Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Blaðsíða 22
Jón Aðalbjörn Jónsson, jon.a.jonsson@gmail.com
ORKUBLUNDUR
Undanfarið hefur í auknum mæli borið á umræðum um þörfina fyrir
hvíld á næturvaktinni. I nágrannalöndum okkar hefur umræðan náð
lengra og m.a. í Danmörku hefur Dansk sygeplejerád (DSR) (danska
hjúkrunarfélagið) gefið út leiðbeiningar um hvernig best sé að koma því
við að hjúkrunarfræðingar fái sér orkublund á næturvaktinni.
Með sanni má segja að þau viðmið,
sem þar eru sett, eigi einnig við um
íslenska hjúkrunarfræðinga, ekki síst í
Ijósi þess að vinnuvika þeirra er lengri
en danskra hjúkrunarfræðinga. Eftir að
hafa sjálfur starfað í vinnuumhverfi þar
sem í gildi er heimild starfsmanna til
að fá sér orkublund er ég þess fullviss
að slíkt fyrirkomulag á einnig fullan
rétt á sér á íslenskum stofnunum. Þó
bætt frammistaða og árvekni á vaktinni
ættu ein og sér að vera næg rök fyrir
stjórnendur til að leita eftir samkomulagi
við starfsmenn um orkublundi, verður
einnig að leggja áherslu á heilsuspillandi
áhrif vaktavinnu en það álit fær stuðning
af mati International Agency for Research
on Cancer sem stofnunin sendi frá sér í
fréttatilkynningu í desember 2007. Þar
kemur fram að vaktavinna, sem truflar
sólarhringssveifluna í líkamanum auki að
öllum líkindum hættu á brjóstakrabba-
meini. Þessi niðurstaða hefur m.a. í
Danmörku haft þau áhrif að danska
vinnueftirlitið hvetur einstaklinga, sem
hafa fengið brjóstakrabbamein jafnframt
því að hafa unnið á næturvöktum í
áraraðir, til að tilkynna sjúkdóminn til
vinnueftirlitsins því hann sé hugsanlega
starfstengdur og bótaskyldur. DSR hefur
leitað eftir samstarfi við vinnuveitendur
um leiðir til að draga úr næturvinnu.
Orkublundur er fyrirfram-
skipulagður svefntími í hálfa
klukkustund
Við hjúkrunarfræðingar vinnum vaktavinnu
og þar með iðulega næturvinnu. Mannfólkið
er hins vegar þannig skapað að það er
fyrst og fremst vakandi og virkt á daginn
en sofandi og óvirkt á næturnar. Að
Orkublundur
Góö ráð til
næturvaktarinnar
breyta þessu mynstri hefur í för með sér
truflun á líkamsklukku okkar. Við getum af
þessum sökum átt erfitt með að sofna eftir
næturvakt og auk þess átt erfitt með að
halda okkur vakandi á vaktinni. Það sækir
að okkur svefnhöfgi á nóttinni, einkum
út af tvennu: við erum vakandi þegar við
ættum í raun að vera sofandi og okkur
vantar svefn fyrir vaktina.
Vaktavinnuskipulag leggur á herðar
stjórnenda sem og hjúkrunarfræðinganna
ábyrgð sem felst í því að skipuleggja
vaktir þannig að eftir fremsta megni sé
tekið tillit til þess hvernig allra mest hvíld
næst milli vakta. Rannsóknir sýna að
best er að vinna með klukkunni þannig
að sem lengstur hvíldartími náist milli
vakta. Þegar unnið er eftir klukkunni
er farið af morgunvakt yfir á kvöldvakt
næsta dag, af kvöldvakt yfir á næturvakt
og af næturvakt á svefndag og á eftir
honum koma 2 til 3 frídagar.
Orkublundur á næturvaktinni hefur það
markmið að draga úr fjölda samhangandi
klukkustunda í vökuástandi. Hann er
þáttur f að tryggja að við séum vakandi
og árvökul þegar við eigum að vera að
vinna. Blundur á næturvaktinni er bestur
þegar hann er viðbótarsvefn og honum
er ekki ætlað að koma í stað svefnsins
heima. Orkublundur á jafnframt að vera
stuttur svo djúpur svefn náist ekki.
Hann á að fara fram á viðeigandi tíma
af því að líkamsklukka okkar hefur áhrif
á það hvort við getum sofið. Það hefur
sýnt sig að best er að taka sér blund
á næturnar milli klukkan 3 og 6. Til að
komast hjá vökutregðu (doða eða móki)
eftir blundinn þarf að tímasetja hann vel
áður en syfja gerir vart við sig og þörf er
fyrir lengri svefn. Hjúkrunarfræðingurinn
þarf að vera meðvitaður um að jafnvel
eftir 15 til 20 mínútur mun hann finna
fyrir vökutregðu. Eftir nægan svefn
varir ástandið í fáeinar mínútur en sé
maður vansvefta varir doðinn lengur.
Með smá-leikfimi til að koma blóðrás og
vöðvum í gang er hægt að vinna gegn
vökutregðu.
Það ætti að vera viðeigandi herbergi
eða umhverfi fyrir orkublundi á
hverjum vaktavinnustað. Kröfurnar
til slíkrar aðstöðu eru að þar þurfi að
vera þægilegt, myrkt og hljótt. Fjöldi
vinnustaða á dönskum sjúkrahúsum er
búinn nuddstólum þar sem starfsmenn
fara og taka sér vinnuhlé og orkublundi.
Slíkir stólar eru ódýr lausn til að bæta
vinnuumhverfi starfsfólks.
Mat á orkublundi hefur farið fram á fjölda
vinnustaða. Niðurstöður þeirra sýna að:
20
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 1. tbl. 84. árg. 2008