Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2003, Qupperneq 57

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2003, Qupperneq 57
! r FSMCIUIISPtUU ipitnuMáuii Heilsugæsla - Sjúkrahús Hjúkrunarfræöingar Á St.Franciskusspítalann í Stykkishólmi, sjúkrasviö, óskast hjúkrunarfræöingar til starfa frá 1.9.2003 eöa eftir nánara samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi FÍH og SFS. Spítalinn er almennt sjúkrahús en auk þess er rekin viö spítalann sérhæfð þjónusta við greiningu og meðferð vegna bak- og hálsvandamála. Á spítal- anum eru 42 rúm og þjónar hann rúm- lega 5000 manns. Um er að ræða tví- skiptar vaktir, morgun- og kvöldvaktir auk bakvakta, frí er aðra hverja helgi. Unniö er með skráningu hjúkrunar sam- kvæmt tilmælum Landlæknisembættis- ins. Skipulagsform hjúkrunar er ein- staklingshæft og hóphjúkrun fer eftir sjúklingahópum. Fleiri spennandi við- fangsefni eru til að takast á viö eftir aðstæðum hverju sinni. Nánari upplýsingar veita hjúkrunarforstjóri sjúkrasviðs, Margrét Thorlacius (margret@sfs.is), deildarstjóri, Hrafnhildur Jónsdóttir (hrafnhildur@sfs.is) eða framkvæmdastjóri, Róbert Jörgensen (robert@sfs.is), í síma 433-2000. Skógarbær, hjúkrunarheimiii, óskar eftir hjúkrunarfræöingi til starfa á kvöld- og helgarvaktir. Nánari upplýsingar um Skógarbæ á heimasíðunni www.skogar.is og hjá Rannveigu Guðnadóttur, hjúkrunar- forstjóra, í síma 510 2100. FRÉTTAMOLAR... Félag islenskra hjúkrunarfræðinga er aðili að nýrri bókunarmiðstöð sem sett var upp fyrir sjóði og félög innan BHM og tók til starfa í byrjun árs 2003. Bókunarmiðstöðin er staðsett hjá SPRON. Gerður var samstarfssamn- ingur milli BHM og SPRON annars vegar um innheimtu og færslu fé- lagsgjalda og DK-hugbúnaðar hins vegar um smíði á tölvukerfi fýrir þessa starfsemi. Öll bókun iðgjalda félagsins fer því fram hjá fyrirtækjaþjónustu SPRON frá og með síöustu áramótum. Þetta er algerlega ný þjónusta hjá SPRON og var hún sett á laggirnar að ósk BHM og aðlildarfélaga. í samningnum, sem gerður var við SPRON um innheimtu og færslu á skilagreinunum, er kveðið á um að SPRON muni, auk þess að taka á móti greiðslum og bóka skilagreinar vegna iðgjalda, senda út tvær ít- rekanirtil launagreiðenda ef greiðsla vegna iögjalda hefur ekki borist. Ákveðið var að fara í samstarf við sjóöi BHM og aöildarfélög innan BHM um kaup á nýju tölvukerfi fyrir félagið ásamt því að stofna bók- unarmiöstöö sem sæi um alla bókun og afstemmingar vegna iðgjalda. Þetta var ákveðiö vegna þess hagræðis sem af því hlýst að taka þátt í magnkaupum. í stað þess aö vera eitt um kaup á tölvukerfi kaupir fé- lagið aöeins hluta í kerfi. Skoöaöir voru möguleikarnir á því að setja upp bókunarmiðstöð innan BHM en þar sem þaö þótti mun óhagkvæmara og dýrara en að fá SPRON til að taka aö sér verkið var ákveðið að semja við SPRON um þessa þjónustu. Ástæða þess aö fariö var út í þessar breytingar er að gamla tölvukerfiö var orðið mjög þungt í vöfum og búið var að bæta viö þaö svo mikilli sérsmíði að öll þjónusta við kerfið var orðin mjög dýr. Kerfið var orðið gamalt, var barn síns tíma og fullnægði ekki þeim kröfum sem gerðar eru til tölvukerfa í dag. Þær breytingar, sem veröa viö að taka í notkun nýja tölvukerfið frá DK- hugbúnaði, eru að iögjöldin eru nú bókuö á kennitölur og auðvelt er því að fletta upp og sjá hvort skilað hafi veriö inn gjöldum fyrir ákveðinn aðila. Áöur þurfti að fletta því upp í möppum eftir mánuðum. í nýja bókunarkerfinu er skilagrein ekki bókuö nema greiösla vegna hennar hafi borist og stemmi við skilagreinina. Þetta auðveldar allar afstemm- ingar og eftirfylgni á greiðslum frá vinnuveitendum verður mun skil- virkari. Nýja tölvukerfið auðveldar einnig vinnu við úthlutun úr sjóöum félags- ins og allt utanumhald vegna þeirra. Nýtt félagskerfi, sem er hluti af nýja hugbúnaðinum, er beintengt við þjóöskrá, þegar félagsmaður breytir heimilisfangi sínu í þjóöskrá kemur breytingin inn í kerfið svo að endursendingar vegna breytts heimilisfangs ættu að vera nánast úr SÖgunnL Ingunn Sigurgeirsdóttir Tímarit islenskra hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 79. árg. 2003

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.