Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Blaðsíða 37
Ritdómur
Eydís Sveinbjarnardóttir, sviðsstjóri geðhjúkrunarsviðs á
Landspítala háskólasjúkrahúsi
Hvað gengur fólki til?
Leit sálgreiningar að skilningi
Mál og menning, Sæunn Kjartansdóttir, 148 bls. - isbn 9979-3-1952-6
Bókin „Hvað gengur fólki til?“ eftir Sæunni Kjartansdóttur,
sálgreini og hjúkrunarfæðing, er einstaklega aðgengileg og
skemmtileg bók um annars flókinn og margbrotinn veru-
leika, þ.e. heim tilfinninganna. Texti bókarinnar er skýr og
þannig kemst hugmyndafræði sálgreiningar og lýsingar á
viðfangsefnum hennar vel til skila til lesandans. Ég tel að
Sæunn hafi náð markmiði sínu með bókinni, eða eins og
hún segir í upphafi bókarinnar, að hún vilji „vekja forvitni
fólks á hugmyndaheimi sálgreiningar, fyrst og fremst
kenningum um viðfangstengsl" (bls.13).
Um þessar mundir beinast rannsóknir á sálrænum við-
fangsefnum og einkennum að líffræði- og atferlislegum
skýringum þar sem „hlutleysi vísindanna" er haft í háveg-
um. Ætla mætti að hugmyndir sálgreiningar bættu engu
við þær vísindalegu skýringar. Vitneskjan um samsetningu
gena einstaklinga útrýmir ekki flóknu tilfinningalífi þeirra. Ég
er því sammála Sæunni sem heldur því fram að hug-
myndafræðigrunnur sálgreiningar auki við skilning okkar á
fólki þrátt fyrir að erfitt sé að meta fræðin með raun-
vísindalegum mælikvörðum.
Fyrstu kaflar bókarinnar eru í heimildaritgerðastíl og
fjalla um kenningar sálgreiningar sem Sæunn gerir á
skýran og hefðbundinn hátt. í seinni hluta bókarinnar
skrifar Sæunn meira frá eigin brjósti og bregður á mörg
viðkvæm viðfangsefni ijósi sálgreiningar. Hún gerir það á
einstaklega læsilegan hátt og heldur þannig lesandanum
vel við efni bókarinnar. Mér fannst síðasti kafli bókarinnar
„Óðurinn til fíknarinnar" vera hátindur bókarinnar. Gagn-
rýnin, ögrandi, rökföst og opin umræða um áfengismeð-
ferðarmálin á íslandi er einkenni kaflans. Sæunn hefur
áræði til að fjalla um þá forboðnu umræðu sem áfengis-
meðferð á íslandi hefur verið. Sú umræða hefur löngum
verið hafin yfir gagnrýni samkvæmt fullyrðingum stýrenda
og áhangenda áfengismeðferðarstefnunnar hér á landi.
Sæunn tengir þá umræðu við skilgreiningu á fíkn og fíknar-
hugtakinu. Hún segir: „Vandamálið er fíkn og lausnin
bindindi, en það fellur vel að dálæti okkar á skjótum og
einföldum úrræðum. En tilvera okkar og vandamál eru
flóknari og margslungnari en svo að við getum sett þau
inn í einfalda formúlu" (bls. 129).
Ég er ekki í neinum vafa um að efni bókarinnar höfðar
til hjúkrunarfræðinga á ölium sérsviðum hjúkrunar. Kjarni
sálgreiningar er að „hlusta, skilja og setja í samhengi" en
það eru allt áhersluþættir sem þekktir eru innan geðhjúkr-
unar. Þetta eru gildi og áhersluþættir sem eiga oft erfitt
uppdráttar í hraða nútímasamfélags og þjónustustofnana
þess þar sem kjarni umræðunnar er gjarnan meiri árangur
fyrir minna framlag. Sýnt er að hugmyndafræði sálgrein-
ingar á erfitt uppdráttar í þeim hugsunarhætti.
í heild sinni er bókin vel upp sett þó á stöku stað
saknaði ég nokkurra samantekta eftir umfjöllun eða kafia.
Einnig fannst mér að heimildaskráin eftir kaflana ætti að
vera „ein með öllu“ alveg eins og aftast í bókinni. Ég óska
Sæunni til hamingju með það þrekvirki að skrifa bók sem
fjallar um kenningar og viðfangsefni sálgreiningar á þann
hátt að unun var að lesa á íslensku.
' áttuv,n Já
i vandavn í)
f Á F C N B I S - 0 C
' VÍMUVHBNHRÁO
Vandamál sem tengjast áfengis-
og vímuefnanotkun geta verið margskonar.
Hér eru upplýsingar um úrræði sem standa til boða.
Stofnun, félag Heimilisfang Sími
Félagsþjónustan í Reykjavík, unglingaráðgjafar Sjá hverfaskrifstofur Vesturbær 535 3100 Austurbær, Árbær, Kjalarnes 535 3200 Breiöholt 535 3300 Grafarvogur 587 9400
Fjölskyldumiðstöð Heilsuverndarstöðin v/ Barónsstíg, 101 Reykjavfk 511 1599
Fjölslylduþjónusta þjóökirkjunnar Klapparstíg 25-27, 101 Reykjavík 562 3600, símatími alla daga kl. 12.45-13.30
Götusmiðjan Fræðslu- og Qölskyldudeild Stórhöfða 15, 110 Reykjavík 520 2048
sM Armúli 18, Síðumúli 3-5, 108 Reykjavík 581 2399
Stígamót Vesturgata 3, 101 Reykjavík, 562 6868, 562 6878
Trúnaöarslmi Rauðakrosshússins 800 5151
Umboðsmaður barna Laugvegur 13, 101 Reykjavík 552 8999, 800 5999
Vfmulaus æska, foreldrasamtök Vonarstræti 4b, 101 Reykjavík 511 6160, 581 1799
Að auki má nefna að heilsugæslustöðvar um allt land, námsráðgjafar og skólahjúkrunarfræöingar
í skólum landsins og prestar veita ýmsa ráðgjöf og geta vísaö til sérfræðinga utan sinna stofnana.
www.vimuvarnir.is
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 76. árg. 2000
217