Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Page 8
Lilja Þórunn Þorgeirsdóttir, Elva Dögg Valsdóttir, Þórey Rósa Einarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Hlín Árnadóttir,
Kolbrún Sara Larsen, Kristín Þórhallsdóttir og Halldóra Ögmundsdóttir Miohelsen, Ith7@hi.is
í fyrravor fóru 8 hjúkrunarnemar í hjálparstarf til Kenía. Þetta var
mikil lífsreynsla fyrir ungar konur. Þær hafa svo haldið tengslunum
við Kenía og hafa meðal annars verið að safna fyrir sjúkrabíl sem nú
hefur verið keyptur í nafni þeirra sem styrktu nemana til fararinnar.
HJUKRUN I KENIA
Á myndinni eru frá vinstri Elva Dögg, Hlín, Kristín, Lilja Þórunn, Kolbrún, Þórey, Helga og Halldóra
Margir eiga sér þann draum að fara út
fyrir landsteinana á framandi stað og
hugsanlega gera eitthvað sem skiptir
máli. Haustið 2006 myndaðist hópur
hjúkrunarfræðinema á 2. ári, allt konur,
sem áttu sér þennan draum. Ef einhver
spyr okkur hvernig þetta ævintýri hafi
hafist verður lítið um svör. Við vitum
eiginlega ekki alveg hvað dró okkur
saman í þetta verkefni því við þekktumst
ekki mikið áður. Einhvern veginn kom
þetta samt til og okkur er minnistætt
kvöldið þegar við hittumst á kaffihúsi
í miðbænum og létum okkur dreyma
um framandi lönd þar sem við gætum
nýtt þekkingu okkar úr náminu. Þetta
kvöld var ferðin óraunverulegur draumur
sveipaður ævintýrablæ og grunaði okkur
ekki hvert þessi kvöldstund myndi leiða
okkur. Þó leið ekki langur tími þar til 4
Kenía kom til umræðu og þegar verkefnið
var fundið varð draumurinn raunverulegri.
Það dróst nokkuð að fá svar að utan
um að við mættum koma og vorum
við orðnar nokkuð vonlausar um að af
ferðinni yrði þegar svarið kom í janúar.
Við höfðum ákveðið að fara út beint
6
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008