Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 08.10.2016, Side 14

Fréttatíminn - 08.10.2016, Side 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 8. október 2016 Frumvarp ríkisstjórnarinn­ar, sem átti að jafna lífeyr­isréttindi starfsmanna hins opinbera og starfsfólks á al­ mennum vinnumarkaði, var einn af ásunum í ermi fjármálaráðherra fyrir þessar kosningar. Forystumenn opinberra starfs­ manna hlupu léttfætir á fund ráð­ herra, baðaðir geislum myndavéla, til að afsala sér glaðlega lífeyris­ réttindum umbjóðenda sinna í framtíðinni. Sínum eigin réttindum og jafnaldra sinna gátu þeir ekki af­ salað sér, þau eru varin af eignar­ réttarákvæði stjórnarskrárinnar. Núna er málið í algeru uppnámi og það verður ólíklega að lögum á þessu þingi. Ástæðan er sú að for­ ystumenn launþega virðast hafa áttað sig á því að þeir höfðu samið af sér. Það er betra að flýta sér hægt. Bank­ arnir eru nærtækasta dæmið. Til að hægt væri að einkavæða bankana var nauðsynlegt að sann­ færa starfsmenn þeirra um að breyta eftirlaunasjóði starfsmanna Landsbankans og Seðlabankans og afnema ríkisábyrgð á lífeyris­ greiðslum. Þetta var gert þegar bönkunum var breytt í hlutafélög 1998, ríkið reiddi fram eingreiðslu sem átti að duga fyrir viðbótarútgjöldum vegna þeirra sjóðfélaga sem höfðu þegar áunnið sér réttindi. Á sama tíma voru samþykkt lög frá Alþingi sem banna stjórninni að hrófla við líf­ eyrissgreiðslum sjóðfélaga. Ljóst var að það gekk ekki upp. Á árunum fyrir fall bankanna ríkti mikil léttúð í starfsmannamál­ um, yfirmenn og millistjórnendur fengu ríflegar launahækkanir rétt fyrir starfslok sem hækkuðu lífeyr­ isgreiðslur langt um fram áætlan­ ir, en lífeyrisgreiðslur miðuðust við laun síðustu fimm ár fyrir hrun. Þá var öðru starfsfólki gjarnan vísað á eftirlaun, löngu áður en 67 ára aldri var náð. Fyrir hrun var sjóðurinn því að niðurlotum kominn og sjóðfélagar biðluðu til ríkisins um að taka aft­ ur við ábyrgðinni áður en stefndi í frekara óefni og véfengdu forsend­ urnar sem lágu til grundvallar ein­ greiðslu ríkisins á sínum tíma. Nú er þolinmæði sjóðfélaga á þrotum og það er í gangi málarekstur fyrir héraðsdómi vegna þessa. Lífeyrissjóður bankamanna, eins og hann heitir í dag, skiptist í tvær einingar, hlutfallsdeild, með þá inn­ anborðs sem eiga að njóta réttinda eins og fyrir einkavæðinguna og eftirlaunasjóð hinna sem njóta réttinda eftir að ríkisábyrgðin var afnumin. Þar eru auðvitað himinn og haf á milli. Þeir sem njóta gömlu réttindanna hafa mikið fram yfir hina. Þeir eiga rétt á því að hætta störfum mun fyrr, ef starfsaldur leyfir, makalíf­ eyrir er ríflegri og greiddur til ævi­ loka og fleira og fleira. Þó hefur far­ ið svo að lífeyrisgreiðslur þeirra sem eru í hlutfallsdeildinni hafa verið skertar um nær 10 prósent. Það er ástæða málaferlanna núna. Ba n k ast jóra r n i r og f ra m­ kvæmdastjórarnir þurfa ekki að reiða sig á lífeyrissjóð bankamanna frekar en þeir vilja, því þeir semja sjálfir um ríflegar starfslokagreiðsl­ ur. Það þurfa hinsvegar háttsettir millistjórnendur að gera og allt nið­ ur í gjaldkera á gólfinu. Gjaldkeri sem hafði 314 þúsund krónur í laun árið 2014, eftir 32 ára starf, fær rúmar 200 þúsund í eftirlaun í stað 222 þúsunda vegna skerðingarinnar,. Þegar lífeyrisréttindum ríkisstarfs­ manna var breytt var greint á milli A hluta og B hluta lífeyrissjóðs­ ins, en þeir nutu þó báðir ríkis­ tryggingar. Manneskja með 314 þúsund krónur í laun fengi 245 þúsund krónur í líf­ eyri á mánuði í B­hluta Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Það munar 45 þúsund krónum. Munurinn liggur aðallega í ríkisá­ byrgðinni. Það er mikill ávinningur fyrir ríkið að opna vinnumarkaðinn og losna við lífeyrisskuldbindingar sem eru að ríða ríkinu á slig. Það er ekki sátt um það að helmingur landsmanna beri ábyrgð á miklu hærri lífeyris­ skuldbindingum fyrir ríkisstarfs­ menn en hann á sjálfur völ á. En kannski er rétt að taka sér aðeins lengri tíma í að vinna málið áður en lengra er haldið. Því loforð eru létt í vasa. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir LOFORÐ ERU LÉTT Í VASA Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir. Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti. Mogginn kaupir Andabæ Eftir stutt bað var Jóakim alsæll með kvótapeningana úr Vestmannaeyjum VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams Sýningareintak á staðnum.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.