Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Side 12
Margrét Guðmundsdóttir, mgumm@internet.is
Saga hjúkrunar á íslandi II
HÚSNÆÐI OG EINKALÍF
Tímarit hjúkrunarfræðinga birtir hér útdrátt úr væntanlegri bók um sögu
hjúkrunar á Islandi. I þetta sinn er fjallað um húsnæði og aðbúnað
hjúkrunarkvenna á fyrri helmingi síðustu aldar.
Skipulögö barátta fyrir bættum kjörum
hjúkrunarkvenna hér á landi hófst um
miðjan þriðja áratug nýliðinnar aldar.
Kjarabaráttan snerist ekki eingöngu
um að fjölga aurunum í buddum þeirra
heldur um vinnutíma, veikindaréttindi,
eftirlaun og ýmis hlunnindi svo fátt eitt
sé nefnt. í kaflanum, sem fylgir hér á
eftir dálítið styttur, verður sjónum hins
vegar beint að húsnæði og einkalífi
þeirra hjúkrunarkvenna sem störfuðu á
sjúkrahúsum eða hælum.
Hjúkrunarkonur, sem störfuðu á
sjúkrastofnunum, áttu þar einnig heimili
en þær sem unnu við heimahjúkrun
eða sinntu heilsuverndarstörfum urðu
sjálfar að útvega sér húsnæði. Herbergi
hjúkrunarkvenna voru oft við sjúkradeildir
eða á rishæð. Þau voru jafnan lítil og
erfitt að koma fyrir einföldum húsbúnaði.
Sigríður Eiríksdóttir lýsti þessum
vistarverum í tímaritsgrein árið 1939 á
eftirfarandi hátt:
íbúðum hjúkrunarkvenna við sjúkrahús á
íslandi hefir ávallt verið mjög ábótavant,
þar sem aldrei hefir verið hugsað
fyrir herbergjum fyrir þær öðruvísi en
að dreifa þeim um deildirnar á milli
sjúkrastofa, eða í námunda við þær.
Þessi herbergi, þar sem tæplega má
hreyfa sig í eftir kl. 8 á kvöldin, verða
síðan einu heimili hjúkrunarkvennanna
um lengri eða skemmri tíma, stundum
ævilangt (Sign'ður Eiríksdóttir, 1939).
Þrengslin á sjúkrastofnunum landsins
komu niður á þeim aðbúnaði sem
hjúkrunarkonum var boðið upp
á. Á fjórða áratugnum var ekki alltaf
unnt að tryggja þeim sérherbergi en
sjúkrahús voru einnig undirmönnuð
vegna skorts á húsnæði fyrir starfsfólk
(Margrét Guðmundsdóttir, handrit).
Gróa Guðjónsdóttir, yfirhjúkrunarkona á
Seyðisfirði, lýsti vandamálinu í hnotskurn
í ársbyrjun 1936. „Eins og sjúkrahúsið nú
er, er ekki hægt að bæta við starfsfólki
vegna rúmleysis, því jafnvel eins og nú
er, þá er húsið of lítið til að hægt sé
að hafa þau þægindi er nú á tímum
þykja sjálfsögð" (FÍH B/3. Bréf Gróu
Guðjónsdóttur, dags. 9. mars 1936).
Landsmenn gerðu ekki miklar kröfur um
húsakynni á fyrstu áratugum 20. aldar.
Sérherbergi var munaður sem fæstir nutu
fyrr en á fullorðinsárum og margir kynntust
aldrei af eigin raun. Hjúkrunarkonur gerðu
því sáralitlar kröfur til þess húsnæðis sem
þeim var skammtað.
Við getum litið í stutta heimsókn til
Soffíu Ásgeirsdóttur, yfirhjúkrunarkonu
á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Hún átti
raunar ekki gott með að taka á móti
gestum því frítíminn var takmarkaður,
húsnæðið lítið og launin lág. Þegar Soffía
kom til starfa við sjúkrahúsið árið 1926
hafði hún 1000 krónur í árslaun og
kvittaði mánaðarlega fyrir útborguðum 83
krónum og 33 aurum. Þann 1. júní 1927
voru laun Soffíu hækkuð í 100 krónur á
mánuði. Hún hafði auk þess sérherbergi á
sjúkrahúsinu og frítt fæði (HSK. Reikningur
sjúkrahússins 1926-1928). Við skulum
nú reka nefið inn í vistarveru Soffíu á
Sauðárkróki og virða fyrir okkur aðbúnað
yfirhjúkrunarkonu í Skagafirði í lok þriðja
áratugarins. í herberginu var trérúm,
borð með borðdúk, stóll, kommóða,
þvottaborð með marmaraplötu, spegill,
fjórar nótnabækur og orgel. Hljóðfærið
var eflaust frekt til plássins en ekki er
Ijóst hvort yfirhjúkrunarkonan gat spilað
sér og öðrum til ánægju. Húsbúnaður
Jóna Guömundsdóttir yfirhjúkrunarkona í sólinni
fyrir utan spítalann í Laugarnesi. Myndin er fengin
frá Ljósmyndasafni ísafjarðar
í herberginu var metinn á 93 krónur
fyrir utan orgelið en það var virt á 950
krónur (HSK. Skrá yfir innanstokksmuni
sjúkrahússins). í ársbyrjun 1933 var Soffía
farin að svipast um eftir öðru starfi enda
taldi hún engan „frama eða framtíðarveg"
að vinna áfram við sjúkrahúsið. „Ég
vil ekki vera hér,“ skrifaði hún Sigríði
Eiríksdóttur, „þeir þykjast góðir og mikið
meira en það að borga hjúkrunarkonu
125 kr. pr. mán." (FÍH B/2 2. Bréf Soffíu
Ásgeirsdóttur, dags. 10. janúar 1933).
Jóna Guðmundsdóttir, yfirhjúkrunarkona á
ísafirði, var búin að starfa við sjúkrahúsið í 13
10
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008