Fréttatíminn - 03.12.2016, Blaðsíða 70
xxx. 10 | helgin. LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2016
Unnið í samstarfi við Heimilistæki
Philips hefur sett á markað nýja kynslóð kaffivéla. Þetta eru alsjálfvirkar kaffivélar sem bjóða
upp á allt það sem hefðbundnar
espressó kaffivélar gera en að auki
þá er hægt að breyta þrýstingi í
vélinni þannig að hún útbýr venju
legt uppáhellt kaffi einnig frá ný
möluðum baunum. Þetta er gert
með nýrri tækni „CoffeeSwitch“.
Að auki eru vélarnar útbún
ar hljóðlátum keramik malara,
styrkstilli svo hægt er að velja hve
sterkt kaffið á að vera. Þær eru
með stórum vatnstanki og stórum
tanki fyrir baunir svo sjaldnar þarf
að fylla á vélina.
Philips CoffeeSwitch vélarnar
koma í þremur mismunandi útgáf
um með venjulegum panarello stúti
til að flóa mjólk, með sjálfvirkum
froðunarstúti eða með mjólkur
tanki þannig að hægt er að útbúa
mjólkurdrykki með einum smelli.
Ný kynslóð kaffivéla
Philips CoffeeSwitch vélarnar hella bæði upp á venjulegt kaffi
og útbúa fullkominn espresso.
Ævintýraleg
skíða- og borgarferð
til Rúmeníu
Gott skíðasvæði og margt að skoða.
Unnið í samstarfi við Rúmeníuferðir
Rúmenía er rúmlega helmingi stærra land en Ísland og þar búa um 20 milljónir. Tungumálið er rúmenska
og er það mál sem kemst næst lat
ínu. Höfuðborgin Búkarest, sem og
allt landið, er örugg og fólkið gott,
hjálpsamt og vel er tekið á móti
gestum. Landið er fallegt með mikla
sögu og margt þar að skoða. Verð
lag í Rúmeníu er mjög gott og því
ættu allir að geta gert vel við sig.
Heimsins stærsta höll skoðuð
Hjónin Jón Valur Smárason og Sig
rún Una Kristjánsdóttir hafa verið
búsett í Rúmeníu í 10 ár og reka
ferðaskrifstofuna Rúmeníuferð
ir. Þau hafa ferðast mikið, jafnt að
sumri sem vetri og þekkja afar vel
til í landinu. Í febrúar bjóða þau upp
á skíðaferð til Poiana Brasov. Farar
stjórar í ferðinni verða Jón Valur
og Sigrún ásamt enskumælandi
rúmenskum fararstjóra í rútunum.
„Við skíðuðum fyrst þar sjálf árið
2004. Á skíðasvæðinu eru brekk
ur við allra hæfi, góð aðstaða fyrir
byrjendur og líka brekkur sem fá
hörðustu skíðamenn til að svitna,“
segir Jón Valur. Ferðin er sambland
af skíða og borgarferð og í lok
ferðar verður gist í höfuðborginni
Búkarest á fjögurra stjörnu hóteli í
miðborginni og hún skoðuð. „Einnig
verður stærsta höll í heimi skoðuð,
höllin sem Nicolae Ceausescu
byggði, þar sem eru meðal annars
kristalsljósakrónur sem vega mörg
tonn, allt þar er yfirgengilegt og
ekki í neinum tengslum við samfé
lagið,“ segir Jón.
Kastali Drakúla greifa
Frá skíðasvæðinu verður boðið upp
á fjölbreyttar ferðir. „Þar má fyrst
nefna ferð í Dracula kastalann en
hann er í 20 km fjarlægð. Annar
kastali eða virki frá árinu 1200 er
í nágrenninu og Brasov, 250.000
manna borg, er í 12 km fjarlægð.
Falleg borg á fallegum stað
Gamli bærinn í Brasov er mjög
áhugaverður, þar er mikið mannlíf og
margt að skoða. Þangað er auðvelt
að skreppa, t.d. eftir skíðin, og það
kostar ekki nema rétt um 1000 krón
ur með leigubíl. Í 1012 km fjarlægð
er griðastaður skógarbjarna, það eru
nokkrir slíkir til í heiminum en þetta
er sá stærsti. Þetta er ekki dýragarð
ur og er hann aðeins opinn tvo tíma
á dag. Yngri börn fá ekki að fara þar
inn og sem dæmi þá þarf að slökkva
á símum til að trufla ekki birnina.“
Gisting fyrir alla
„Þessi ferð sem við erum að bjóða
upp á núna gefur fólki möguleika
á að fara í skíðaferð, borgarferð,
skoða gamla kastala og fleira. Njóta
þess að vera á glæsilegu skíðahóteli
þar sem eru öll hugsanleg þægindi,“
segir Jón Valur en tekur þó fram
að hægt sé að fá gistingu í öllum
verðflokkum. „Í ódýrasta pakkanum
hjá okkur er gist í fjallinu, enginn
lúxus en allt snyrtilegt og frábær
staðsetning. Hentar vel fyrir ungt
fólk sem gefur ekki mikið fyrir lúxus
en vill fá góða skíðaaðstöðu. Annar
möguleiki er gott fjögurra stjörnu
hótel, House of Dracula, skemmti
legt hótel á góðu verði. Teleferic er
glæsilegt nýtt fjögurra stjörnu hótel
sem er staðsett við hliðina á brekk
unum. Þetta er lúxus pakkinn þar
sem innifalið er skíðapassi, kvöld
matur, aðgangur að góðu spa með
nokkrum gufum, sundlaug, heitum
útipotti og fleira,“ segir Jón.
Kastali Drakúla greifa Í fjöllum Transylvaniu. Góðar brekkur Öll aðstaða til fyrirmyndar.
Venjuleg Með venjulegum panarello
stúti.
Sjálfvirk Með sjálfvirkum
froðunarstúti.
Einn smellur Með mjólkurtanki,
mjólkurdrykkurinn er til með
einum smelli.
Allar
upplýsingar u
m
verð, ferðatím
a og
fleira má finna
á
rumeniuferdir
.ro og
á facebooksíð
u
Rúmeníuferða
.