Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2003, Side 53

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2003, Side 53
FRETTAMOLAR... Höfundarnir greindu ýmis þemu í skilaboðunum og flokkuðu þau í tvennt. Fyrri flokkurinn lýsir hvað sjúklingurinn upplifði: nærveru einhvers sem var látinn; þörf fyrir að búa sig undir ferða- lag eða breytingu; skynjun á einhverjum stað sem hann einn gat séð; vitund um hvenær and- látsstundin myndi renna upp. Seinni flokkurinn sýndi þörf sjúklinganna fyrir eitthvað eða ein- hvern sem var nauðsynlegur fyrir friðsælt andlát; löngun til að ná sáttum í útistandandi málefn- um, hvort sem var í persónulegum samskiptum við aðra eða í andlegum efnum; og beiðni um að fjarlægja þá veggi sem komu í veg fyrir að sjúk- lingurinn fengi frið. Höfundarnir kalla þessi skilaboð „vitund um and- látsnálgun" (nearing death awareness). I því felst að dauðvona einstaklingur hefur sérstaka þekk- ingu um andlátsferlið og stundum stjórn á því. Tilraunir hins dauðvona einstaklings til að lýsa því sem hann skynjar geta farið fram hjá okkur, verið misskildar eða hunsaðar. Höfundar leggja á- herslu á að hjúkrunarfræðingar hlusti með eyrum, huga og hjarta á það sem sjúklingurinn segir, hvort sem það hljómar sem rugl eða ekki. Það getur hjálpað okkur að hjálpa aðstandendum að búa sig undir andlát ástvinar að skilja mikil- vægar vísbendingar sjúklingsins. Það að sjúkling- urinn finnur að við skiljum (eða reynum að skilja) hvað hann er að reyna að tjá, getur létt á angist hans. Höfundarnir líta svo á að hlutverk hjúkrun- arfræðingsins sé að kenna vinum og fjölskyldu hins deyjandi einstaklings að hlusta, skilja og bregðast við skilaboðum hans á viðeigandi hátt. Fréttir frá öldungadeild Á vegum deildarinnar komu fimm stjórnarmenn frá samtökum danskra ellilífeyrisþega ínnan danska hjúkrunarfélagsins hingaö í heimsókn í júní. Deildin haföi veg og vanda af heimsókninni en hún átti gott sam- starf viö danska félaga og hefur sótt þær heim. AA-fundir hjúkrunarfræöinga M-fundir hjúkrunarfræöinga eru haldnir annan fimmtudag hvers mánaöar kl. 17.00 í AA-húsinu (Gula húsinu), Tjarnargötu 20, B-sal. Alþjóöadagur hjúkrunarfræðinga 12. maí i tilefni dagsins boðaöi Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga til opins fundar um HABL (heilkenni alvarlegrar bráöalungnabólgu) á Grand hóteli við Sigtún í Reykjavík. Herdís Sveinsdóttir, formaöur Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga ávarpaði fundinn og síðan voru haldin þrjú framsöguerindi. Hugrún Ríkarösdóttir, smitsjúk- dómalæknir á LSH, fjallaði um birtingu HABL, viöbrögð og hofur, Sigríöur Antonsdóttir, hjúkrúnardeildarstjóri sýkinga- varnadeildar LSH, um smitleiðir og smitgát og Berglind Mikaels- dóttir, hjúkrunarfræðingurá LSH, um hjúkrun sjúklinga meö HABL. Eftir kaffi voru síðan umræður og fyrirspurnum svaraö. Fundinum var varpað út á land meö fjarfundabúnaöi til eftirtalinna staöa og var miöað viö einn fundarstað í umdæmi hverrar svæðis- deildar; Fræöslumiðstöðvar Vestfjaröa, Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki, Heilbrigöisstofnunar Suöurnesja, Heilbrigöisstofnunar Austurlands, á Egilsstöðum, Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, Fræöslunets Suöurlands, Rannsóknarseturs Vestmannaeyja og Grunnskólans í Stykkishólmi. í bókinni eru mörg dæmi um samskipti höfunda við sjúklinga með vitund um andlátsnálgun, og höfundar gefa dæmi um hvernig hægt er að reyna að nálgast það sem sjúklingurinn er að reyna að tjá. Fundurinn var mjög vel sóttur og lýstu fundarmenn ánægju sinni meö það aö félagið skyldi bregöast svo skjótt viö og bjóða upp á fræöslu- fund um efnið. Þeim sem ekki sóttu fundinn er bent á aö á vefsíðu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, www.hjukrun.is, er að finna glærur framsögumanna. Þessi bók minnir okkur hjúkrunarfræðinga á að hlusta á allt sem sjúklingur segir okkur með opn- um huga. Sjúklingur, sem á ekki langt eftir, getur gefið mikilvægar vísbendingar með orðum eða orðalaust, vísbendingar sem geta hjálpað okkur að styðja sjúklinginn og hans nánustu enn frekar. Magnetsjúkrahús Sjúkrahús í breytilegu umhverfi. Málþing um stjórnskipulag og gæði þjónustu verður haldið á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi, 14. ágúst n.k., sjá www.landspitali.is Final Gifts M. Callanan og P. Kelley Bantam Books, 1993 Timarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 79. árg. 2003

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.