Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 46

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 46
Fyrir greinahöfunda Stefna Stefnt er að útgáfu Tfinarits hjúkrunarfræðinga sex sinnum á ári. Það er vettvangur fræðilegrar og félagslegrar umræðu um hjúkrun. I faglega hluta tímaritsins eru birtar greinar um hjúkrunarstörf, nýjar rannsóknir í hjúkrun, viðtöl við fólk um hjúkrun og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkiunarfræðinga. í félagslega hluta blaðsins eða fréttahlutanum er greint frá kjaramálum og því sem er að gerast hjá félaginu. Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur blaðsins sé í samræmi við ritstjórnarstefnu þess. Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess öðru en aðsendum greinum. Höfundar aðsendra greina bera ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir sem í þeim birtast þurfa ekki að samrýmast stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Ritstjóri ásaml ritnefnd leggur metnað í að tímaritið sé vandað að því er varðar málfar, útlit og efni. Áhersla er lögð á að faglegar greinar standist vísindalegar kröfur. Þess vegna setur ritnefnd reglur um það hvernig höfundum ber að skila efni til blaðsins. Ritnefnd áskilur sér rétt til að birta greinar eða hafna þeim og til að setja greinar upp og aðlaga að útliti blaðsins. Ávallt er leitað umsagnar utanaðkomandi aðila um rannsókna- og fræðigreinar. Leiðbeiningar um ritun fræðigreina Greinahöfundar eru beðnir um að skila greinum til Tímarits hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Ef um rannsóknagreinar er að ræða þá tekur vinnsla þeirra lágmark þrjá mánuði eftir að þær berast til blaðsins. Yfirleitt tekur skemmri tíma að ganga frá öðru efni í blaðið. 152 Greinum skal skilað í þrfriti hverju sinni. Endanlegri gerð skal skila á tölvudisklingi. Hafið 4 sentimetra spássíu á alla vegu. Þannig verður línulengdin 13 sentimetrar á A4 en 14 sentimetrar á „US letter“ síðustærð. Jafnið vinstra megin en ekki hægra megin, notið tvöfalt línubil og 12 punkta Times letur. Heimildalisti takmarkast af tilvísunum í viðkomandi grein. Vandið málfar og íslenskið erlend orð ef unnt er. Sé um sjaldgæfa þýðingu orða að ræða er erlenda orðið sett í sviga aftan við það íslenska. Skammstafanir eru útskýrðar í fyrsta skipti sem þær koma fram. Myndir og teikningar þurfa að vera nægilega skýrar til að hægt sé að prenta eftir þeim. Uppsetning greinanna skal vera samkvæmt reglum ameríska sálfræðingafélagsins. Upplýsingar um þær er að finna í bókinni Publication Manual of the American Psychological Association og í íslenskri þýðingu í bókinni Gagnfrœðakver handa háskólanemum eftir Friðrik H. Jónsson og Sigurð J. Grétarsson. Heimildir: Fylgið reglum APA eins og að ofan greinir og þá sérstaklega íslensku þýðingunni í Gagnfrœðakverinu. Fylgið þessum reglum nákvæmlega og frá byrjun, það sparar mikla vinnu áður en yfir lýkur. Ljósrit af reglum þessum er hægt að fá hjá Tímariti hjúkrunarfrœðinga. Rannsóknagreinar Auk framangreinds gildir sérstaklega um rannsóknagreinar: Titilsíða: Þar komi fram nafn greinar og höfunda(r), starfsheiti og upplýsingar um náms- og starfsferil. Utdráttur: Utdráttur á að vera stuttur (hámark 150 orð) og þýðing hans á ensku á að fylgja. í útdrættinum á að koma fram: Tilgangur rannsóknarinnar, aðferð í grundvallaratriðum, helstu athuganir, niðurstöður og ályktanir. Frœðilegur bakgrunnur: I inngangi þessa kafla á tilgangur rannsóknarinnar að koma skýrt fram. í fræðilegri umfjöllun er vísað á nauðsynlegar heimildir en ekki gerð víðtæk fræðileg úttekt á viðfangsefninu. Athugið vel að heimildalistar og tilvísanir séu rétt og samræmd. Aðferð: Lýsið úrtaki, rannsóknaraðferð (tilraun, könnun, magnbundin, gæðabundin o.s.frv.), mælitæki/spurningalista og tölfræðiathugunum nægilega vel til að aðrir geti endurtekið rannsóknina. Vísið í heimildir að þeim aðferðum sem beitt er ef þær eru til. Getið þess ef leyfi rannsókna- eða siðanefnda var fengið til að gera rannsóknina. Niðurstöður: Niðurstöður eru settar skipulega fram með töflum og myndum sem í texta er vfsað skýrt í. Endurtakið ekki nákvæmlega í textanum það sem töflurnar sýna heldur dragið saman aðalatriði. Stundum nægir að setja einstaka niðurstöður fram með fáum orðum í texta. Umfjöllun: Hér er lögð áherslu á þau atriði í rannsókninni sem eru ný og ályktanir sem draga má af þeim. Dragið ekki saman niðurstöður úr næsta kafla á undan. Látið koma fram hvaða máli niðurstöður rannsóknarinnar skipta, takmarkanir þeirra og tengsl við aðrar rannsóknir. Skoðið niðurstöðumar út frá tilgangi rannsóknarinnar en varist alhæfingar sem ekki eru studdar af niðurstöðum. Gefið hugmyndir að nýjum rannsóknum og tilgátum. Þakkir: Berið einungis fram þakkir til fólks sem hefur veitt mikla aðstoð við verkefnið og að fengnu leyfi viðkomandi. »• TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 4. tbl. 71. árg. 1995
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.