Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2004, Síða 51
FRÁ FÉLAGINU
Atvinnutorg hjúkrunarfræðinga
i I 3
<
:-h r*
J
á
Forttta 23/9/2004
Kiaramai Hjúkrunar- og dvalarhelmui
SljfliCfv. Fih Hjúkrunarfraeðifvjur fitkait.
Orbltsiúðuf Heira...
Fféttr 7/10/2004
Stvflir oq iMx Ráðstsfnur Landtpitall HAtkólatjúkrahút hjúkrunarfrseðjnflur 4 tkiiunardeild 13-8 Helri...
T imorit ti»ikrunarfr»ðri9a 23/9/2004
EnoAth ntörmaton Mjukrunjr- og dvatarhelmlll
Helra...
IPI 7/10/2004 LandtpKall Hitkólatjúkrahút Hjúkrunarfraeðrngur 4 tkiiunareeild 13-B Helra...
2004 23/9/2004
hjúkrunarfraeðirqur ótkatl. Helra...
7/10/2004 Landtpítali Hóikólatjúkrahút júkrunarfraeðmgur i tkliunardcUd 13-8 Helra...
s M þ h r F
1
3 4 5 6 g 8
10 11 12 13 14 1S 16
17 18 19 20 21 22 23
24 2S 26 27 28 29
félao Itienskra rnúknjraríraeainM SuðuriaivKaraat 22 108 Revmavik 540-6400 wufcaitvBmiufcruMt
Atvinnutorg hjúkrunarfræðinga
Atvinnutorg hjúkrunarfræðinga, sem sett var
upp á vefsvæði Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga í sumar, virðist gefa góða raun. 18
stofnanir og fyrirtæki hafa nú beinan aðgang
að bókunarkerfi Atvinnutorgs hjúkrunarfræð-
inga og geta sett inn atvinnuauglýsingar sem
birtast á vefsvæði félagsins.
Forstöðumenn hafa tjáð vefumsjón F.í.h. að
góð svörun sé við auglýsingum sem birtast á
Atvinnutorgi hjúkrunarfræðinga og jafnvel að það
sé það eina sem hefur komið að notum í sumar.
I hverri viku síðustu 6 vikurnar hafa um 130 aðil-
ar skoðað auglýsingayfirlit Atvinnutorgs hjúkr-
unarfræðinga. Enn vantar nokkuð upp á að
stofnanir og fyrirtæki beini auglýsingum sínum
á Atvinnutorgið, en þó hafa auglýsingar þeirra
stofnana, sem þegar hafa aðgang að torginu, verið
álíka margar og auglýsingará Starfatorgi fjármála-
ráðuneytisins þar sem þessum sömu stofnunum
er skylt að birta atvinnuauglýsingar.
Eftirfarandi. fyrirtæki og stofnanir höfðu fengið aðgang til
birta auglýsingar á Atvinnutorgi hjúkrunarfræðinga 1. október
síðastliðinn:
Alhjúkrun
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Hjallatún
Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
Heilbrigðisstofnunin, Blönduósi
Heilbrigðisstofnunin, Isafjarðarbæ
Heilbrigðisstofnunin, Sauðárkróki
Heilsugæslan í Kópavogi
Heilsugæslan á Seltjarnarnesi
Heilsugæslustöðin á Dalvík
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Klausturhólar
Holtsbúð
Landspítali-háskólasjúkrahús
Seljahlíð, heimili aldraðra
Uppsalir, dvalar- og hjúkrunarheimili
í september voru gerðar 46.800 uppflettingar á
vefsvæði félagsins í 6.100 heimsóknum á vef-
svæðið. Þessi fjöldi heimsókna hlýtur að vera
örvandi fyrir stofnanir og fyrirtæki sem auglýsa á
Atvinnutorgi hjúkrunarfræðinga.
Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 80. árg. 2004
49