Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Síða 19
Skoðanaskipti
Það sem fram fer við rýni með leiðbeinanda má með nokkrum
sanni kalla skoðanaskipti sem rekja sig af hverju sviðinu á
annað.
Svið
Eitt Skoðanaskipti milli mín og annarra meðan
atvikið á sér stað
Tvö Skoðanaskipti við minn innri mann (rýni á stað
og stund)
Þrjú Rýni í liðna atburði
Fjögur Samanburður við fræðikenningar
Fimm Skoðanaskipti við leiðbeinandann
Sex Vangaveltur lesandans þegar hann les textann
Fyrsta og annað svið skoðanaskiptanna eiga sér stað þegar
rýnt er við vinnuna. Þriðja sviðið kemur fram þegar rifjað er
upp hvaða þýðingu fyrstu tvö sviðin hafa og við það skilja
menn betur eðli árekstranna milli hins æskilega og þess sem
raunverulega er gert og sjá e.t.v. leiðir til að forðast þessa
árekstra. Þetta leiðir mann að fjórða sviðinu þar sem kíkt er í
kenningamar til að bera hugleiðingarnar saman við fræðin.
Þetta kallar Lather7 „constmct validity". Fimmta sviðið snýr
að leiðbeinandanum. Þegar ég er með mínum leiðbeinanda
lesum við og túlkum mína eigin reynslu og reynum að fá ein-
hvern botn í hana en þetta kallar Gadamer samræmingu sjón-
arhornanna. Við slíkar vantaveltur8 þvingar leiðbeinandinn
ekki tiltekinn skilning upp á rýninn. Leiðbeinandinn þarf
sífellt að víkja eigin skoðunum til hliðar. Þó er leiðbeinandinn
ekki hlutlaus áhorfandi heldur verður hann virkur þátttakandi
við að fá botn í málin meðan frásögninni vindur fram.
Frásagan
I rýni minni nota ég ávallt frásagnir af eigin lífi og reynslu.
Þar er ekkert greinilegt upphaf né endir. Þar eru margsnúnir
þræðir og ekki reynt að greiða úr þeim öllum. Frásagan þarf
að sýna að hversdagslífið er bæði margbrotið og þverstæðu-
kennt. Frásögnin er lika afar huglæg. Hún er andartak af eilífð
tímans, fært í frásögubúning, mótað af leiðbeiningum skipu-
lagðrar rýni. Getið þið ímyndað ykkur hvernig frásögnin liti út
ef hún næði yfir heilt ár? Ég vinn með hjúkrunarfræðingum
sem beita rýni með leiðbeinanda til að kanna með kerfis-
bundnum hætti sinn eigin innri mann og umbreytingu hjá
sjálfum sér. Slík frásögn er byggð á fjölda atvika þar sem rýn-
arnir öðlast skilning og beita honum á nýjum vettvangi. Sjálf-
skoðun er það að líta um öxl og sjá að maður hefur breyst með
því að ljá því eyra að vera hjálpfúsari og betur til taks eða með
því að fara kerfisbundið yfir það hvernig hægt er að bæta
vinnubrögðin. Ef til vill finnið þið upphafið á þessari sjálf-
skoðun í rýni minni? Frá sjónarhóli femínismans er rýnin
sjálfstjáning, það að fá aftur vald yfir sjálfri sér eftir að aðrir
hafa ráðið9. í huga Okri10 er ffásagan sjálfstjáning sem þarf
bæði að heilla lesandann og ýta við honum með sannleikanum
þar sem fegurð og hryllingur búa hlið við hlið. Hvernig stenst
minn texti þær kröfúr sem Okri gerir? Getur hið hversdagslega
verið bæði heillandi og fráhrindandi án þess að sveiflast milli
raunveruleika og hugsmiða? Hér gildir hið sama og við allar
rannsóknaraðferðir, íylgja þarf tilteknum reglum til að sam-
ræmi sé í frásögninni.
Sögur annarra
Sjötta þrep skoðanaskiptanna lýtur að lesandanum og textan-
um. Lesandinn verður spyrillinn og túlkandinn. Þegar þið lesið
rýnifrásagnir mínar, hvaða hugsanir fóru þá á kreik hjá ykkur?
Samræmdist saga min ykkar reynslu? Samhengið í hverri frá-
sögn á að gera lesandanum eða áheyrandanum kleift að setja
sig í þau spor sem sögupersónumar eru í. Auðvitað er saga
hvers og eins frábrugðin sögum annarr.a því hvert okkar er
einstakt. En ef við sætum kringum varðeld og segðum hvert
öðm sögumar okkar þá mundum við fljótt sjá að við eigum
margt sameiginlegt og getum margt af sögum annarra lært. í
þessum skilningi er hver saga svolítil mannlífsrannsókn. Gildi
hennar felst í að fræða aðra, ekki með því að fyrirskipa heldur
einfaldlega með því að fá fólk til að rýna í eigin barm.
Eðli rýni með leiðbeinanda
Ef þið eruð áhugasöm um þessa aðferð við að kanna innri
mann og eigin umbreytingu skuluð þið lesa Guided reflection;
research in practice." Aðferðafræðin er margvísleg en þó
samtvinnuð. Kjarninn í henni er þjóðfélagsrýni sem leitast við
að gera fólki kleift að sigrast á þeim öflum sem þjá það eða
kúga með því að upplýsa, veita vald og losa úr höffum.12 Þetta
á sér hliðstæðu í þjóðháttarýninni þar sem ljósi er varpað á
þjóðfélagsgerðina og hvemig hún skapar mótsagnir og heftir
æskileg vinnubrögð, valddreifingu og femíniskar rannsóknar-
aðferðir. Þetta á sér einnig hliðstæðu í túlkunarfræðinni því
hún reynir að gá bak við fyrirbærin og atvikin sem lýst er í
textanum og fá botn í atburðarásina, sem lýst er í rýninni, og
það bætta verklag sem af rýninni leiðir.
Samantekt
Ég hef brugðið ljósi á rýni með leiðbeinanda en hún er sam-
starfsverkefni um könnun á innri manni rýnisins og umbreyt-
ingunni á honum/henni sem lýsir sér í betri vinnubrögðum.
Rýnin byggist á hversdagsreynslu rýnisins og hana er best að
festa á blað eftir ákveðnum leiðbeiningum og njóta síðan
aðstoðar reynds leiðbeinanda. Með því að setja upp viðeigandi
skoðunarglugga og skrá frásögu getur rýnirinn séð hvernig
gengur að bæta sig. Frásagan er huglægur texti sem dregur
upp líflega mynd af brasi rýnisins við að betrumbæta vinnu-
brögðin auk þess sem þar kemur ffarn gagnrýni hans á það
sem hefur hingað til hamlað honum í starfi.
Til að leggja út í slíka könnun þarf lesandinn að rifja upp
fleiri en eitt atvik eða einn dagspart, þetta þarf að vera meira í
ætt við það sem ég sýndi hér að framan. Eins og glöggt kom
83
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 78. árg. 2002