Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2003, Side 41

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2003, Side 41
PISTILL Hin hliöin - Sólveig Ólöf lllugadóttir lög í danslagakeppnir og árið 1999 fékk ég 3ju verðlaun fyrir tangóinn „I húmi nætur“ í dans- lagakeppni Ríkisútvarpsins og árs aldraðra sem fram fór á Broadway 21. nóvember. Ragnar Bjarnason söng en ljóðið gerði Jónas Friðrik Guðnason. Tvö önnur lög hafa verið í úrslitum á Sauðárkróki, þ.e. „Töfrar“ sungið af Helgu Möll- er og „Saknað vinar“ sungið af Jóhönnu Seljan, en hún er Mývetningur. A síðasta ári hefur verið unnið að upptökum á diskinum mínum „Töfrum“ sem kom út 1. júní sl. Á honum eru 8 frum- samin lög og 3 lög eftir aðra höfunda sem ég syng sjálf. Eg hef feng- ið þekkta hljóðfæra- leikara í lið með mér sem eru Magnús Kjart- ansson, sem stjórnar líka upptökum og út- setur, Vilhjálmur Guð- jónsson, Gunnlaugur Briem, Ásgeir Oskarsson, Kristján Edelstein og sjálf spila ég á píanó í tveimur lögum. Þetta hefur verið skemmtileg vinna og í bland við myndlistina gefur þetta lífinu mikið gildi. Ég hef verið heppin með söngvara á þessum diski. Jóhanna Seljan hefur stundað söngnám undan- Diskurinn töfrar farin ár en hún hefur hlotið þá guðsgjöf að hafa fallega rödd sem hrífur fólk. Einnig er Þor valdur Þorvaldsson í söngnámi og hann á ekki langt að sækja hæfileika sína þar sem faðir hans er Þorvaldur Halldórsson sem heillaði allar ungar stúlkur í Sjallanum hér áður. Sigrún Eva Ármannsdóttir er kunn fyrir söng sinn, hefur m.a. tekið þátt í Eurovisionkeppni fyrir hönd Islands. Sjálf söng ég með danshljómsveit sumarið 1960 en eftir að ég lærði klassískan söng kom ég fram sem einsöngvari og ein sér í kringum 1960 62. Sólveig þegar hún varviö nám í hjúkrunarfræði. Ég var 6 ára gömul þegar ég byrjaði að spila á hljóðfæri - gítar og orgel. Þá raddsetti ég lögin sjálf og söng með. Frá 10 ára aldri hef ég verið í kórum, m.a. Liljukórnum í Reykjavík und- ir stjórn Jóns Ásgeirssonar tónskálds. Tónlistin er minn fylgifiskur. Þegar ég mála set ég gjarnan plötu á fóninn og spila djass sem er f miklu uppáhaldi hjá mér. Ég held að ég mundi ekki lifa ef ég hefði ekki tónlist til að hlusta á. Ég vona að þeir sem hlusta á diskinn minn eigi eftir að hafa ánægju af . Netfangið mitt er solveig@fanndal.is og heimasíðan www.fanndal.is. Eiginmaður minn er Birkir Fann- dal Haraldsson frá Húsavík og eigum við 5 uppkomin börn og 7 barnabörn. Sérlyfjatexti Seretide Seretide Diskus GlaxoSmithKline, R 03 AK 06 R.B Innúðaduft (duft f afmældum skömmtum til innúöunar meö Diskus-tæki). Hver afmældur skammtur inniheldur: Salmeterolum INN, xinafóat 72,5 míkróg samsvarandi Salmeterolum INN 50 míkróg og Fluticasonum INN, própiónat 100 mikróg, 250 mikróg eöa 500 mikróg. Ábendingar: Seretide er ætlaö til samfelldrar meöferöar gegn teppu i öndunarvegi, sem getur gengiö til baka, þ.m.t. astma hjá börnum og fullorönum, þar sem samsett meöferö (berkjuvikkandi lyfs og barkstera til innöndunar) á viö s.s.: Hjá sjúklingum sem svara viðhaldsmeöferö meö langvirkandi berkjuvikkandi lyfjum og barksterum til innöndunar. Hjá sjúklingum sem hafa cinkenni þrátt fyrir aö nota barkstera til innöndunar. Hjá sjúklingum á berkjuvikkandi meöferö, sem þurfa barkstera til innöndunar. Skammtar og lyfjagjöf: Lyfiö ereingöngu ætlaö til innöndunar um munn. Ráölagöirskammtar fyrir fulloröna og börn eldri rn 12ára:Einn skammtur (50 mikróg+100 míkróg, 50 mikróg+250 mikróg eða 50 míkróg+500 mikróg) tvisvar á dag. Sérstakirsjúklingahópar. Ekki þarf aö breyta skömmtum hjá öldruöum eöa sjúklingum meö skerta nýrna- eöa lifrarstarfsemi. Skammtastœröir handa börnum 4 ára og eldri: Einn skammtur (50 mikróg salmeteról og 100 míkróg