Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Síða 21
FRETTAPUNKTUR
Þórey, Ágústa og Arnfríöur frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins
hlusta á fyrirspurnir
Ágústa H. Gísladóttir, deildarstjóri Iffeyrisdeildar og kynningar-
mála, tók svo við og fór nánar yfir reglur A-deildar, hvernig réttindi
eru áunnin og hvernig staðið er að útborgun. Starfslok í A-deild
eru sveigjanleg frá 60 ára aldri hægt er að taka út lífeyri en samt
vinna áfram, en það er ekki hægt í Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga.
Kjör örorku-, maka- og barnalífeyris eru betri í A-deild LSR.
Arnfríður Einarsdóttir, deildarstjóri iðgjaldadeildar, upplýsti
fundarmenn um iðgjaldsgreiðslur og reglur í sambandi við
úttekt. Greitt er iðgjald af grunnlaunum, persónuuppbót og
orlofsgreiðslum en ekki af yfirvinnu. Hjúkrunarfræðingar, sem
vinna hlutastarf og taka svo aukavaktir upp í 100% vinnu,
borga þannig minna í lífeyrissjóð en þeir sem vinna fulla vinnu.
Einstaklingur greiðir iðgjald í hámark 32 ár, eftir það þarf hann
ekki að greiða iðgjald en heldur áfram að ávinna sér lífeyrisrétt,
þó ekki eins mörg stig og sá sem greiðir iðgjald.
Lífeyristökualdur er almennt 65 ára en í gildi er 95 ára regla sem
þýðir að einstaklingur getur hafið töku lífeyris 60 ára ef lífaldur og
greiðslutími nær samtals 95 árum. Þessi regla er þó á leiðinni út
og fyrir þá sem eru fæddir eftir 1941 gildir aðlögunarregla sem
smám saman hækkar aldurinn þar sem hægt er að hefja töku
fulls lífeyris upp í 65 ára.
í lok fundar var gefinn kostur á að koma með fyrirspurnir. Þær
voru margar og áhugaverðar og var reynt að svara eftir megni
þó að sumar fyrirspurnirnar væru mjög sérhæfðar. Fundarmenn
voru hvattir til þess að hafa samband við ráðgjafa LSR til þess að
undirbúa lífeyristöku og finna út bestu leiðirnar. Hægt er að nota
reiknivél á heimasíðu LSR, www.lsr.is, eða senda netfyrispurn
á lsr@lsr.is. Hægt er líka að senda almennar fyrirspurnir á
hjukrun@hjúkrun.is og verða þær flokkaðar og framsendar.
Samnorrænt gæðasamstarf í hjúkrun
Stjórn Samvinnnu hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum
(SSN) skipaði í ágúst 2006 starfshóp um gæðavísa
í hjúkrun með fulltrúum hjúkrunarfélaganna sex.
Hlutverk starfshópsins er að kanna stöðu gæðamála
í hjúkrun í þessum löndum með það fyrir augum að
ákveða hvaða gæðavísar tengjast hjúkrun beint og
mætti velja sem sameiginleg og sambærileg viðmið
fyrir gæði hjúkrunar á Norðurlöndum. Vinnuhópurinn
hefur fundað þrisvar og átt mjög gott samstarf en þó
má nefna að fulltrúi frá finnska hjúkrunarfélaginu hefur
ekki séð sér fært að mæta á fundina enn sem komið
er. Það er miður því vitað er að mikil gróska er í faglegu
starfi hjúkrunarfræðinga í Finnlandi. Vinnuhópurinn
hefur einnig fylgst með vinnu vinnuhóps á vegum
Norrænu ráðherranefndarinnar um gæðaviðmið í
heilbrigðisþjónustu á Norðurlöndum en í tengslum við
vinnu hans eru þrír íslenskir hjúkrunarfræðingar. Sá
vinnuhópur hefur skilað af sér lokaskýrslu og í henni
kemur fram að sameiginlegir gæðavísar fyrir hjúkrun
á Norðurlöndum séu ekki tiltækir eins og staðan er í
dag.
Niðurstaða vinnuhópsins á vegum SSN er sú að
skoða skuli sérstaklega eftirtalda gæðavísa með það
í huga að koma upp sameiginlegum gagnagrunni fyrir
einhvern þeirra eða alla. Þeir eru: föll, þrýstingssár,
næring, verkir og mönnun í hjúkrun.
Ákveðið hefur verið að efna til ráðstefnu eða vinnufundar
í janúar 2008 meðal lykilaðila í hjúkrun á þessum sviðum
til að farayfirog berasaman þekkingu og reynslu í hverju
landi er viðkemur áðurnefndum gæðavísum. Fulltrúar
norska (starfsmaður vinnuhópsins), danska og sænska
hjúkrunarfélagsins sjá um undirbúning ráðstefnunnar
í samvinnu við aðra í vinnuhópnum. Fulltrúi Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga í vinnuhópnum er Ágústa
Benný Herbertsdóttir, gæðastjóri á lyflækningasviði I
á Landspítala.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008
19