá- flokkurinn lofaði öllum fyrirfram- greiddum vaxtabótum af húsnæði sínu. Víkverja elsta þótti það nú heldur lítilfjörlegt og vildi frekar að hann sjálfur fengi „eftirágreitt fæð- ingarorlof“. Munu nokkrir hafa tek- ið undir þá ósk hans á „fésinu“. x x x Víkverji yngri dafnar ágætlega ogfagnar í dag níu mánaða afmæli sínu. Víkverji telur sig samt hafa orðið varan við það síðustu daga að litli prinsinn sé að notfæra sér góð- mennsku hans. Sá stutti á það nefni- lega til að vakna á nóttunni og fást ekki til þess að sofna aftur fyrr en hann er kominn í öruggan faðm á milli foreldra sinna. Það er svo sem notalegt, en Víkverji óttast að sá yngri muni helst ekki vilja yfirgefa hjónarúmið fyrr en hann er kominn á unglingsár. x x x Þú þarft að harka af þér og sýnasmá mannvonsku,“ var ráðið sem samstarfskona Víkverja hafði handa honum. Sú á tvo syni og þurfti að venja þá báða við að sofa í eigin rúmi alla nóttina á svipuðum aldri og Víkverji yngri er á nú. Skildist Víkverja að þeirri aðferð fylgdi þó nokkur grátur í þrjú kvöld og síðan ekki söguna meir. Víkverja fannst þegar hann hlustaði eins og þetta myndi hann aldrei geta, hann væri of veikgeðja. En hvað er þá til ráða? Með þessu áframhaldi verður sá yngri kannski kominn úr hjóna- herberginu um þrítugt. Kannski. vikverji@mbl.is Víkverji Augu Guðs hvíla á vegferð mannsins, hann horfir á hvert hans spor. (Job 34:21) Útsölustaðir: • Momo.is – Garðabæ • Cocos – Grafarvogi • Kroll – Laugavegi • Share – Kringlunni • Fröken Júlía – Mjódd • Stíll – Síðumúli • Rita - Kópavogi • Dion.is – Glæsibæ • Corner - Smáralind • Smartey.is – Vestmannaeyjum • Rexin – Akureyri • Gallery Ozone – Selfossi • Palóma – Grindavík • Sentrum – Egilsstöðum • Blómsturvellir – Hellissandi • Verslunin Nína – Akranesi • Kóda – Keflavík • Töff föt – Húsavík • Mæðgur og Magasín – Stykkishólmi • SiglóSport – Siglufirði • Pex – Neskaupsstað/Reyðarfirði • Efnalaug Dóru – Höfn • Skagfirðingabúð – Sauðárkróki run@run.is • www.run.is 30 ÁRARÚN HEILDVERSLUN Til: elsk u mín Frá: els ku mér Gerðu vel við sjálfa þig um jólin
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.