Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2004, Síða 54

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2004, Síða 54
Ritstjórnarstefna og starfsáætlun ritnefndar Tímarit hjúkrunarfræðinga er gefiö út fimm sinnum á ári. Tímaritiö er málgagn félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og í því er reynt að endurspegla ólíkar skoðanir og viðhorf til hjúkrunar. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leggur metnað sinn í að allir félagsmenn þess finni þar efni sér til gagns, fróðleiks og ánægju. Tímaritið ervettvangurfræðilegrar og félagslegrar umfjöllunar um hjúkr- un. í faglega hluta tímaritsins eru birtar margvíslegar greinar sem fjalla um öll svið hjúkrunar. Greinar flokkast i tvennt, annars vegar fræðigrein- ar og hins vegar fræðslugreinar. Fræðigreinar eru rannsóknagreinar, yfirlitsgreinar og greinar sem á ýtarlegan hátt fjalla um þróun þekkingar í hjúkrun, hvort heldur sem er hjúkrunarstarfið, hjúkrunarstjórnun, hjúkr- unarkennslu, hjúkrunarrannsóknir eða stefnumótun í hjúkrunar- og heil- brigðisþjónustunni. Lögð er áhersla á beitingu margvíslegra rannsókn- araðferða, fjölbreytileika í fræðilegri nálgun viðfangsefna og vönduð vinnubrögð. Flægt er að óska eftir að fræðigreinar verði ritrýndar. Við umfjöllun greina, sem óskaö hefur veriö eftir aö verði ritrýndar, fylgir ritnefnd reglum sem fram koma í Handbók sálfræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson og gefið var út af Sálfræð- ingafélagi íslands í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ýtarlegar leiðbeiningar um hvernig skrifa eigi handrit aö fræöilegum tímarits- greinum. í handbókinni er einnig að finna upplýsingar um vinnulag við umfjöllun á handriti sem óskað hefur verið eftir að sé ritrýnt og fylgir ritnefnd þeim leiðbeiningum. Höfundar þurfa að fylgja þessum reglum í hvívetna en eru hvattir til að ráðfæra sig við ritnefnd ef þörf er á að víkja frá settum reglum. í örfáum atriðum víkur ritnefnd frá leiöbeiningum Handbókar sálfræði- ritsins. Þau eru: Höfundar fá ekki sérprentaðar tímaritsgreinar sínar en fá aukaeintök af viöeigandi timariti. Til að auðvelda flokkun efnis skulu fylgja með greinum þrjú lykilorð. í handbókinni er megináhersla á megindlegar rannsóknir, einkum tilraunir. Tímarit hjúkrunarfræðinga bindur sig hins vegar ekki viö megindlegar rannsóknir og er fengur að greinum þar sem margvíslegri aðferðafræði er beitt. á að fræðigreinar standist vísindalegar kröfur. Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess öðru en aðsendum greinum. Höfundar aösendra greina bera ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir, sem í þeim birtast, þurfa ekki að samrýmast stefnu Félags islenskra hjúkrun-: arfræðinga. Leiöbeiningar til höfunda tímaritsgreina Tímaritsgreinar eru sendartil Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, Suðurlandsbraut 22,108 Reykjavík. Ef höfund- ar eru tveir eða fleiri þarf einn þeirra að vera ábyrgur fyrir samskiptum við tímaritið og nafn hans þarf að koma fram í bréfi sem sent er með handritinu. Frágangur handrits Við ritun greina þurfa höfundar að styðjast við Handbók sálfræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson sem gefin var út af Sálfræðingafélagi íslands í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ýtarlegar leið- beiningar um hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum tímaritsgreinum. Á forsíöu handritsins þarf aö koma fram heiti tímarits- greinarinnar; nafn/nöfn höfundar/höfunda; vinnustað- ur/vinnustaðir höfunda(r); heimilisfang og símanúmer þess höfundar sem er ábyrgur fyrir samskiptum við tímaritið. Útdráttur, sem er á annarri blaðsíðu, á að vera 100-150 orð. Lengd tímaritsgreinar skal vera 3000-5000 orð. Hand- ritið í heild sinni ásamt texta, myndum, töflum o.s.frv. skal vera með tvöföldu línubili. Öll handrit skulu send inn í þremur eintökum sem ekki eru með nafni höfund- a(r). Handrit skulu ekki hafa birst annars staðar þegar óskað er eftir því að þau séu ritrýnd. Fræðslugreinar fjalla hins vegar um margvísleg viöfangsefni hjúkrunar og byggjast að einhverju leyti á fræöilegum heimildum ásamt athugun- um eða reynslu höfunda. Þar skiptir miklu frumleiki í umfjöllun og efnis- tökum, menningarlegur margbreytileiki í hjúkrun og þróun hjúkrunar. í blaðinu er einnig að finna viðtöl við fólk um hjúkrun og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga. í félagslega hluta timaritsins eða fréttahlutanum ergreintfrá kjaramál- um og því sem er að gerast hjá félaginu. Þar er einnig aö finna fréttir frá svæðanefndum félagsins. Einnig er greint frá þvi helsta sem er á döfinni hjá fagdeildum félagsins. Útgáfuferli Þegar handrit berst til ritstjóra er haft samband við þann höfund sem er ábyrgur fyrir samskiptum við ritstjóra og honum tilkynnt skriflega að greinin hafi borist. Þegar óskaö er eftir birtingu greinar lesa fulltrúar í ritnefnd handritiö og ákveða hvort það verður sent til umsagnar. Stuðst er við þau viðmið sem fram koma í Handbók sál- fræðiritsins viö mat á tímaritsgreinum. Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur tímaritsins sé í samræmi við ritstjórnarstefnu þess. Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metnað í að tímaritið sé vandað að því er varðar efni, málfar og útlit. Áhersla er lögð Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 80. árg. 2004

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.