Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Blaðsíða 40

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Blaðsíða 40
Anna Birna Jensdóttir sviðstjóri öldrunarhjúkrunar Landspítala - háskólasjúkrahúss // I hratt vaxandi málaflokkur Öldrunarþjónustan er vaxandi þjónustugrein í takt við hlutfallslega fjölgun þeirra sem elstir eru í hópi íslendinga. Gífurleg uppbygging hefur orðið í öldrunarþjónustu íslend- inga síðastliðin 20 ár. Um landið allt hafa verið byggð eða endurgerð hjúkrunarheimili og sjúkrahús sem sinna öldruðum með virkri meðferð og/eða langtímaumönnun sé þess þörf. Rannsóknir, sem gerðar hafa verið hérlendis, sýna að þjónustan á stofnunum hér á landi er almennt til fyrirmyndar í samanburði við stofnanaþjónustu í vestræn- um löndum. Enn fremur er húsakostur víða með því besta sem gerist og nýtísku tækjabúnaður til að létta störfin nánast alls staðar til reiðu. Þjónustuúrræðum fjölgar bæði í heimaþjónustu sem og á stofnunum. Þar af leiðandi er vaxandi þörf fyrir fólk til starfa í öldrunarþjónustu, bæði faglærða sem almenna starfsmenn. Öldrunarþjónustan er að langstærstum hluta rekin fyrir almannafé nema að því leyti sem aldraðir sjálfir taka þátt í kostnaði eftir tekjum. Ríkið sér öldrunarstofnunum, sjúkra- húsum og heilsugæslustöðvum fyrir rekstrarfé en sveitar- félögin annast heimilishjálpina og rekstur þjónustumiðstöðva. Mikil þensla á atvinnumarkaði ásamt vaxandi velmegun hér á landi hefur leitt til þess að skortur er á starfsfólki, einkum í þjónustugreinum. Áætlað er að starfsfólk vanti í u.þ.b. 400 störf á höfuðborgarsvæðinu, þar með talið í heilbrigðisþjónustu. Hjúkrunarforstjórar öldrunarstofnana á höfuðborgarsvæðinu leituðu í ársbyrjun til Ingibjargar Þálmadóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, til ráðagerða um hvernig skynsamlegast væri að bregðast við. Ráðherra ákvað að skipa nefnd er ynni að því að: • stuðla að viðhorfsbreytingu meðal almennings til öldr- unar og þess að starfa í öldrunarþjónustu • bæta þá ímynd sem störf í þágu aldraðra hafa meðal ungs fólks og heilbrigðisstarfsmanna almennt. Nefndina skipa: Anna Birna Jensdóttir, Birna K. Svavarsdóttir og Þórunn Sveinbjörnsdóttir, skipaðar af ráð- herra, Vilborg Ingólfsdóttir og Aðalsteinn Guðmundsson, skipuð af landlækni, Jóhann Árnason, skipaður af deild forsföðumanna innan Félags stjórnenda í öldrunarþjónustu, og Sigþrúður Ingimundardóttir, skipuð af deild hjúkrunar- forstjóra innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. 220 Leitað verður til öldrunarstofnana um markvissa þátt- töku í verkefninu. Annað brýnt verkefni, sem Ijóst var að vinna þyrfti samhliða, eru menntunarmál. Leitað var til Björns Bjarna- sonar menntamálaráðherra og lögð áhersla á eftirfarandi: a) fjölga þarf námsplássum í hjúkrunarfræði á íslandi b) koma þarf á skipulögðu/starfstengdu íslensku nám- skeiði fyrir erlenda starfsmenn í öldrunarþjónustu í samvinnu við öldrunarstofnanir. c) lágmarksskilyrði fyrir ráðningu til starfa við umönnun aldraðra sé að hafa farið á námskeið í grundvallar- umönnun aldraðra d) vinna þarf að því að almennir starfsmenn, sem hafa reynslu í umönnun aldraðra og sótt hafa námsskeið, fái reynslu sína og þekkingu metna til sjúkraliðanáms. Útbúa þarf sérleið fyrir þá þannig að þeir geti stundað sjúkraliðanám með starfi þar til réttindum er náð. Til Ráls Péturssonar félagsmálaráðherra var enn fremur leitað með lið b). Félagsmálaráðherra og menntamálaráðherra lögðu strax fram fjármagn til að koma á farandverkefni varðandi íslenskunám fyrir erlenda starfsmenn öldrunarþjónustu. Skilyrði var að íslenskukennslan væri tengd því að starfa með öldruðum. Skipaður var stýrihópur með verkefninu og koma þar að fulltrúi starfsmenntaráðs, Vinnumálastofn- unar, Miðstöðvar nýbúa og öldrunarstofnana. Námsflokkar Reykjavíkur voru fengnir til að annast námsgagnagerð og kennslu. Fyrsta námskeiðið fer af stað á Landakoti í október og er það 7 vikna námskeið. Þriðja verkefnið, sem unnið var að, voru launamálin. Hjúkrunarforstjórar og forstöðumenn öldrunarstofnana héldu á fund Geirs Haarde fjármálaráðherra og lögðu áherslu á að hraðað yrði að ganga frá kjarasamningi við Eflingu. Markmiðið var að tryggja að lágmarkslaun í umönnunarstörfum stæðust samkeppni við launakjör sem í boði eru á almenna vinnumarkaðnum þannig að öldrunarþjónustan væri samkeppnisfær um starfsfólk. Fjármálaráðuneytið gekk frá samningi við Eflingu í sumar, nokkrum mánuðum áður en samningurinn var laus. Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 4. tbl. 76. árg. 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.