Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2003, Blaðsíða 55

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2003, Blaðsíða 55
BREF FRA LESENDUM Krafa um lækkun skattlagningar ávöxtunarhluta lífeyrisgreiöslna fyrir dómi Margir hjúkrunarfræöingar búa viö lélegar lífeyrisgreiöslur og má þá vera aö þeir hafi áhuga á eftirfarandi efni Einn af félagsmönnum Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni hefur stefnt ríkinu vegna skattlagningar lífeyrisgreiöslna. Stjórn FEB fól lögmanni félagsins, Jónasi Þór Guö- mundssyni hdl., aö annast málareksturinn. Máliö var þingfest í Fléraðsdómi Reykjavíkur 22. október 2002 en um prófmál er aö ræða. Ólafur Ólafsson í stefnunni er þess kraf- ist að álagning tekju- skatts á stefnanda árið 2002 vegna tekjuársins 2001 verði felld úr gildi en með henni voru líf- eyrisgreiðslur hans skatt- Iagðar með almennu tekjuskattshlutfalli, þ.e. 38,78% skatti, og á það bæði við um inngreidd iðgjöld og uppsafnaða vexti. Skv. lögum um fjár- magnstekjuskatt frá 1996 skal hins vegar greiða 10% skatt af öllum öðrum fjármagnstekjum en vöxtum af iðgjöldum í lífeyrissjóðum, s.s. vöxt- um, arði, leigu og söluhagnaði. Byggt er á því, í fyrsta lagi að mismunandi skatt- prósenta á samkynja tekjur, þ.e. fjármagnstekjur, feli í sér mismunun sem ekki fái staðist nema málefnaleg sjónarmið liggi henni að baki. Slík aðgreining mismuni stefnanda en honum hafi verið lögskylt að greiða í lífeyrissjóð. I öðru lagi að skattareglurnar mismuni stefnanda vegna þess að áður en öllum varð skylt að greiða hluta launa sinna í lífeyrissjóð, hafi aðrir en launþegar getað lagt fyrir til efri áranna með t.d. fjárfestingu í hlutabréfum. Stefnandi, sem hafi verið launþegi, hafi ekki haft þetta val. Hann standi nú frammi fyrir því að greiða skuli 10% skatt af öllum fjármagnstekjum öðrum en ávöxtunarhluta lífeyrisgreiðslna. Því er haldið fram að þessi mismunun brjóti gegn jafnræðis- reglu 65. gr. og eignarréttarákvæði 72. gr. stjórnarskrárinnar svo og 1. gr. I. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. 14. gr. sáttmálans, sem var lögtekinn hér á landi með lögum 62/1994, enda séu skattareglurnar ekki reistar á neinum mál- efnalegum sjónarmiðum sem réttlætt geti þessa mismunun. Samkvæmt útreikningum tryggingastærðfræðings, sem eru lagðir fram í málinu, námu uppsafnaðir vextir og verðbætur 81% af útborguðum lífeyri stefnanda árið 2001. Ef fallist verður á sjónarmið stefnanda ættu skattgreiðslur hans að lækka um 33% vegna tekna á árinu 2001. I dag er staðan sú að ríkið skilaði greinargerð af sinni hálfu í janúar sl. og nú er beðið eftir því að dómari ákveði hvenær munnlegur málflutningur fari fram. Krafa um gjafsókn var samþykkt. Reykjavtk, 3. mars 2003. Olafur Ólafsson formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Frábær á grillið www.ostur.is íslenskir ostar - hreinasta afbragð Tímarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 79. árg. 2003 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.