Fréttatíminn - 13.05.2016, Qupperneq 35
FRÉTTATÍMINN
List án landamæra
um land allt
Ýmsir viðburðir verða á dagskrá
Listar án landamæra um helgina.
Listahátíðin leggur áherslu á fjöl-
breytileika mannlífsins.
Á föstudaginn verður opið hús í
Skógarlundi á Akureyri, miðstöð
virkni og hæfingar. Gestum gefst
tækifæri til að kynna sér starfsem-
ina, skoða listaverk og gera góð
kaup á textíl, leir, gleri og pappír.
Á laugardaginn opnar Gígja
Guðfinna Thoroddsen sýningu á
Safnasafninu á Svalbarðsströnd
klukkan 14. Þar sýnir hún 31 verk,
bæði málverk og teikningar. Verk
hennar hafa sterka skírskotun í
samtímann, listasöguna og sam-
félagið, sem listamaður er hún í
stöðugri þróun hvað varðar nálgun,
myndefni og efnisval.
Samsýningin Þríhöfði opnar í
Slátur húsinu á Egilsstöðum á
laugardaginn klukkan 14. Sýn-
ingin er samstarf austfirsku lista-
mannanna Arons Kale, Daníels
Björnssonar og Odee. Sýningin
fjallar ekki einungis um verkin sjálf
heldur ferðalagið frá upphafi til
enda verkefnisins, þar sem ýmsar
skissur og ljósmyndir frá samstarf-
inu fylgja.
Hvala safnið á Húsavík, Fjúk Art
Centre og leikskólinn Grænuvellir
opna sýningu um hvali í samstarfi
við Miðjuna hæfingu, dagþjón-
ustu og geðræktarmiðstöð. Um 50
einstaklingar hafa unnið að stórum
hvalaskúlptúr, 6,5 metra löngum,
sem verður fyrir utan Hvalasafnið í
sumar. Auk þess verður sýning inn-
andyra þar sem heill veggur verður
undirlagður af alls konar verkum
eftir hópinn.
Verk eftir nem-
anda á starfsbraut Fjöl-
brautarskólans í Garðabæ
en sýning þeirra er í Hinu
Húsinu í Pósthússtræti
4 400 400
Hafðu samband og láttu sérfræðinga okkar
aðstoða þig við að finna réttu lausnina.
Þú færð landslagsráðgjöf
og garðlausnir hjá okkur
Graníthellur
Steypustöðin býður upp á mikið úrval af
fallegum hellum og mynstursteypu fyrir
heimili, garða, göngustíga og bílaplön.
20
YFIR
TEGUNDIR AF HELLUM
Skoðaðu úrvalið á
www.steypustodin.is
Hringhellu 2
221 Hafnarfjörður
Hrísmýri 8
800 Selfoss
Malarhöfða 10
110 Reykjavík
Berghólabraut 9
230 Reykjanesbær
Smiðjuvegi
870 Vík
Sími 4 400 400
www.steypustodin.is
unak.is
Hlökkum til að sjá þig
Í HÁSKÓLABÆNUM AKUREYRI
ÍS
LE
N
SK
A
/ S
ÍA
0
5.
16
H
AK
7
97
58
HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ
Hjúkrunarfræði
Iðjuþjálfunarfræði
VIÐSKIPTA- OG RAUNVÍSINDASVIÐ
Líftækni
Sjávarútvegsfræði
Viðskiptafræði
Tölvunarfræði Diplóma - í samstarfi við HR
HUG- OG FÉLAGSVÍSINDASVIÐ
Félagsvísindi
Fjölmiðlafræði
Kennarafræði (leikskóla-, grunnskóla- og íþróttakjörsvið)
Lögfræði
Nútímafræði
Sálfræði
Allt nám við HA er einnig kennt í fjarnámi.
Umsóknarfrestur er til 5. júní.