Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Qupperneq 28
Christer Magnusson, ohrister@hjukrun.is
SVIPMYNDIR FRÁ HJÚKRUN 2007
Hjúkrun 2007 - ráðstefna um rannsóknir í hjúkrun
var haldin 22. og 23. nóvember sl. Tilgangur
ráðstefnunnar var að endurspegla nýjustu þekkingu
í hjúkrunarfræði og hjúkrunarrannsóknum á íslandi.
Ráðstefnan var nú haldin í sjötta sinn og er síðan
2002 samstarfsverkefni hjúkrunarfræðideildar Háskóla
íslands, heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri og
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Herdís Sveinsdóttir ráðstefnustjóri
(t.h.) var sjálf bæði með veggspjöld
og fyrirlestra á ráðstefnunni
Elsa Friöfinnsdóttir, formaður FÍH,
setti ráðstefnuna og ráðstefnustjóri
var Herdís Sveinsdóttir, prófessor
við hjúkrunarfræðideild og formaður
undirbúningsnefndar.
Guðlaugur Þór Þórðarsson heilbrigðis-
ráðherra ávarpaði ráðstefnuna. Hann
kom víða við í ávarpi sínu og sagði meðal
annars að heilbrigði þjóðanna krefðist
nýrrar hugsunar og hann hefði komið af
stað metnaðarfullri stefnumótunarvinnu.
íslendingar veita 10% af vergum þjóðar-
tekjum í heilbrigðismál og er það
mikilvægt að þessu fé sé ráðstafað rétt.
Hann boðaði aukna áherslu á forvarnir
og nefndi sem dæmi að offita barna og
þunglyndi væru vandamál sem þyrfti
að bregðast enn betur við. Þá ræddi
hann um breytingar á rekstrarformi í
heilbrigðiskerfinu og þau tækifæri sem
skapast við það, bæði atvinnutækifæri
og tækifæri til nýsköpunar og nýrrar
hugsunar. Að lokum lýsti hann vilja sínum
til frekara samstarfs við hjúkrunarfræðinga
um heilbrigðismál.
Fyrri gestafyrirlesari var dr. Helga Sif
Friðjónsdóttir, lektor við hjúkrunarfræðideild
HÍ. Hún fjallaði um ofneyslu áfengis meðal
unglinga á framhaldsskólastigi og lagði
sérstaka áherslu á forvarnastarf og hvernig
unnið er að forvörnum við áfengis- og
fi'kniefnaneyslu í íslenskum framhaldsskólum.
Hún sagði að íslendingar þyrftu að leggja
miklu meiri áherslu á forvarnir en það þurfa að
Vísindasjóður
Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga
Breytingar á
fyrirkomulagi sjóðsins
Frá 1. janúar 1994 hafa vinnuveitendur greitt sem nemur
1,5% af föstum dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga í
vísindasjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH).
Sjóðurinn er í vörslu félagsins og skiptist í A- og B-
hluta. Aðild að sjóðnum eiga allir hjúkrunarfræðingar
sem eru félagsmenn í FÍH og launagreiðendur greiða
fyrir í vísindasjóð fyrir 31. desember árið fyrir úthlutun.
Kallast þeir sjóðsfélagar. Vísindasjóði er annars vegar
ætlað að styrkja endur- og símenntun sjóðsfélaga (A-
hluti) og hins vegar að stuðla að aukinni fræðimennsku
í hjúkrun með því að styrkja rannsóknir og fræðiskrif
sjóðsfélaga (B-hluti).
26
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008