Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Page 49
é>ínkA\xkin heilbrigðisþjónusta virðist
dýrari en srekín þjónusta
Eftir Ólaf Ólafsson, fyrrverandi landlækni
í skýrslu tveggja hagfræðinga, er Sighvatur Björgvinsson
þáverandi ráðherra bauð til íslands 1993 að ósk embættis-
manna, kom fram að „útgjöld íslendinga væru 4,2% neðan við
meðaltal heilbrigðisútgjalda OECD ríkja, reiknuð í kaup-
máttargildum (purchasing power parity), en þá er miðað við
aldursdreifingu og tekjur íbúa og greiðsluhlutfall hins opin-
bera til heilbrigðis- og félagsmála sem OECD reiknar með við
samanburð á útgjöldum til heilbrigðismála milli þjóða. Tekið
var tillit til þessara þátta og þá aðallega rauntekna og aldurs-
dreifingar. Hafa ber þó í huga að Islendingar flokka ýmsa
þætti félags- og hjúkrunarþjónustu ásamt greiðslum til
atvinnuleysistrygginga undir heilbrigðismál, sem aðrar þjóðir
flokka undir félagsmál. Island er því í raun lægra í röðinni.
Öllum að óvörum var þessari skýrslu ekki dreift á íslandi
og ekki var hún kynnt. Má vera að ástæðan sé sú að niður-
stöður skýrslunnar komu nokkuð flatt upp á suma pólitíkusa.
Árið 1998 fékk landlæknisembættið upplýsingar Ifá OECD
sem hér eru nefndar.
Algengustu mælikvarðarnir á kostnaði heilbrigðisþjónust-
unnar eru hlutfall af vergri landsframleiðslu og kostnaður í
kaupmáttargildum á íbúa.
Kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu 1996 sem hlutfall af
vergi landsframleiðslu í OECD löndum.
Lönd og rekstrarform greiðsla hins heildar-
Norðurlönd, aðallega opinbera kostnaður
almannatryggingar V- Evrópulönd, almannatr. og 6,1 7,8
einkatryggingar Sviss/Bandaríkin, aðallega 6,9 8,3
einkatryggingar 6,7 11,0
Kostnaður mældur í kaupmáttargildum á íbúa (purchas-
ing power parity) í OECD löndum 1996, mældur í doll-
urum á íbúa.
Norðurlönd, almannatr. 1400 1650
V-Evrópulönd, almannatr. og einkatr. 1676 2100
Sviss og Bandaríkin, aðallega einkatr. 1670 2900
Á Norðurlöndunum er ísland á svipuðum slóðum og
Svíþjóð og Finnland.
Niðurstöður OECD frá árinu 1990 eru svipaðar.
Health Data
Skrifstofa OECD í París
til landlæknisl998.
Þessar niðurstöður gefa vel til kynna að kostnaður er
mestur þar sem kerfið er rekið með ffjálsum tryggingum og
viðbótarkostnaðurinn leggst á herðar sjúklinga.
Skýringa er að leita til þess að hluthafar, sem reka fijáls
tryggingafélög, krefjast eðlilega arðs. Arðurinn skapast af
upphæð iðgjalda og gróðavonin ræður ferðinni. Reynslan af
rekstri frjálsra tryggingafélaga er að láglaunafólk, öryrkjar og
margt aldrað fólk hafa fæst efni á slíkum iðgjöldum, nema
tryggingafélagið sé ekki rekið á gróðagrunni (non-profit) eins
og t.d. Kaiserstofnunin í Bandaríkjunum.
Víða á Vesturlöndum hafa verið gerðir verktakasamningar
við einkaaðila um rekstur á sjúkrastofnunum, m.a. hjúkrunar-
deildum og ýmsum verkefnum sem ekki lúta beint að lækn-
ingum nema þá minniháttar göngudeildaraðgerðum, en kostn-
aður hefur aukist. Umræðan um einkarekstur hefur eflt mjög
kostnaðargreiningu og er það af hinu góða. Brýnt er að hið
opinbera búi það vel að almannatryggingum að unnt sé að
keppa á markaði um bestu starfskraftana. Þaðan koma frum-
legheitin og nýsköpunin í fræðunum. Fram kemur í skýrslunni
að þjóðir, sem semja við lækna og verktaka eftir afköstum
þeirra, báru hærri útgjöld en þjóðir er greiða lœknum aðallega
föst laun (ísland er í þessum hópi). Allar eiga þjóðimar við
biðlistavanda að striða nema vel tryggðir hópar. í löndum þar
sem samfélagstryggingin vegur þyngst er meira jafnræði
meðal þeirra er finnast á biðlistum en í einkarekstrarlöndum.
Lýðræðið stendur ekki undir nafni nema jafnræði ríki. Einka-
rekstrarmenn verða að leysa þennan vanda áður en þeir breyta
kerfinu. Ég bendi stjórn og ráðamönnum vorum vinsamlegast
á nýju norsku leiðina, þ.e. að auka útgjöld til heilbrigðismála,
aðallega til að stytta biðlista. Gamla niðurskurðarleiðin dugði
þegnum og fyrri stjórn illa og talið að langir biðlistar hafi haft
veraleg áhrif á síðustu kosningaúrslit, sbr. leiðara í norskum
dagblöðum.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 78. árg. 2002
113