Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1975, Blaðsíða 6
Heilsugæsluhjúkrunarkonan á
Islandi starfar við mismunandi
skilyrði
Sigurborfi FAnamdóUir, heilnu-
QWnluhjúUrunarUona, er búnett
á Enliiíirði og heiur ntariað þar
til. nex ár. Hún itegir irá hinu
bregtilega ntarii nínu nein
unnið er við mimnunandi
nliilgrði. Sigurhorg er einnig
herð Ijóxmóðir og heiur jiað trí-
madalauHt Uomið nér vel tgrir
hana, jiví iyrir Uemur að
tœðingu ber nUyndilega að
hiindum. Er jietta tyrnta
grcinin í greinailoUUnum:
Störí hjáUrunarUonu í
ntrjáibýli.
Segja má að starf heilsugæslu-
hjúkrunarkonu á Austfjörðum
sé í höfuðatriðum tvíþætt:
1. Starf með lækni eða læknum.
2. Starf án læknis á ýmsum
árstímum, oft í misjöfnum
veðrum og færð.
Þegar læknislaust er, er
hj úkrunarkonan tengiliður milli
fólksins og lækna t. d. í Nes-
kaupstað og Egilsstöðum í
gegnum síma. Starfið er bæði
skemmtilegt og oft erfitt, en
allir eru þakklátir og hjálpfús-
ir, ef með þarf, og veitir það
ánægju og styrk við erfiðið.
Starfið er mest fólgið í mót-
töku á almennum sjúklingum á
læknastofu og í heilsugæslu t. d.
bólusetningum, barnaeftirliti,
mæðraskoðun, skólaskoðunum
og hópskoðunum á starfandi
fólki o. fl. Heilsugæslustöðin
þjónar Eskifirði, Reyðarfirði og
Helgustaðahreppi. Á þessu
svæði búa rúmlega 1700 manns.
Fyrir kemur að læknislaust
verður á Fáskrúðsfirði og
Stöðvarfirði, en héraðslæknir-
inn á Eskifirði hefur stundum
þjónað þessu svæði líka og
verður þá fjöldi íbúanna yfir
3000. Hjúkrunarkonan hefur þá
farið með lækninum suður á Fá-
skrúðsfjörð og Stöðvarfjörð til
þess að taka á móti sjúkling-
um á lækningastofu, skoða í
skólum og bólusetja. Þessar
ferðir eru oft erfiðar, en þó
skemmtilegar, þar sem við finn-
um greinilega hversu velkomin
við erum og fólkið er mjög
þakklátt og almennilegt. Leiðin
frá Eskifirði til Söðvarfjarðar
er 192 km fram og til baka.
Oftast er farið á jeppa í þessi
ferðalög þegar áliðið er hausts
og allra veðra von, því aldrei
er að vita hvort komist verður
heim að kveldi, ef hann tekur
upp á því að snjóa yfir daginn.
Já, vetrarveðráttan á Aust-
fjörðum er oft rysjótt.
Fjórðungssjúkrahúsið er í
Neskaupstað. Til að komast
þangað frá Eskifirði þarf að
fara yfir einn hæsta fjallveg
landsins, Oddskarð, sem getur
verið lokað langtímum saman á
vetrum vegna snjóa. Undanfar-
in ár höfum við verið svo lán-
söm að hafa snjóbíl á Eskifirði.
Marga ferðina hefur hann far-
ið með sjúklinga yfir Oddskarð
á vetrum við erfið skilyrði og
Lagt af stað í bæjarhjúkrwn.
4 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS