Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Side 48

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Side 48
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Hjúkrunarfræðingar - ljósmæður Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins og hefur það að markmiði að veita sjúklingum og aðstandendum þeirra áreiðanlega, markvissa og fjölskylduvæna heilbrigðisþjónustu. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hefur nána samvinnu við háskólana í landinu og lögð er áhersla á símenntun á sviði heilbrigðismála og rannsóknir á sviði heilbrigðisvísinda. Fjórðungssjúkrahúsið vantar hjúkrunarfræðinga og ljósmæður til starfa nú þegar eða eftir samkomulagi, um er að ræða fastar stöður og afleysingastöður. Boðin er einstaklingshæfð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum. Starfshlutfall og starfstími eftir samkomulagi. Upplýsingar gefur Þóra Ákadóttir, starfsmannastjóri hjúkrunar, sími 4630273 og netfang thora@fsa.is Laun samkvæmt gildandi kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Reyklaus vinnustaður Telja verður að yfirvinna, sem unnin er af staðgengli, reiknist miðað við þann sem hærri laun hefur skv. þessu ákvæði. Hins vegar verður að túlka ákvæðið þröngt að öðru leyti þannig að það taki einungis til launaflokks en ekki annarra kjara samkvæmt ráðningarsamningi. Spurning: Er hægt að taka yfirvinnu út í fríi ? Svar: Ekkert ákvæði er tii um það í kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hins vegar er rétt að nefna umfjöllum um þetta efni í 4. tbl. BHM-tíðinda frá september 1999. Þar segir: „Yfirvinna tekin út í fríi skal lúta sömu reglum og væri yfirvinnan greidd sem tímakaup í yfitvinnu. Engin frítökuskylda er fyrir hendi samkæmt gildandi reglum. Samþykki starfsmaður að taka yfirvinnu sína út í fríi skai fara að hlutaðeigandi kjarasamningi á sama hátt og þegar greitt er fyrir yfitvinnuna með tíma- kaupi." Spurning: Hvað þýðir grein 4.1.2 í kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um lengingu orlofs við 30 og 38 ára aldur? Svar: Lenging kemur á sumarorlof á því almanaksári sem starfsmenn verða 30 ára og 38 ára. Spurning: Ef starfshlutfalli er breytt af hálfu vinnu- veitanda, þarf þá að segja ráðningarsamningi upp með þriggja mánaða fyrirvara? Svar: Já, þess þarf. Allt sem samið er um, bæði laun og vinnufyrirkomulag, er hluti af ráðningarsamningi. Annar aðilinn getur ekki breytt því nema gera það formlega með þriggja mánaða fyrirvara og þá getur hinn aðilinn litið svo á að breytingin sé svo mikil að hann líti á þetta sem upp- sögn á samningnum. Ef hins vegar báðir aðilar ráðningar- samningsins, atvinnurekandi og starfsmaður, eru sammála um breytinguna þá þarf ekki að segja neinu upp. Þeir semja bara um breytingu á samningnum og geta gert það hvenær sem er. Meístaragráðunám í hjúkrunarfræði víð Háskólann á Akureyrí Meistaragráðunám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri í samvinnu við Royal College of Nursing Institute/Manchester- háskóla hefst 1. febrúar 2001. Umsóknarfrestur er til 1. nóvemb- er nk. Inntökuskilyrði: B.S. gráða í hjúkrunarfræði (1. eink.) og starfsreynsla. Upplýsingar veitir prófessor Sigríður Halldórsdóttir (Sigridur@unak.is). Lýsingar á námskeiðum er að finna í kennslu- skrá H.A. en námið er með fjarnámssniði. fea 228 Tfmarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.