Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Blaðsíða 27
Fréttamolar...
stuðningi og fræðslu en fræðsla fer einnig fram í
hópum. Hjúkrunarfræðingur veitir viðtöl reglu-
lega eftir þörfum hvers og eins. Hjúkrunarfræð-
ingur veitir einnig hugræna atferlismeðferð í
samráði við sálfræðing teymisins. Álgengt er að
; skjólstæðingar þurfi að breyta lífsstíl sínum frá
því sem áður var í lífsstíl hins vinnandi manns og
j þá eru þau hjúkrunarviðfangsefni, sem talin eru
hér að ofan, mjög mikilvæg.
Bækur og bæklingar
Lyfjastofnun vill vekja athygli á þvi aö Sérlyfjaskrá 2002-2003 er kom-
in út. Ákveðiö var að minnka umfang bókarinnar og fækka köflum til
birtingar í bókinni en um leið er unnið að því að birta öll SPC (Summary
of Product Characteristics eöa samantekt á eiginleikum lyfs) fyrir sérlyf
sem eru á markaði á íslandi á heimasiðu Lyfjastofnunar (www-
lyfjastofnun.is).
í bókinni er verð við hverja pakkningu lyfsins. i lok hvers kafla er
dagsetning sem gefur upplýsingar um þaö hvenær kaflanum var síðast
breytt. Bókin er 1824 bis. og eru í henni upplýsingar um öll sérlyf sem
buið var að markaðssetja fyrir 1. mars 2003.
Hjúkrunarfræðingur situr teymisfundi þar sem
lagt er mat á stöðu hvers skjólstæðings og fram-
haldið ákveðið. Markmiðsfundir með hverjum og
einum eru mikilvægir og nýtast skjólstæðingum
og meðferðaraðilum vel við að stilla saman
strengi sína. Skipulagning innra starfs er mikil-
vægur þáttur í teymisvinnu og þar er mikil þró-
unarvinna unnin þannig að árangur megi verða
sem mestur af endurhæfingunni.
Árangur af starfsendurhæfingu
Alls hafa 104 einstaklingar farið í starfsendur-
hæfingu frá upphafi. Við árangursmælingar hef-
ur komið fram að færri hafa farið til vinnu en
j vonir stóðu til í upphafi. Ástæðuna fyrir því telj-
um við vera að þeir sem til okkar komu voru
búnir að vera of lengi frá vinnu. Rannsóknir hafa
sýnt að því lengur sem fólk er frá vinnu þeim
mun minni líkur eru á að það snúi aftur til
vinnu. I samtölum 3 og 6 mánuðum eftir með-
j ferð hefur komið fram að skjólstæðingar okkar
telja sig hafa haft gagn af endurhæfingunni í
bættri líðan andlega og líkamlega.
j Starf starfsendurhæfingar er í stöðugri þróun til
að fleiri skili sér í skóla eða út á vinnumarkaðinn.
Mín skoðun er sú að starf hjúkrunarfræðings í
starfsendurhæfingu sé bæði spennandi og krefj-
andi. Samvinna við aðra teymisaðila er í senn
árangurs- og lærdómsrík og eykur víðsýni.
Athugasemd
í síðasta tölublaði birtist vinnuverndarpistill eftir
Hólmfríði Gunnarsdóttur. Þegar pistillinn var
skrifaður lá fyrir Alþingi breytingartillögur á lögum
nr. 46 frá 1980 um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum sem höfðu tekið gildi þegar
pistillinn birtist. Hólmfríður og lesendur eru beðin
velvirðingar á þessu.
Bókin er seld hjá Bóksölu stúdenta við Hringbraut.
Bæklingur um brjóstagjöf
Bæklingurinn „Brjóstagjöf, ánægjulegur tími fyrir
þig og barniö þitt" er kominn út. Höfundur er
brjóstagjafarráðgjafi og hefur hann verið þýddur á
fjölmörg tungumál, nú einnig á íslensku. í bækl-
ingnum er fjallað um brjóstagjöf, brjóstgjafa-
stellingar, brjóstgjafarvandamál og ýmislegt annað
er varöar þetta efni. S
Bæklingurinn er ókeypis og mun liggja frammi i Brjóstagjöf
Móðurást, Þumalínu og öllum apótekum og lyfja-
verslunum um allt land. Bæklingnum verður einnig
dreift til allra heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa.
Guðrún Jónasdóttir, brjóstagjafarráðgjafi IBCLC hjá Móðurást, þýddi
bæklinginn og Arnheiður Sigurðardóttir hjá Ýmus ehf. stóö fyrir útgáfu
hans. Bæklingurinn er litprentaður og er 42 síöur.
Norrænir hjúkrunarstjórnendur í heimsókn
Föstudaginn 5. september sóttu norrænir hjúkrunarstjórnendur heim
skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fræddust um starf-
semina. Hjúkrunarstjórnendur á Norðurlöndunum, íslandi, Danmörku,
Noregi og Svíþjóö, hafa með sérsamstarf, LNN (Ledernes Netverk i Nor-
den). Tilgangurinn með samstarfinu er að miöla þekkingu og reynslu og
hafa áhrif á þróun stjórnunar á Norðurlöndum og heilbrigöismál á
Norðurlöndum og í heiminum öllum. Þeir fóru einnig á Barnaspítala
Hringsins og fræddust um starfsemina þar, fengu fyrirlestra um heilsu-
gæsluna í Reykjavík, uppbygginguna og starfsemina i heild.
Laugardaginn 6. september
hittust formenn deildanna, sem
jafnframt mynda framkvæmda-
nefnd fyrir ráðstefnu í Kaup-
mannahöfn sem haldin verður 3.
og 4. maí 2004, til að skipuleggja
ráðstefnuna. Yfirskrift þeirrar
ráðstefnu er „Pulsen i nordisk
sygeplejeledelse". Ráðstefnur eru
haldnar á tveggja ára fresti, til
skiptis á Norðurlöndunum. Á þessum ráöstefnum eru fluttir tveir fyrir-
lestrar frá hverju landi. Ráöstefna verður haldin hér á landi 2006.