Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Qupperneq 23
meðal námsefnis í hjúkrunarfræði og almenningur muni til-
einka sér þessar aðferðir til að halda betri heilsu.
„Við notum ímyndunaraflið til að hafa áhrif á verki og svo
er lítill blettur á höndinni sem hægt er að þrýsta á. í mörgum
þessum úrræðum er kennd tækni sem einstaklingurinn getur
viðhaldið eftir að hann hefur lært aðferðirnar, eins og í
ilmolíumeðferð, maður lærir á olíurnar og getur svo tekið það
sem maður vill. Það er annað með nudd, þar þarf fólk á
nuddara að halda. Ég held að fólk geti gert mjög mikið sjálft
til að viðhalda góðri heilsu og þar skipta hin óhefðbundu
úrræði miklu máli. Það eru t.d. mjög miklar upplýsingar til á
heimasíðum og ég held það skipti miklu máli að benda fólki á
heimasíður sem eru áreiðanlegar, sumar síður eru því miður
uppteknari af að selja vöru sína en veita góðar upplýsingar.“
I fyrirlestri sínum seinna um daginn byrjaði Mariah Snyder
á því að láta ráðstefnugesti slaka á og hugleiða í stutta stund.
Mariah Snyder sagði að lokum að henni fyndist óhefð-
bundin meðferð kærkomin viðbót við þá hjúkrunarmeðferð
sem við höfum þekkt fram að þessu, oft sé meiri umhyggja
borin fyrir sjúklingnum og niðurstöður sýna að þær gera
mikið gagn. Það skipti einnig miklu máli fyrir hjúkrunarfræð-
inga að þessari meðferð er hægt að beita án þess að læknar
fyrirskipi hana. Og það er hægt að nota hana mjög víða, á
líknardeildum, meðal aldraðra og með bömum, svo dæmi séu
tekin.
Nokkrar heimasíður:
Ilmolíumðferð www.rjbuckle.com
Healing Touch Intemational www.Healingtouch.net
AMMA Therapy www.ollege.edu/academic/nursecert
Imagery www.imagervrn.com
Holistic Nursing www.ahna.org
Hjúkrun - á þínum forsendum
Liðsinni óskar eftir hjúkrunar-
fræðingum til starfa nú þegar
teiilfciMI hefur frá stofnun starfað á ýmsum stofnum og
sjúkrahúsum í Reykjavík og á landsbyggðinni.
Með okkur starfar hópur
sjálfstæðra og framsýnna
hjúkrunarfræðinga. Við viljum
bæta fleirum í þennan góða hóp.
Við leitum að hjúkrunarfræðingum með
fjölbreytta faglega reynslu sem eru
sveigjanlegir og áreiðanlegir í
samskiptum.
Við bjóðum launakjör í sérflokki,
sveigjanlegan vinnutíma og spennandi
starfsumhverfi.
Hafðu samband við Önnu Baldursdóttur
síma 594 8800 og fáðu nánari upplýsingar.
Verkefnum er sífellt að fjölga og fjölbreyttnin eykst, enda færir
fyrirtækið sig nú inn á æ fleiri sérgreinar heilbrigðisþjónustunnar.
Ráðningaform eru tvennskonar: fastráðning og
skv. tímakaupi. í báðum tilvikum berliHHIW
allar venjulegar vinnuveitandaskyldur
gagnvart starfsfólki sínu.
Ráðningarform, vinnuhlutfall, vinnutími
og vinnustaður byggir á óskum
starfsmanns og þörfum viðskiptavina
Við leggjum áherslu á áreiðanleika
fyrirtækisins gagnvart starfsmönnum
sem eiga traust bakland hjá IIÞHIilKII. þó
starfinu sinni þeir hjá viðskiptavinum.
Liðsinni ehf. - Sundagarðar 2 - 104 Reykjavík - s. 5948800 - f. 5948801 - info@lidsinni.is - www.lidsinni.is
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 78. árg. 2002
87