Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Qupperneq 48
46
w
Uthlutað úr B-hluta vísindasjóðs og minningarsjóðum
Hans Adólfs Hjartarsonar og Kristínar Thoroddsen
Úthlutað hefur verið úr B-hluta vísindasjóðs. Styrki fengu: Anna Ólafía
Sigurðardóttir og Sigrún Þóroddsdóttir til að vinna verkefnið Áhrif
fræðslu- og stuðningsmeöferðar á aðlögun foreldra sem eiga barn með
krabbamein; Anna Stefánsdóttir og Hrafn Óli Sigurðsson til að vinna
rannsókn á atvinnuþátttöku hjúkrunarfræðinga sem útskrifuðust frá
1991-2001; Arna Skúladóttir vegna rannsóknar á tengslum dagsvefns
hjá börnum við svefnvandamál þeirra; Bylgja Kærnested vegna verkefn-
is um meistaranám og Dröfn Kristmundsdóttir til að vinna verkefnið
Upplifun hjúkrunarfræðinga af starfi sínu viö geðhjúkrun. Eflandi og
bugandi þættir; Elfa Dröfn Ingólfsdóttirog Guðbjörg Pétursdóttir vegna
verkefnisins Mat á breytingum á upplifun á andnauð viö endurhæfingu
sjúklinga með langvinna lungnateppu; Eygló Ingadóttir til verkefnisins
Símenntun á netinu: Hentar vefrænt Ijarnámskeið hjúkrunarfræðing-
um?; Elísabet Guðmundsdóttir, Unnur Heba Steingrímsdóttir, Linda
Kristmundsdóttir, Helga Jörgensdóttir og Sólveig Guölaugsdóttir til ár-
angursmælingar innan hjúkrunar á göngudeild barna- og unglingadeild-
argeðsviðs LSH (BUGL); Guðrún Jónsdóttirog Lovísa Baldursdóttirtil aö
vinna verkefniö Óvæntar endurinnlagnir á gjörgæsludeild Landspitala-
Hringbraut; framsæ, lýsandi rannsókn; Guörún Jónsdóttir til að vinna
verkefni um sérhæfða heimahjúkrun fyrir skjólstæöinga með langvinna
lungnasjúkdóma; Halla Grétarsdóttir vegna verkefnis um reykleysismeð-
ferö á Heilsustofnun NLFÍ; Herdís Jónasdóttir vegna verkefnisins
Narratives of patient experiences of communication with health care
providers during the chemotherapy period: A hermenutic reflective stu-
dy; Hrafn Óli Sigurðsson og Lilja Stefánsdóttir vegna rannsóknar á yfir-
færslugildi stjórnendastaöla í hjúkrun milli menningar-
svæöa; Hrafn Óli Sigurðsson og Birna G. Flygenring
vegna verkefnis um algengi þess og ástæður að hjúkrun-
arfræðingar hættu starfi hjá LSH á árunum 2000-2002;
Katrin Blöndal vegna verkefnis um reynslu hjúkrunar-
fræðinga af því að annast sjúklinga meö verki; Ingibjörg
K. Stefánsdóttir til að rannsaka heilsutengda hegðun 18-
24 ára ungmenna á íslandi; Ragnheiður Ósk Erlendsdótt-
ir vegna verkefnis um innleiðingu á stefnumiðuðu ár-
angursmati á Barnaspítala Hringsins; Sigrún Sæmunds-
dóttir til að kanna upplifun einstaklinga sem misst hafa
ástvin vegna krabbameins; Steinunn Gunnlaugsdóttir
vegna verkefnisinsThe lived experience of being a parent
of child with severe mental health problems: A phen-
omenological study; Þóra Jenný Gunnarsdóttir vegna
könnunar á möguleikum svæðanudds til að draga úr
kvíða og verkjum hjá sjúklingum sem gangast undir
hjartaaðgerð á Landspitala-háskólasjúkrahúsi og Þor-
björg Sóley Ingadóttir til verkefnisins Að vera háður
tækni til öndunaraðstoðar í svefni: Reynsla sjúklinga og
fjölskyldna þeirra. Alls var úthlutað rúmum 6 milljónum.
Auk þess fengu Bergþóra Reynisdóttir, Bylgja Kærnested
og Þóra Jenný Gunnarsdóttir styrki úr minningarsjóði
Hans Adólfs Hjartarsonar og Herdís Jónasdóttir fékk
styrk úr sjóði Kristínar Thoroddsen.
IHjúkrunarfræðingar!
í október fagnar Liðsinni 2 ára afmæli. Við kynnum nú nýtt merki
fyrirtækisins og nýja heimasíðu, www.lidsinni.is
I liXHMNI
Ásamt frábærum hjúkrunarfræðingum sem starfa hjá Liðsinni
höfum við markvisst unnið að uppbyggingu fyrirtækisins sem hefur
skilað fjölda hjúkrunarfræðinga nýjum tækifærum í hjúkrun og
veitt fjölbreyttum hugmyndum þeirra farveg.
Liðsinni óskar eftir fleiri hjúkrunarfræðingum til starfa
við fjölbreytt verkefni. Starfsreynsla og fagleg hæfni _
I
eru skilyrði, sem og góðir samskiptahæfileikar og !
I
sveigjanleiki. Við bjóðum spennandi starfsvettvang !
I
og góð laun. !
I
LIÐSINNI |
i
Liðsinni ehf. Kringlunni 7, 103 Reykjavik
sími: 533 6300, info @lidsinni.is, www.lidsinni.is