flútíkasónprópiónat) tvisvar á dag. Ekki eru til upplýsingar um notkun lyfsins hjá börnum yngri en 4 ára. Frábendingar: Þekkt ofnæmi gegn einhverjum af innihaldsefnum lyfsins. Varnaöarorö og varúöarreglur: Meöferö á teppu i öndunarvegi, sem getur gengiö til baka, ætti venjulega aö fylgja áfangaáætlun og svörun sjúklings ætti aö meta út frá klinískum einkennum og lungnaprófum. Lyfiö er ekki ætlaö til meöhöndlunar á bráðum einkennum. í slikum tilfellum ætti aö nota stuttverkandi berkjuvikkandi lyf (t.d. salbútamól) sem sjúklingar ættu ávallt aö hafa viö höndina. Milliverkanir: Jafnvel þótt lítiö finnist af lyfinu í blóöi er ekki hægt aö útiloka milliverkanir viö önnur efni sem bindast CYP 3A4. Foröast ber notkun bæöi sérhæföra og ósérhæföra betablokka hjá sjúklingum meö teppu í öndunarvegi, sem getur gengiö til baka, nema aö þörfin fyrir þá sé mjög brýn. Meöganga og brjóstagjöf: Notkun lyfja hjá þunguöum konum og hjá konum meö barn á brjósti ætti einungis aö ihuga þegar væntanlegur hagur fyrir móöur er meiri en hugsanleg áhætta fyrir fóstur eöa barn. Þaö er takmörkuö reynsla af notkun á salmeterólxinafóati og flútíkasónprópiónati á meögöngu og viö brjóstagjöf hjá konum. Viö notkun hjá þunguöum konum skal ávallt nota minnsta virka skammt. Aukaverkanir: Þar sem lyfiö inniheldur salmeteról og flútikasónprópiónat má búast viö aukaverkunum af sömu gerö og vægi og af hvoru lyfinu fyrir sig. Ekki eru nein tilfelli frekari aukaverkana þegar lyfin eru gefin samtlmis. Hæsi/raddtruflun, erting i hálsi, höfuöverkur, sveppasýking I munni og hálsi og hjartsláttarónot sáust hjá 1-2% sjúklinga við klinískar rannsóknir. Eftirtaldar aukaverkanir hafa veriö tengdar notkun salmeteróls eöa flútikasón- própiónats: Salmeteról: Lyfjafræöilcgar aukaverkanir beta-2-örvandi efna, svo sem skjálfti, hjartsláttarónot og höfuöverkur hafa komiö fram, en hafa yfirleitt veriö timabundnar og minnkaö við áframhaldandi meöferö. Algengar (>1%): Hjarta- og œOakerfi: Hjartsláttarónot, hraötaktur. MiOtaugakerfi: Höfuöverkjur. StoOkcrfi: Skjálfti, vöövakrampi. Sjaldgæfar(<0,1%): Almennar: Ofnæmisviöbrögð, þ.m.t, bjúgur og ofsabjúgur (angioedema). Hjarta-og œOakeríi: Hjartsláttaróregla t.d. gáttatif (atrial fibrillation), gáttahraötaktur og aukaslög. HúO: Ofsakláöi, útbrot Efnaskifti: Kaliumskortur í blóöi. StoOkerfí: /jöverkjir, vöðvaþrautir. Flútikasónprópiónat Algengar{>1%): Almennar. Hæsi og sveppasýking i munni og hálsi. Sjaldgæfar(<0,1%): HúO: Ofnæmisviöbrögöum i húö. Öndunarvegur. Berkjukrampi. Hægt er aö minnka likurnar á hæsi og sveppasýkingum meö þvi að skola munninn meö vatni eftir notkun lyfsins. Einkenni sveppasýkingar er hægt aö meöhöndla meö staðbundinni sveppalyfjameöferö samtimis notkun innöndunarlyfsins. Eins og hjá öörum innöndunarlyfjum getur óvæntur berkjusamdráttur átt sér staö meö skyndilega auknu surgi eftir innöndun lyfsins. Þetta þarf aö meöhöndla strax meö skjót- og stuttverkandi berkjuvikkandi lyfi til innöndunar. Hætta veröur notkun strax, ástand sjúklings skal metiö og hefja aöra meöferö, ef þörf krefur. Pakkningar og verö: Diskus - tæki. Innúöaduft 50 mikróg + 100 mikróg/skammt: 60 skammtar x 1, 60 skammtar x 3. Innúöaduft 50 mikróg + 250 mikróg/skammt: 60 skammtar x 1, 60 skammtar x 3. Innúöaduft 50 mikróg + 500 mikróg/skammt: 60 skammtar x 1. 60 skammtar x 3. Seretide 50/100: 6.008 krónur, Seretide 50/250: 7.532 krónur, Seretide 50/500:10.045 krónur. 01.03.02 Tilvitnun 1: KR Chapman, N Ringdal 8t al. Caa Respir. J. 1999; 6(1): 45-51. Tilvitnun 2: G Shapiro £t al„ Am. J, Respir. CritCare Med. 2000; 161:527-534. m ClaxoSmithKline Tímarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 79. árg. 2003

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.