Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Blaðsíða 44
Sigríöur Hafberg
AF ERLENDUM VETTVANGI
Hjúkrunarfræöingur
í háloftunum
Ahuginn á hinum stóra heimi hefur alltaf verið mikill í mín-
um huga rétt eins og áhuginn á öllu því sem mannlegt er. Allt
frá því ég hóf nám í hjúkrun hef ég að mestu unnið á geðdeild
og því óneitanlega kynnst ýmsum hliðum
mannlífsins. Eftir stóðu alltaf spurningar í
kollinum á mér eins og: Hvernig lifir fólk í
fjarlægum löndum? Hvernig býr það,
hvernig er menningin, trúarbrögðin, matar-
ræðið? Hvernig þætti mér að dvelja erlend-
is? Til að reyna að svara þessum spurning-
um ákvað ég að sækja um starf sem flug-
freyja hjá Atlanta..
Haustið 2000 sótti ég um starfið og var kölluð í viðtal. Eftir
viðtalið tók við 6 vikna námskeið og eftir það fóru hlutirnir að
gerast. I byrjun árs 2001 fór ég í fyrsta skiptið til Saudi-
Arabfu því fram undan var pílagrímaflug. Mekka er í Saudi-
Arabíu og þangað koma milljónir manna á ári hverju til að fara
í sína pílagrímsferð sem er æðsti draumur múslima. Til lands-
ins kemur fólk hvaðanæva úr heiminum og felst pílagrímaflug
einmitt í því að sækja fólk, flytja það til Saudi-Arabíu og svo
aftur til síns heima þegar það hefur lokið sínum helgiathöfn-
um.
Sigríður Hafberg
Lífið í Saudi-Arabíu er mjög frábrugðið því sem við eigum að
venjast hér á Fróni. Ut á götu fer kvenmaður ekki nema í-
klæddur svörtum, síðum, víðum, serk, svokallaðri abaju og
með slæðu á höfði til að hylja hár sitt. Innfæddar hylja oftast
einnig andlit sitt og jafnvel hendur. Augun eru því oft það
eina sem maður sér af konunni en þó ekki einu sinni alltaf.
Það getur nú reyndar verið ágætt að hafa bara einn klæðnað,
ekki þarf að hugsa í hvað skal fara né hafa áhyggjur af einu
eða tveimur aukakílóum né heldur hárgreiðslunni.
Ekki má ég vera með karlmanni opinberlega, t.d. úti á götu,
nema hann sé bróðir minn, faðir eða eiginmaður og eins gott
er að hafa hjúskaparvottorðið tiltækt því annars gæti maður
lent í vandræðum.
Innfæddir karlmenn klæðast flestir síðum, hvítum kjólum og
eru með köflóttan klút á höfði.
Frá þvi í janúar 2001 hefur Sigriður ýmist unnið sem flugfreyja
eða hjúkrunarfræðingur
Atvinna er í höndum karlmanna í landinu. Þeir
afgreiða í stórmörkuðum, snyrtivöruverslunum,
undirfataverslunum, alls staðar þar sem við
erum vön að kvenmenn sjái um störfin. Vinnu-
afl er líka að mestu innflutt, m.a. frá Pakistan og
Bangladesh.
Það getur tekið talsvert á að vera kona í þessu
landi. Konur mega ekki keyra, á veitingahúsum
eru sérstök fjölskyldusvæði sem eru lokuð af,
annars staðar megum við ekki borða. A hótelum
í landinu mega konur yfirleitt ekki nota sund-
laugar eða líkamsrækt nema í undantekningartil-
fellum stuttan tíma á degi hverjum.
En áfangastaðirnir eru margvíslegir og tækifærin
til að sjá fjölbreytileika mannlífsins eru mörg.
Staðir, sem ég hafði áður aðeins heyrt um í frétt-
um eða jafnvel aldrei heyrt um hvað þá heldur
dreymt um að koma á, hef ég nú heimsótt. Ég
42
Tímarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 79. árg. 2003