Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1985, Qupperneq 23

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1985, Qupperneq 23
• Haltu bol í sömu stellingu. Láttu höfuðið síga út á hægri öxl. lyftu því aftur og láttu það síga á vinstri öxl og lyftu því aftur. • Láttu höfuðið síga niður á bringu og hreyfðu það hægt til hægri eins langt og það kemst, hreyfðu það síðan eins til vinstri. Gerðu þetta í takt við andar- dráttinn. • Athugaðu hvort spenna sé enn- þá í höfði eða hnakka. ímynd- aðu þér spennuna eins og hnút á reipi. Hugsaðu þér að þú leysir hnútinn einn af öðrum og losir spennuna. Vegna þess að höfuð og hnakki eru eins og straum- breytir fyrir margar taugar og vöðva, verður afslöppun þar til þess að afslöppunin dreifist á fleiri hluta Iíkamans. Einbeiting hugans er þriðja und- irstaða afslöppunar. Hún færir þér tilfinningu um ákveðni og stjórn á hugsun og athöfnum. Til þess að æfa einbeitni er eftirfar- andi: • Horfðu stíft á einhvern lítinn hlut (t. d. títuprjón) og hugsaðu einungis um þennan hlut, útlit, lit, lögun o. s. frv. Án æfingar gætum við flest ekki haldið hug- anum við þetta lengur en í tæpa mínútu. Aðrar hugsanir troða sér inn á milli. Ýttu þeim hugs- unum til hliðar og haltu áfram að einbeita þér að hlutnum. • Teldu andardrátt þinn og teldu upp að 4 við innöndun og segðu hægt: „Slappaðu af,“ við útönd- un. • Reyndu að vera afskiptalaus gagnvart þessum óboðnu hugs- unum en notaðu ekki kraft til að flæma þær í burtu. Eins og annað tekur það sinn tíma og þolinmæði að læra afslöppun. Eftirfarandi gæti hjálpað þér við þann lærdóm: Taktu þér ákveðinn tíma til þagnar, þó að ekki væri nema 10 mínútur dag hvern. Þögnin hjálpar til að róa hugann og gefur um leið afslöppun. Finndu þér vin til að æfa með þér. Finndu þér bækur um afslöppun eða farðu á námskeið. Reyndu að nota öll tækifæri til af- slöppunar, þó að þú eigir annríkt, t. d. þegar þú stoppar á rauðu ljósi, í baði o. s. frv. Þegar afslöppun er orðin þér töm finnur þú að hún hjálpar þér við öll þín störf. Hún hjálpar til við að annast sjúka og einnig getur þú kennt þeim að slappa af þegar þess er þörf, þeim líður betur í návist þinni og öll snerting við þá er markvissari og þægilegri. Til að styrkja afslöppun þína not- aðu 5—10 sekúndur til afslöppunar áður en þú ferð inn á sjúkrastofu. Lokaðu þá augunum og láttu spennu hverfa, andaðu djúpt með kviðnum. Til eru margar mismun- andi aðferðir til að læra slökun, en þær stefna allar að sama marki. □ HJÚKRUN 1 ;Ai - 61 árgangur21

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.