Fréttatíminn - 03.12.2016, Side 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. desember 2016
ÓMAR GUÐJÓNSSON, GÍTAR:
„ÉG VEIT EKKI AF
HVERJU VIÐ ERUM
ALLTAF AÐ TALA UM
ÞETTA SEM DJASS.“
ÓSKAR GUÐJÓNSSON,
SAXÓFÓNN:
„ÞAÐ ER DÝRT AÐ
KOMAST AF ÞESSARI
EYJU OKKAR JAFNVEL
ÞÓ BANDIÐ SÉ EKKI
STÆRRA EN ÞETTA.“
DAVÍÐ ÞÓR JÓNSSON,
HLJÓMBORÐ:
„TÓNLIST ER
MARKAÐSSETT Í DAG EINS
OG HÚN SÉ ALGJÖRLEGA
TILBÚIN OG ÓBREYTANLEG
EN ER LIFANDI.“
MAGNÚS TRYGGVASON
ELIASSEN, TROMMUR:
„VIÐ HÖFUM SEM BETUR
FER ALLIR GAMAN AF
ÞVÍ AÐ ÞVÍ AÐ HLÆJA.“
því að því að hlæja,“ segir hann.
„Og það er mikið hlegið.“ Ómar
bætir því við að líklega sé ekki gott
að vera rifbeinsbrotinn á túr með
ADHD.
Hljómsveitin hefur komið sér
ágætlega fyrir í djassklúbbasenu
Norður-Evrópu, ekki síst í Þýska-
landi, Sviss og Belgíu. Hún hefur
leikið á 20 til 40 tónleikum árlega
að undanförnu. „Það er dýrt að
komast af þessari eyju okkar jafn-
vel þó bandið sé ekki stærra en
þetta,“ segir Óskar. „En hér viljum
við vera. Konan sem bókar okkur á
tónleika í Þýskalandi segir að hún
gæti fundið tónleikastaði þar fyrir
okkur í hverri einustu viku, ef við
bara værum á svæðinu, en í stað-
inn tökum þetta með áhlaupi þegar
færi gefst.“
Alveg spes blanda
Þegar best tekst til er tónlist ADHD
nánast dáleiðandi. Í þannig seig-
fljótandi lögum er saxófónn Ósk-
ars eins og söngvari á róandi sem
stendur fremst á sviðinu og syngjur
flauelsmjúkur út í salinn. Síðan fer
einhver á stökk, Ómar með gítar-
inn, Davíð Þór við hljómborðið eða
þá að Magnús slær í klárinn. Stund-
um er eins og fjandinn sé laus og
það er þessi teygja sem gerir ADHD
blönduna svo heillandi, auk þess
hve færir tónlistarmennirnir eru.
Nú er Davíð Þór Jónsson, galdra-
maður hljómborðanna, mættur í
spjallið og um að gera að ræða tón-
listina og ADHD-sándið. Ný plata,
með nýjum lögum er upphafið
á nýju tímabili hjá sveitinni, ekki
niðurstaða. „Þetta er viðsnúningur
frá því hvernig menn gerðu þetta
í Nígeríu þegar Afrobeat tónlistin
var upp á sitt besta á áttunda ára-
tugnum,“ upplýsir Davíð Þór. „Þá
var tónlistin unnin alveg í smáat-
riði og svo spiluð opinberlega aft-
ur og aftur þangað til að hún var
tilbúin fyrir upptöku. Við snúum
þessu við. Setjum saman hugmynd-
ir, hljóðritum svo en þróum síðan
lögin á sviði,“ segir Davíð. „Þetta er
algeng spurning í listum, hvenær
er hluturinn til? Í höfðinu á þér, á
plötu eða á sviðinu á tíundu tón-
leikum? Tónlist er markaðssett í
dag eins og hún sé algjörlega tilbú-
in og óbreytanleg en tónlist er lif-
andi og verður til í fólki sem andar
og hlustar.“
„Plöturnar eru eiginlega „blu-
eprint“ af lögunum, drög eða
fyrsta útgáfa,“ segir Óskar. „Ég
fékk eiginlega sjokk um daginn
þegar ég heyrði lag af plötu núm-
er fjögur, sem við erum búnir að
spila margoft síðan og heyrði hvað
það hafði breyst mikið. „Við höf-
um þetta eiginlega þannig að það
mega allir byrja að spila lögin hvar
og hvenær sem er. Þó að þetta séu
lagasmíðar þá skrifum við ekki upp
lista yfir þau fyrir hverja tónleika.
Þetta getur verið spennandi þegar
við erum að byrja á tónleikaferða-
lögum og maður er dálítið ryðgað-
ur, þá veit maður oft ekki hvað ger-
ist og hver byrjar á hverju.“
Vikuritið The Economist, sem
líka er með áhuga á menningu,
fjallaði fyrr á árinu um nýjabrum
í djasstónlist og það hvernig tón-
listarmenn hafa endurskilgreint
og opnað djasstónlist upp á gátt að
undanförnu. En er tónlist ADHD,
þessi sérstaka blanda, endilega
djass? „Ég veit ekki af hverju við
erum alltaf að tala um þetta sem
djass,“ svarar Ómar. „Kannski er
það af því að við notum saxófón
og hann virkar stundum eins og
söngvari sem ber uppi laglínuna.
Allir geta komið með sín áhrif og
þau geta komið úr öllum áttum.
Þetta er opið í báða enda.“
Athyglin og veiðin
ADHD kennir sig við sjúkdóms-
greiningu sem margir skrifa á
reikning áreitisins sem einkenn-
ir líf okkar allra í samtímanum.
Nafnið, segja þeir félagar, er heim-
spekileg og húmorísk pæling um
sjúkdómsgreiningar, hvað þær þýði
og hvað lyfjagjafir og lausnir í þeim
efnum þýði fyrir einstaklingana.
Samt vilja hljómsveitarmeðlimirn-
ir ekkert fara nánar í þessa sálma.
Nafnið kom bara um árið og það
festist vel á sveitinni. „Við eigum
ADHD er hljómsveit sem gerir en æfir minna. Tónlistin verður yfirleitt til í hljóð-
verinu og mótast á tónleikum.