Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Side 22

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Side 22
Mariah Snyder. bók er ég var að kenna í framhaldsnámi okkar í háskólanum í Minnesota 1978, Indipendent Nursing Interventions sem kom út 1985. Eitt af þeim verkefnum, sem var lagt fyrir nemana, var að líta á hóp sem hafði fengið tiltekna sjúkdómsgreiningu, svo sem sykursýki, og finna hjúkrunarmeðferð sem hentaði þeim. Sumt af því sem íjallað er um myndi ekki falla undir skilgreininguna sérhæfða meðferð í hjúkrun í dag en þar var ýmis meðferð sem hjúkrunarfræðingar gátu gert sjálfstætt, svo sem nudd, ímyndarvinna, upprifjun ýmissa minninga, lækn- andi snerting, svo það var heilmargt sem myndi falla undir þessa skilgreiningu. Bókin var gefin út sjö sinnum og þegar hún var gefin út í þriðja sinn, var útgefandinn látinn svo ég fór til annars útgefanda og ritstjórinn þar spurði mig hvort ég hefði hugleitt að nefna bókina sérhæfða meðferð í hjúkrun, svo þriðja útgáfan kom út undir heitinu Complementary Alternative Therapies. Bókin hefur því breyst, í seinni útgáfum er efnið byggt á rannsóknarniðurstöðum og hvernig unnt er að nota tiltekna meðferð. Svo höfum við bætt við þrýstinuddi, reiki og ýmsu fleiru.“ Hún segir rannsóknir á gagnsemi sérhæfðrar meðferðar hafa aukist mjög mikið á síðustu árum. „Við höfum t.d. gert rann- sóknir á handnuddi, læknandi snertingu og nærveru við fólk sem er með elliglöp til að kanna hvort það hefði áhrif á árásar- gjama hegðun þeirra. Og nokkrir af nemendum mínum, sem eru að ljúka doktorsprófi, eru að rannsaka sérhæfða hjúkrunarmeðferð svo sem tai chi, læknandi snertingu o.fl. Niðurstöður þessara rann- sókna hafa allar verið jákvæðar varðandi gagnsemi sértækrar meðferðar í hjúkrun." Hún sagði aðferðirnar, sem falla nú undir sérhæfða með- ferð margar afar gamlar, eiga rætur í heilbrigðisffæðum Austurlanda fyrir 4-5.000 árum. „Eg held að Kínverjar, sem nota jöfnum höndum hina vest- rænu læknisfræði og sérhæfða meðferð, séu komnir langt á undan okkur. Mér var einu sinni sögð saga af indíánalækni sem fylgdist með vestrænum starfsbróður sínum afgreiða fjöl- marga sjúklinga á mjög stuttum tíma með lyfjum eða áburði. Hann fylgdist með þessu en sagði svo að hann myndi aldrei treysta sér til að vera svona fljótur að sjúkdómsgreina og gefa viðeigandi ráð. „Það myndi taka mig að minnsta kosti heilan dag að átta mig á hvað væri að hveijum og einum og hvað ég ætti að gera fyrir hann,“ sagði indíánalæknirinn og bætti við að hann þyrfti að kynnast manninum og aðstæðum hans til að vita hvernig væri hægt að lækna kvilla hans. í okkar vestrænu læknisfræði, þar sem skil eru milli hugar og líkama, er of lítið hugsað um hvað veldur sjúkdómunum, maður getur t.d. fengið magasár en hvað veldur því? Er það kvíði eða rangt mataræði eða eitthvað annað? Eða eins og læknir einn í Arizona sagði sem hefur innleitt þessa meðferð í stórum stíl: „Ef ég lenti í bílslysi myndi ég vilja fara á slysavarðstofu sem væri með fullkomnum hátækni- búnaði, en ef ég væri með ólæknandi sjúkdóm myndi ég vilja fara á stað þar sem boðið er upp á sérhæfða meðferð sem og hina hefðbundnu.“ Mariah er spurð hvort það kunni að vera að aukinn hraði í samfélaginu og aukin tæknivæðing kalli á óhefðbundna með- ferð í meira mæli nú en áður. „Það kann að vera ein ástæðan fyrir því að fólk leitar meira í sérhæfða meðferð en niðurstöður rannsókna okkar sýna að í Bandaríkjunum hafa um 40% ibúa notað sérhæfða meðferð og talið er að þeir séu jafnvel fleiri. Fólk óskar eftir að meðferðin sé heildræn, litið sé á einstaklinginn í heild en ekki einstaka þætti, liffæri eða líkamshluta hans. Fólki finnst líka oft að meðferðin, sem þeim er ráðlögð eftir hinni hefð- bundnu vestrænu læknisffæði, sé jafnvel verri en sjúkdóms- einkennin sem henni er beint gegn. Sumir vilja varast aukaverkanir lyfja eða jafhvel ranga lyfjagjöf en því miður eru dæmi um að fólk fái röng lyf. Og fólk vill líka umhyggjusaman meðferðaraðila, fólk sem vill t.d. hlusta á það. Meðferðin er einnig notuð samhliða lyfja- gjöf, oft má minnka lyfjagjöf með því t.d. að nudda.“ Til eru um 1800 mismunandi gerðir sem flokkast undir sérhæfða meðferð í öllum heimshlutum, sumar vel þekktar, aðrar minna. Meðferðarformin flokkast í fimm meginflokka eins og fram kemur í grein Þóru Jennýjar í fyrsta tölublaði þessa árs, þ.e. heildræn kerfi lækninga, meðferðarform sem byggjast á tengslum hugar og líkama, lífræn meðferðarúrræði, aðferðir þar sem líkaminn er handleikinn eða meðhöndlaður og orkumeðferð. Mariah Snyder er þess fullviss að í framtíðinni aukist rann- sóknir á gagnsemi sérhæfðrar meðferðar og fram komi rann- sóknarsnið sem hæfi þeirri hugmyndafræði sem liggi að baka slíkri meðferð. Eigindlegar rannsóknaraðferðir eigi betur við til að kanna gagnsemi þeirra. Meginhindrunin við að nota sérhæfða meðferð innan heilbrigðiskerfisins séu greiðslur til þeirra sem eru sérfræðingar á tilteknum sviðum meðferðarinn- ar. Þessi meðferð verði að öllum líkindum í mun ríkara mæli 86 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 78. árg. 2002

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.