Fréttablaðið - 11.03.2017, Side 36
Allt fyrir hótel er heildsala sem sérhæfir sig í ýmsum vörum fyrir hótel, veit-
ingastaði og sjúkrastofnanir.
Fyrirtækið hefur verið starfrækt
í tæplega ár og er Ellen Dröfn
Björnsdóttir eigandi fyrirtækisins
og eini starfsmaður þess. „Ég býð
upp á alla vöruflokka sem lítil og
stór hótel þurfa á að halda, einnig
gistiheimili, veitingahús og þá
aðila sem leiga út íbúðir. Ég skipti
við trausta erlenda og íslenska
birgja og ef spurt er um vörur sem
ég hef ekki verið með áður þá bæti
ég þeim í vöruúrvalið.“
Meðal þeirra vara sem Allt
fyrir hótel býður upp á fyrir hótel
og gistiheimili er mikið úrval af
sængurfatnaði, lökum, dúkum,
handklæðum og allar gerðir af líni.
„Ég kaupi einungis inn vandað
lín með miklum gæðum sem er
gott að meðhöndla, línið er alltaf
vinsælasta varan mín. Einnig býð
ég upp á gott úrval af ýmsum
baðvörum, t.d. sápum í mörgum
gerðum og áfyllingum. Ég hef
mikið úrval af smávörum fyrir
hótelherbergin, svo sem tann-
burstasett og inniskó.“
Mikið úrval
Einnig hefur Ellen Dröfn séð um
að sauma og setja upp gardínur og
gluggalausnir. Hún býður upp á
hurðamerkingar, raftæki, merktar
herbergislyklakippur, myndir á
veggi og annað í herbergin. „Þann-
ig að úrvalið er svo sannarlega
mikið fyrir hin ýmsu rekstrarform
gistiþjónustunnar.“
Meðal nýjustu verkefna fyrir-
tækisins er að útvega myndir í
herbergi fyrir hótel á Norðurlandi
og finna fallegar hurðamerkingar í
hostel. „Einnig var ég á klára upp-
setningu á gardínum í móttöku
á hóteli sem er verið að taka allt í
gegn.“
Bjartsýn á framhaldið
Auk þess að bjóða gott úrval af
vörum fyrir hótel og gistiheimili
býður fyrirtækið líka upp á úrval
vara fyrir veitingahús. „Þar má m.a.
nefna dúka, servéttur, borðrenn-
inga, áklæði yfir stóla og borð,
tuskur og viskastykki auk fatnaðar
fyrir starfsfólk. Einnig hef ég gott
tengslanet við fyrirtæki sem hafa
lausnir við endurnýjun og endur-
hönnun veitingastaða.“
Með lítilli yfirbyggingu hefur
henni tekist að halda öllum kostn-
aði í lágmarki. „Fyrir vikið get ég
boðið upp á bestu verðin til við-
skiptavina minna. Ég er bjartsýn á
framhaldið og á næstu árum ætla
ég að halda áfram að bjóða upp á
bestu þjónustuna, bestu verðin og
bestu vörurnar.“
Nánari upplýsingar á www.afh.is/
www.alltfyrirhotel.is og Facebook-
síðu fyrirtækisins Allt fyrir hótel.
Vakinn er gæða- og umhverfis-kerfi fyrir íslenska ferða-þjónustu sem hefur það
markmið að efla gæði, öryggi og
umhverfisvitund undir handleiðslu
og um leið að byggja upp sam-
félagslega ábyrgð ferðaþjónustu-
fyrirtækja hér á landi. Um leið er
Vakinn gott verkfæri fyrir þátttak-
endur til að skoða og bæta rekstur
og starfshætti innan fyrirtækisins
og efla um leið gæði og fagmennsku
gagnvart gestum og starfsfólki að
sögn Öldu Þrastardóttur, verkefna-
stjóra hjá Ferðamálastofu. „Gæða-
kerfið var innleitt árið 2012 þannig
að ekki er lengur hægt að tala um
nýtt kerfi heldur miklu frekar
gæðakerfi sem hefur náð að festa
sig í sessi og skilað raunverulegum
árangri.“
Ferðamálastofa stýrir verkefninu
en það er unnið í samvinnu við
Samtök ferðaþjónustunnar og
Nýsköpunarmiðstöð auk þess sem
Ferðamálasamtök Íslands komu
að því áður en þau voru lögð niður
árið 2016.
Hún segir að fyrirtæki í ferða-
þjónustu hafi sjálf kallað eftir
einhvers konar gæðaflokkun fyrir
greinina en slíkar hugmyndir
höfðu verið uppi lengi. „Það var því
mikið fagnaðarefni þegar ákveðið
var af hinu opinbera að farið yrði
í gerð slíks gæðakerfis hér á landi.
Fyrirmyndin að útfærslunni er
hins vegar nýsjálensk en aðlöguð
íslenskum aðstæðum.“
Þátttakendum fjölgar
Vakinn er því ætlaður öllum þeim
sem starfa í ferðaþjónustu á Íslandi.
Honum er skipt í tvo hluta; annars
vegar stjörnuflokkun fyrir gisti-
staði og hins vegar gæðaflokkun
fyrir alla aðra þjónustu segir Alda.
