Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Qupperneq 34

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Qupperneq 34
Hver er staðan kír k UrMí ? Samkvæmt upplýsingum úr ársskýrslu Samtaka um kvennaathvarf 1999 voru skráðar 298 komur kvenna í Kvennaathvarfið og skiptast komurnar þannig, að til dvalar komu 117 konur en viðtölin voru 181. Af þeim 117 konum sem komu til dvalar voru 49 þeirra með börn með sér en fjöldi þeirra barna, sem í athvarfinu dvaldi, var 80 á árinu 1999. Flestar konurnar koma vegna þess að þær eru þolendur andlegs ofbeldis á heimilum sínum, eða rúmlega 35%. Rúmlega 20% hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi en líkamlegt ofbeldi er í flestum tilfellum líka skráð sem andlegt ofbeldi. Rúmlega 6% koma vegna ofbeldis gegn börnum, um 8% vegna morðhótana og um 7% vegna ofsókna. Þegar tengsl við gerandann eru skoðuð kemur í Ijós að í meira en helmingi tilfella er gerandinn eiginmaður eða sambýlismaður konunnar. Fyrrverandi eiginmenn og sambýlismenn eru um fjórðungur geranda. Lítil fylgni er milli komufjölda kvennanna og tiltekinna mánaða og hefur svo verið frá upphafi. Flestar konurnar, sem leita til athvarfsins, búa á höfuðborgarsvæðinu, eða um 90%. íslenskar konur eru 85% þeirra sem leita til athvarfsins en útlendar konur eru 15%. Athyglisvert er að fæstar konur kæra verknaðinn, eða einungis um 2%, þó 16% þeirra kvenna sem leituðu til Kvennaathvarfsins 1999 hafi búið við líkamlegt ofbeldi. 14% kvennanna voru með áverka við komuna í athvarfið. Meðalaldur kvennanna var 36 ár, yngsta konan var 16 ára en sú elsta 69 ára. Árið 1999 dvöldu 80 börn í Kvennaathvarfinu. Flest börnin eru undir þriggja ára aldri eða rúmlega fjórðungur. Yngsta barnið var 3ja mánaða og það elsta 16 ára. Hjá þeim 117 konum, sem komu til dvalar í Kvennaathvarfið, var lengsta dvölin 61 dagur en meðaldvalartíminn var 11 dagar. Tölur frá Kvennaathvarfinu sýna þó ekki nema brot af því ofbeldi sem er til staðar, sumar konur búa við það alla ævi en aðrar leita annarra úrræða, flytja t.d. til ættingja eða vina þar til þær hafa komið sér upp heimili á nýjan leik. 150mlCn REVEN; 75 m/ Creme iKVMl

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.