Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Qupperneq 17

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Qupperneq 17
VIÐTAL Fagdeild endurhæfingar- hjúkrunarfræöinga Silvía Ingibergsdóttir, Þórdís Ingólfsdóttir, Lára M. Siguröardóttir og Hulda Sigurlína Þóröardóttir ann. Hugmyndafræðin byggir á hugsun náttúru- lækningamanna sem áttu sér viðhorfið: „Við ber- um ábyrgð á eigin heilsu.“ I dag, nánast 50 árum siðar, er þetta almennt viðurkennt lífsviðhorf. Það þykir mér einna merkilegast við stofnunina. Mér þykir einnig mjög merkilegt að sá sem stofnaði heilsuhælið á sínum tfma, Jónas Krist- jánsson, innleiddi þar mataræði sem í stórum dráttum er enn á borðum, að vísu hefur fiski ver- ið bætt á matseðilinn." Varðandi þjónustuna sagði Sigurlína: „Við sinn- um framhaldsendurhæfingu margvíslegri, svo sem við vefjagigt, slitgigt, viðhaldsendurhæfingu hjartasjúklinga og krabbameinssjúklinga bæði eftir aðgerðir og geislameðferð. Reyndar fáum við einnig fólk beint af sjúkrahúsum eftir lið- skiptaaðgerðir og erum að jafnaði með tíu slíka á hvorri deild. Þetta fólk gæti farið beint heim til sín með einhverri aðstoð. Sambandið við sjúkra- húsin er gott og við tökum sjúklingana svo til strax eftir útskrift þaðan. Innlögn er flóknara ferli í öðrum tilfellum.“ Allir sem njóta þjónustu í Hveragerði greiða sjálf- ir hluta kostnaðarins. Hann er mismunandi eftir gæðum aðstöðunnar eða 1.700 til 3.000 kr. á sól- arhring. Það er um 20-25% af heildarkostnaði. Til viðbótar ofangreindu hefur Heilsustofnunin í Hveragerði sinnt forvarnastarfi af ýmsu tagi. Þar hafa verið haldin námskeið í því skyni að hætta að reykja, megrunarhópar hafa fengið þar inni, auk þess að fólk getur kúplað sig frá erfiðleikum í lífinu með innlögn í Hveragerði þegar allt virð- ist vera að hrynja í kringum það. Sigurlína sagði i að vaxandi þörf væri fyrir þessa þjónustu og fyrirbyggjandi starf ekki síður mikilvægt til að koma í veg fyrir sjúkdóma. Þyngsta deildin, frumendurhæfingin Þórdís Ingólfsdóttir er sviðsstjóri hjúkrunar á endurhæfingar- sviði Landspítala-háskólasjúkrahúss. Hún tók við stöðunni 1. okt, 2000. Á Grensásdeild hefur hún starfað allt frá 1981 sem hjúkrunarfræðingur, deildarstjóri og í ýmsum sérverk- efnum. Hún sagði: „Grensásdeild á sér 30 ára sögu. Þar er Iegudeildarþjónusta endurhæfingarsviðsins. Á Grensási eru tvær legudeildir, báðar 24 rúma. Onnur er með 24 rúm, hin 14 rúm og 10 rúma dagdeild. Á 14 rúma deildinni eru fyrst og fremst sjúklingar sem hafa fengið heilablóðfall. Þeir koma frá taugalækningadeild Landspítalans og í framhaldi af því í end- urhæfingu til okkar. 24 rúma deildin er blönduð endurhæfingardeild. Þar er meðal annars eina mænuskaðaeiningin sem sinnir frumendur- hæfingu hérlendis. Þar eru einnig þeir sem skaðast á heila af völdum slysa eða sjúkdóma. Þá eru eftir liðskiptaaðgerðirnar en til okkar koma fyrst og fremst þeir sem gengur verst með í og eftir aðgerð. Þar eru einnig þeir sem hafa misst neðri útlimi. Reykjalundur tekur við þeim sem hafa misst efri útlimi. Enn fremur koma til okk- ar einstaklingar sem hafa verið lengi á legudeildum spítal- anna, bæði skurð- og lyfjadeildum, og þurfa almenna upp- byggingu. Einnig kemur fólk eftir stórar skurðaðgerðir, þar með taldir krabbameinssjúklingar. Við sinnum fyrst og fremst þessari þungu frumendurhæfingu,“ sagði Þórdís. Um 80 manns vinna á Grensásdeild, þar af eru 25 stöðugildi hjúkrunarfræðinga. - Er þessi deild ekki þung í rekstri? „Jú, hún getur verið svolítið þung. Umönnun er mikil, t.d. koma sjúklingarnir mjög fljótt eftir bílslys eða strax á tíunda degi. Það Tímarit íslenskra hjúkrunarfræðinga 4. tbl. 79. árg. 2003

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.