Fréttablaðið - 11.03.2017, Page 35
Þegar á að hefjast handa vefst það þó fyrir mörgum að taka fyrstu skrefin og þar getur
Fyrirtækjaþjónusta IKEA einfaldað
lífið, hvort sem verið er að breyta
og bæta eða byrja frá grunni.
Vöruúrvalið er slíkt að í mörgum
tilfellum þarf alls ekki að leita
annað.
Reynsla og þekking einfaldar
viðskiptavinum verkið
Tíminn er dýrmætur og honum
jafnvel betur varið í annað en
að velja húsbúnað, sækja og
skipuleggja. Þetta veit starfsfólk
fyrirtækjaþjónustunnar. „Við
höfum aðstoðað fjölmarga við að
innrétta gistiaðstöðu. Það hafa
þá aðallega verið gistiheimili
og lítil hótel, og þar höfum við
öðlast mikla og góða reynslu,“
segir Guðrún Hlín Þórarinsdóttir,
starfsmaður fyrirtækjaþjónust
unnar. „Eins hafa rekstraraðilar
veitingastaða leitað til okkar og
þar getum við aðstoðað með allt
frá húsgögnum í setustofu, eldhúsi
og borðsal til borðbúnaðar og
skreytinga.“ Guðrún Hlín segir
þarfir viðskiptavina afar mis
munandi, sumir séu að gera upp
fyrri aðstöðu en aðrir séu jafnvel
að opna nýtt fyrirtæki og þá sé í
mörg horn að líta.
Starfsfólk fyrirtækjaþjónustunn
ar veitir ráðgjöf og heldur utan um
ferlið og innkaupin. Sú þjónusta
sparar viðskiptavinum sporin við
að skipuleggja hvað þurfi, finna
vörurnar og koma þeim á áfanga
stað. „Það einfaldar þeim ferlið því
við skráum niður og höldum utan
um viðskipti hvers og eins,“ segir
Guðrún Hlín. „Þannig gleymist
ekki neitt og við höfum það mikla
þekkingu á vöruúrvali og þjónustu
IKEA að við getum komið auga
á þegar eitthvað má betur fara
í skipulagningunni eða vöru
samsetningu. Þetta eru fjölmörg
vörunúmer þegar upp er staðið
og þá er auðvelt að missa sjónar
á ýmsu sem skiptir máli.“ Þannig
fái viðskiptavinir betri yfirsýn yfir
útgjöldin og spari líka tíma, sem
virðist af skornum skammti hjá
flestum. Umfang fyrirtækjaþjón
ustunnar hefur vaxið gríðarlega
undanfarið ár, og starfsfólki hefur
fjölgað úr einum starfsmanni í sex
á örfáum árum. „Það er góðs viti
að þeir sem koma til okkar, leita
yfirleitt til okkar aftur og það er
gaman að fá að fylgjast með við
skiptavinum sem hafa verið hjá
okkur í mörg ár vaxa og dafna á
því tímabili. Þá er ekki laust við að
manni finnist maður eiga svolítið
í þeim,“ segir Guðrún Hlín.
Fjölbreytt flóra fyrirtækja
Fyrirtækjaþjónustan aðstoðar
alls kyns fyrirtæki við innréttingu
húsnæðis en gistiheimili og veit
ingastaðir hafa verið í meirihluta
undanfarin misseri. „Við höfum
komið að því að innrétta og stand
setja gistirými af öllum stærðum
og gerðum. Íbúðahótelum hefur
til dæmis fjölgað mikið og þá er
algengt að við hönnum eldhús
aðstöðu sem uppfyllir öllu helstu
skilyrði sem eldhús þarf að upp
fylla, en rúmast á örfáum fermetr
um,“ segir Guðrún Hlín. „Þarfirnar
eru misjafnar. Við sinnum hverju
fyrirtæki með það í huga og getum
bent fólki á leiðir eða vörur sem
það hefði mögulega ekki komið
auga á sjálft. Það er þetta persónu
lega samband sem skiptir máli til
að við náum að sinna verkefninu
vel og að viðskiptavinurinn sé
ánægður með útkomuna.“
Gott samstarf og frí ráðgjöf
Viðskiptavinum stendur önnur
þjónusta IKEA einnig til boða
eins og samsetning, heimsending
o.fl., gegn gjaldi. Annars er ráðgjöf
Fyrirtækjaþjónustunnar og teikni
þjónusta innréttinga ókeypis. „Við
skiptavinurinn tekur einfaldlega
fyrsta skrefið með því að hafa sam
band við okkur og þaðan hefjum
við samstarf sem byggist á þörfum
viðkomandi.“
Guðrún Hlín Þórarinsdóttir hjá
fyrirtækjaþjónustu IKEA segir per-
sónulegt samband við viðskiptavini
skipta mjög miklu.
Það skiptir máli að innrétta fyrirtæki þannig að það sé aðlaðandi fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini.
IKEA er staður fyrir þá sem reka veitingastað eða vilja innrétta morgunverðarsal á gistiheimili.
Góð eldhúsaðstaða rúmast vel á nokkrum fermetrum ef skipulagið er gott.
Starfsfólk fyrir-
tækjaþjónustu
IKEA þekkir
vöruúrvalið vel
og gefur góð
ráð við val á
húsbúnaði fyrir
gistiheimilið.
Yfirsýn sem
sparar tíma
og fjármuni
Gistirýmum og veitingastöðum hefur fjölgað
undanfarin ár. Í harðnandi samkeppni skiptir
máli að innrétta fyrirtæki þannig að það sé
aðlaðandi, bæði fyrir starfsfólk og viðskiptavini.
KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 1 1 . m a r s 2 0 1 7
1
1
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
C
-F
7
F
0
1
C
6
C
-F
6
B
4
1
C
6
C
-F
5
7
8
1
C
6
C
-F
4
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K