„Umhverfiskerfið er valkvætt. Fyrir-
tæki í afþreyingu þurfa að uppfylla
ákveðið hlutfall almennra gæða-
viðmiða auk sértækra gæðavið-
miða sem tengjast starfssviði hvers
fyrirtækis. Í gistingunni eru síðan
stjörnuflokkar frá einni upp í fimm
stjörnur. Þar segir heildarstigafjöldi
til um það í hvaða stjörnuflokki
viðkomandi gististaður lendir út
frá aðbúnaði og þjónustustigi.“
Hún segir Vakann hafa farið
hægar af stað en vonir stóðu til en í
dag séu þau stolt af því að segja að
þátttakendur séu orðnir 90 talsins
og hátt í 80 fyrirtæki eru í ferli.
„Þegar Vakanum var ýtt úr vör árið
2012 var ekki fyrirséður þessi hraði
vöxtur sem orðið hefur í greininni.
Náttúra, gæði, fagmennska og
samvinna eru gildi íslenskrar ferða-
þjónustu. Við viljum að áfanga-
staðurinn Ísland sé þekktur fyrir
slík gildi og þá er Vakinn gott tæki
til þess. Þátttaka í gæðakerfi getur
skipt sköpum og verið mikil-
vægt hjálpartæki til þess að skapa
samkeppnisforskot og sérstöðu á
markaði, bæði fyrir fyrirtækin sem
taka þátt og áfangastaðinn í heild.
Samtakamátturinn er mikilvægur
þegar kemur að því að ná háleitum
markmiðum og við höfum mikla
trú á mikilvægi Vakans og hlutverki
hans í því að íslensk ferðaþjónusta
megi vaxa rétt og dafna vel í fram-
tíðinni.“
Allar upplýsingar um gæðavið-
miðin og kerfið sjálft er að finna á
heimasíðu Vakans, www.vakinn.is,
auk þess sem það starfsfólk Ferða-
málastofu sem starfar við Vakann,
er ávallt tilbúið að svara öllum
spurningum og veita ráðgjöf.
Gestir skipta öllu máli
Tónlistarmaðurinn góðkunni
Bjarni Ara tók við starfi hótelstjóra
á Fosshóteli Lind í ágúst 2016 en
áður hafði hann starfaði í ráð-
stefnudeild á Grand hóteli Reykja-
vík. Hann segir stjórnendur hót-
elsins hafa mikinn áhuga á að auka
gæði þjónustunnar, vera vakandi
og að tryggja viðskiptavinum
sínum fyrsta flokks þjónustu. „Það
gerum við meðal annars með því
að taka þátt í Vakanum. Þetta snýst
á endanum allt um viðskiptavininn
og að hann sé ánægður og öruggur
í húsakynnum okkar. Svo er líka
svo ánægjulegt að hafa ánægða
gesti og fá staðfestingu frá þeim og
Vakanum um að við séum á réttri
braut. Ef eitthvað er að þá er okkur
bent á það og þá fáum við tækifæri
til að laga það.“
Ferlið var þannig að fulltrúi frá
Vakanum kom til þeirra og gerði
úttekt sem sneri að nær öllum
þáttum starfseminnar. „Uppfylla
þarf ýmis gæða- og umhverfisvið-
mið. Sumir þessara þátta voru í
fullkomnu lagi hjá okkur en svo
voru aðrir þættir sem við þurftum
að laga. Það vakti líka athygli mína
þegar við fórum í gegnum þetta
verkefni að það eru ekki bara ég
og starfsfólk okkar sem þurfum að
tileinka okkur vinnubrögð Vakans
heldur einnig gestir okkar, þannig
að þetta er samvinna.“
Hjálpar mikið
Hótelið fékk svo brons-viður-
kenninguna á síðasta ári. „Forveri
minn, Erna Dís Ingólfsdóttir, vann
ötullega að því verkefni. Þegar kom
að árlegri úttekt í byrjun þessa árs
kom það í minn hlut að vinna þá
vinnu með Vakanum sem var ákaf-
lega skemmtilegt og fræðandi.“
Bjarni er ekki í vafa um að
viðurkenningin hjálpi hótelinu
mikið á allan hátt. „Það er mark-
aðslegur ávinningur fyrir fyrir-
tæki okkar að vera í Vakanum og
fá staðfestingu á því að við séum
að vinna að gæða- og umhverfis-
málum af fagmennsku. Við getum
uppfyllt væntingar gesta okkar
betur með þessari viðurkenn-
ingu og rekið fyrirtækið með betri
hætti. Þannig göngum við stolt og
keik til vinnu á hverjum degi og
höfum það að leiðar ljósi að það
eru gestir okkar sem skipta öllu
máli. Að þeim líði vel hjá okkur, fái
frábæra þjónustu og fari ánægðir
heim að dvöl lokinni. Þátttaka
okkar í Vakanum skiptir höfuð-
máli í þessu sambandi. Það er gott
að eiga Vakann að.“
Alda Þrastardóttir er verkefnastjóri hjá Ferðamálastofu og Bjarni Ara er hótelstjóri Fosshótels Lindar.
MYND/ANTON BRINK
Hafa trú á mikilvægi Vakans
Gæða- og umhverfiskerfið
Vakinn er ætlað fyrirtækjum
í ferðaþjónustu hér á landi.
Í dag hafa um 90 ferðaþjón-
ustufyrirtæki uppfyllt skil-
yrði Vakans og er Fosshótel
Lind í Reykjavík eitt þeirra.
Þjónustar stóra sem smáa gistiaðila
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Ég er bjartsýn á
framhaldið og á
næstu árum ætla ég
að halda áfram að
bjóða upp á bestu
þjónustuna, bestu
verðin og bestu
vörurnar.
6 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . m A R s 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
1
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
C
-F
C
E
0
1
C
6
C
-F
B
A
4
1
C
6
C
-F
A
6
8
1
C
6
C
-F
9
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K