Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Side 17
í Bosníu 1999
að settur hefur verið björgunarbúnaður
með bakbretti og hálskraga á alla
áætlunarflugvelli. Slíkur búnaður nýtist
ekki bara í flugslysum heldur líka við
slys og veikindi fólks á einungruðum
stöðum, eins og Gjögri eða í Grímsey.
Ef slys verði á þessum stöðum geta liðið
1-2 klukkustundir þar til aðstoð berst.
Ef ekki er flugfært þá er siglingatíminn
frá Dalvík til Grímseyjar tii dæmis um
þrjár klukkutímar og gæti þurft að spelka
brot og gefa verkjalyf á meðan. Þetta vill
gjarnan gleymast þegar flugslysaáætlanir
eru búnar til.
Flugslysaæfing í Kosovo
í maí og nóvember 2006 fór Bára til
Kosovo á vegum Flugmálastjórnar
íslands. Þetta voru ekki fyrstu heimsóknir
Báru til Kosovo, hún dvaldi þar í þrjá
mánuði veturinn 2002. Flugmálastjórn,
sem nú heitir Fiugstoðir ohf., ber ábyrgð
á rekstri flugvallarins í Pristina, þar með
töldum öryggismálum flugvallarins.
Til þess að flugvöllurinn gæti fengið
alþjóðlega vottun þurfti að fara yfir og
bæta ýmis öryggisatriði út af viðbrögðum
við flygslysum og þjálfun viðbragðsaðila.
Hlutverk Báru var meðal annars að fara
yfir hópslysaáætlun flugvallarins og skrifa
aðgerðaáætlun sem svo var fylgt eftir af
Flugstoðum.
í maí var haldin flugsiysaæfing þar sem 100
manna slys var sett á svið og æfð viðbrögð
lækna og hjúkrunarfræðinga sem eru á
vakt á flugvellinurm. í nóvember var haldin
önnur æfing sem lögreglan og sveitir úr her
Kosovo-Albana tóku einnig þátt í.
FRÉTTAPUNKTUR
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Quo vadis?
MÁLÞING
9. apríl kl. 13-16
Suðurlandsbraut 22, Reykjavík
Ritnefnd Tímarits hjúkrunarfræð-
inga efnir til málþings um tfmaritið
og hvert hjúkrunarfræðingar
vilja stefna með það. Elsa B.
Friðfinnsdóttir, formaður FÍH, setur
málþingið en þar verður fjallað um
tímaritið í fortíð og verður fjallað
um tímaritið í nútíð og fortíð og
fengnir til þess ritstjórar sem starfa
eða hafa starfað við tímaritið.
Síðan mun formaður ritnefndar,
próf. Sigríður Halldórsdóttir, og for-
maður ritstjórnar ritrýndra greina,
próf. Herdís Sveinsdóttir, vera með
innlegg um framtíð tímaritsins.
Gefið verður gott tækifæri til
umræðna um innihald og útlit,
íslensk hjúkrunarfræðiorð og fleiri
efni.
Allir félagsmenn, sem áhuga hafa
á tímaritinu og einstökum þáttum
sem því tengjast, eru hvattir til
að mæta. Þátttaka tilkynnist á
hjukrun@hjukrun.is eða í síma
540-6400 fyrir 1. apríl nk.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008
15