Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Síða 51
Hólmfríður K. Gunnarsdóttir
sérfræðingur á rannsókna- og heilbrigðisdeild Vinnueftirlitsins
Kulnun í starfí
Föstudaginn 8. febrúar síðastliðinn gekkst Vinnueftirlitið fyrir
ráðstefnu um kulnun í starfi. Aðilar vinnumarkaðarins og lyfja-
fyrirtækið GlaxoSmithKline styrktu ráðstefnuna en aðalfyrir-
lesari var dr. Wilmar B. Schaufeli, prófessor í félags- og skipu-
lagssálffæði við háskólann í Utrecht í Hollandi. Svo virðist sem
áhugi á málefninu sé mikill því færri komust að en vildu á
ráðstefnuna sem haldin var í fyrirlestrasal Norræna hússins.
Fyrirlestur dr. Schaufelis bar heitið Kultmn: alvara eða
ímyndun. í útdrætti úr fyrirlestri hans, sem dreift var á ráð-
stefnunni en undirrituð þýddi, sagði m.a.: „Enda þótt einkenna
kulnunar hafi gætt á öllum tímum er orðið kulnun tiltölulega
nýtt af nálinni - enska orðið „burnout“ kom fyrst til fyrir um
það bil 25 árum. í upphafi var heilkenninu lýst ffemur
ónákvæmt og almennt en smám saman hafa menn orðið á eitt
sáttir um hvað einkenni kulnun: örmögnun, andleg firring
Brautskráning
2. febrúar 2002
BS-próf í hjúkrunarfræði frá
hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands
og lokaverkefni
Auðbjörg Reynisdóttir: Þroskamat - Denver If.
Guðný Margrét Sigurðardóttir: Reynsla kvenna af MS-
sjúkdómnum.
Harpa Lind Hilmarsdóttir: Mæðravemd fyrir verðandi
foreldra af erlendum uppruna.
Hildur Árnadóttir: Að hafa mörg jám í eldinum.
Heilsufar kvenna. Gmnnskólakennarar og hjúkrunar-
ffæðingar. Forprófun mælitækis.
Kristín Jóhannesdóttir: Aðgerðartengdur sársauki barna
á vökudeild: Könnun meðal hjúkmnarffæðinga og lækna.
Rósa Friðriksdóttir: Þýðing og forprófun á
vinleysiskvarða Becks.
Sigríður Lovísa Sigurðardóttir: Forprófun á
spumingalistanum Jnfertility reaction scale“. Upplifun
og líðan af árangurslausum glasaffjóvgunum.
(þ.e. missir áhuga, hollustu, eldmóðs) og minnkun starfsgetu.
Samkvæmt niðurstöðum rannsókna sem gerðar hafa verið
með sannprófuðum spurningalistum (Maslach Burnout Inven-
tory - MBI) er talið að 4% Hollendinga á atvinnumarkaðinum
séu haldnir alvarlegri starfskulnun, en 16% til viðbótar eru í
bráðri hættu. Svo virðist sem þeim sem vinna í heilsugæslu og
við kennslu sé sérstaklega hætt við kulnun. Til þess að fást við
kulnun í heilbrigðisþjónustunni hefur hollenska læknafélagið
gefið út opinberar leiðbeiningar fyrir lækna, sem sinna
atvinnuheilbrigði, og heimilislækna um það hvernig þeir eigi
að greina kulnun - með því að nota m.a. fyrrgreindan spurn-
ingalista. Þessar leiðbeiningar aðgreina þrjú mismunandi stig
vinnutengdrar streitu: leiða, ofálag og kulnun. Rannsóknir,
sem gerðar hafa verið á síðustu áratugum, hafa leitt í ljós að
margt getur valdið kulnun, svo sem of mikið vinnuálag,
tilfinningalegt álag, óljós hlutverk, vöntun á félagslegum
stuðningi og skortur á ákvörðunarrétti. Afleiðingar þessa geta
haft áhrif á einstaklinginn (depurð, sállíkamlegar kvartanir),
fyrirtækið eða stofnunina (þ.e. starfsmannaveltu, veikindafjar-
vistir og hollustu við fyrirtækið). Þegar gripið er til aðgerða til
að draga úr kulnun ættu þær að beinast að einstaklingnum
(þ.e. slökun, tímastjórnun, einstaklingsbundinni ráðgjöf) og að
fyrirtækinu eða stofnuninni (þ.e. gera störfin áhugaverðari,
bæta stjórnunina, lagfæra vinnutíma). Dr. Schaufeli sagði að
niðurstöður rannsókna bentu til þess að hægt sé að draga úr
einkennum kulnunar með einstaklingsmiðuðum aðgerðum
sem minnka streitu og hafa áhrif bæði á hugsun og hegðun.
Hópstarf, sem miðar að því að vinna gegn kulnun, virðist
einkum koma að gagni gegn aðaleinkenni kulnunar, þ.e.
örmögnun. Vísbendingar eru um að aðgerðir innan fyrirtækja
eða stofnana geti dregið úr veikindafjarvistum og skilað
þannig ijárhagslegum ábata.“
Aðrir fyrirlesarar á ráðstefnunni voru Guðbjörg Linda
Rafnsdóttir, félagsfræðingur, Bjarni Jónasson, heilsugæslu-
læknir, Guðlaug Teitsdóttir, skólastjóri, Þórður Óskarsson,
vinnusálffæðingur, Yrsa Þórðardóttir, framkvæmdastjóri, og
Kristinn Tómasson, yfirlæknir. Þau fjölluöu um kulnun frá
mismunandi sjónarhomum fræða og reynslu.
Óneitanlega vaknar grunur um að á tímum sameiningar og
mikils vinnuálags á heilbrigðisstofnunum hérlendis sé hætta á
kulnun yfirvofandi. Fólk þarf að vera vakandi fyrir líðan sinni
og leita sér aðstoðar áður en í óefni er komið. Ýmis ráð eru til
sem vel hafa dugað. Til frekari upplýsingar má benda á grein
eftir Kristin Tómasson, yfirlækni, á www. netdoktor.is.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 78. árg. 2002
hkg@ver.is
115