Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1985, Page 3
FORSlÐA:
Gífurleg þrengsli orsaka lélegan
aðbúnað starfsfólks skurðdeildar
Landakots. - Ljósm.: Ingibjörg
Árnadóttir.
1.-2. tölublaö júní 1985
61. árgangur
ÚTGEFIÐ AF HJÚKRUNARFÉLAGI ÍSLANDS
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR, SlMI 15316 OG 41622
RITSTJÓRN:
ÁSA ST. ATLADÓTTIR, SlMI 51126
SIGRlÐUR SKÚLADÓTTIR, SlMI 43908
RANNVEIG SIGURBJÖRNSDÓTTIR, SlMI 40187
AUGLÝSINGAR OG BLAÐDREIFING: INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR, SlMI 15316 OG 41622 SIGRlÐUR BJÖRNSDÓTTIR, SlMI 15316 OG 21177
BLAÐIÐ KEMUR ÚT ÁRSFJÓRÐUNGSLEGA.
ENDURPRENTUN BÖNNUÐ ÁN LEYFIS RITSTJÓRA.
EFNISYFIRLIT
Skortur á hjúkrunarfræðingum 2
Brunar 8
Sársauki 14
H ug arástand - J af n væg i 19
Samskipti án orða 22
Um siðfræði og siðfræðikennslu 24
Siðfræðileg viðhorf í heilsugæslu og hjúkrun 36
HvaðerMedic Alert 39
Fréttir 41
Letur: Times 10 pt. á 12 pt. fæti. Millifyrirsagnir 12 pt.
Myndatextar 8 pt. á 10 pt. fæti.
Pappír: Fincoat 100 gr.
Prentun: Prentsmiöjan Hólar hf.
Skortur á hjúkrunarfræðingum
til starfa — Kjaramál
Eftir afdrifaríkt verkfall sl. haust og samninga-
gerö í kjölfar þess, hafa kjaramál hjúkrunar-
fræðinga og umræöa um þau einkennst af því
ástandi er nú ríkir en þaö er skortur á hjúkrun-
arfræðingum til starfa, aöallega viö sjúkrahús
en einnig við heilsugæslu.
í könnun Hjúkrunarfélags íslands er prófessor
Þórólfur Þórlindsson gerði og birtist í 1. og 3-
4. tbl. Hjúkrunar 1984, voru hjúkrunarfræðingar
spurðir um hver væri ástæðan fyrir því að
skortur væri á hjúkrunarfræðingum til starfa,
svöruðu þeir eftirfarandi:
1.41 % telja lág laun ástæðuna.
2. 22% nefna óreglulegan vinnutíma.
3. 15% segja að vinnan samræmist illa heimil-
isstörfum.
4. 9% nefna mikið vinnuálag.
5. 9% nefna vandamál vegna barnagæslu.
Lágum launum, vaktavinnu og miklu vinnuálagi
er í öllum tilfellum raðað í forgangsröð.
Á undanförnum 12 árum hafa að meðaltali 96
hjúkrunarfræðingar fengið hjúkrunarleyfi ár-
lega hér á landi. Á þessu ári verða þeir trúlega
eitthvað færri en árið 1986 munu brautskrást
um 130 hjúkrunarfræðingar.
Óvíst er að þessir hjúkrunarfræðingar fáist til
hjúkrunarstarfa. Ástæðan er lág laun. Engin
könnun liggur nú fyrir um hversu margir hjúkr-
unarfræðingar hafa hætt hjúkrun og farið í önn-
ur störf vegna lágra launa. Þó er óhætt að full-
yrða að vísbending er í þá átt og einnig að
hjúkrunarfræðingar starfandi á sjúkradeildum
hyggjast ráða sig í 50% starf en taka síðan
50% aukavaktir. Hér er um launalegan ávinn-
ing að ræða fyrir hjúkrunarfræðinga er gæti
orðið ca. 10 þúsund kr. á mánuði fyrir einstak-
linginn. Við slíkar aðstæður myndu skapast
aukin vandamál við stjórnun hjúkrunarmála og
skipulag þeirra, auk þess sem samfella í hjúkr-
unarþjónustunni er erfiðari og hin tíðu manna-
skipti skapa óöryggi fyrir skjólstæðing og hjúkr-
unarfræðing.
Það sem nú skiptir mestu máli, eigi raunhæfar
úrbætur að fást, er að snúa þróun mála við.
Slíkt verður ekki gert nema því aðeins að hjúkr-
unarfræðingar telji sig geta lifað af launum sín-
um og þar með stundað þau störf er þeir hafa
menntað sig til og vilja starfa við.
í dag er slíkt ekki til staðar.
Sigþrúður Ingimundardóttir, formaður
HJÚKRUN 1 árgangur 1