Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Síða 29
Líflegar umræður ráðstefnugesta í kaffihléi
Heilbrigðisráðherra ávarpar ráðstefnuna
Nýstofnuð hljómsveit, Örkin hans Nóa, spilaði
fyrir ráðstefnugesti við setninguna
vera réttu forvarnirnar. Helga Sif málaði upp
mynd af heilbrigðisstarfsfólki sem ver tíma
sínum í að bjarga fólki úr ám, en nauðsynlegt
er að horfa uppstreymis og koma í veg
fyrir að fólk detti í ána. Við erum góð í að
setja upp skilti, þ.e. að vera með áróður og
upplýsingar, en rannsóknir sýna að það eru
aðrir þættir sem skipta máli þegar kemur að
þvi' að draga úr áfengisneyslu unglinga. Til
dæmis er samþúð með kærasta verndandi
þáttur. Það er þó ekki alveg Ijóst hvaða þættir
eru mikilvægastir.
Ritstjóri ræddi við Helgu Sif um nám og
rannsóknir hennar og má lesa meira um
það hér í blaðinu.
Gestafyrirlesari seinni daginn átti að vera
Sioban Nelson frá Kanada en hún kom
ekki til landsins. í staðinn las Einar Kárason
rithöfundur úr bókinni Endurfundir - safn
sex nýrra smásagna.
Ráðstefnan var öflug sýning á rann-
sóknarkrafti íslenskra hjúkrunarfræðinga
og hefur vaxið árfrá ári. Fjöldi þátttakenda
var í ár 135. Haldnír voru 64 fyrirlestrar
og sýnd 28 veggspjöld. 8 fyrirtæki
voru með kynningar. Ritstjórn Tímarits
hjúkrunarfræðinga mun stuðla að því að
greinar um rannsóknir og verkefni, sem
kynnt voru á ráðstefnunni, skili sér á
þlaðsíðum tímaritsins á árinu.
Eftirfarandi breytingar á fyrirkomulagi vísindasjóðs, A- og
B-hluta, tóku gildi 1. janúar 2008.
• Áður fengu sjóðsfélagar borgað úr A-hluta sjóðsins eftir
vinnuhlutfalli þeirra tímabilið 1. janúar til 30. nóvember
árið fyrir úthlutun. í stað þess greiðir FÍH nú hverjum
sjóðsfélaga 95% af því iðgjaldi sem komið hefur í sjóðinn
á hans nafni.
• í stað 10% fara 3% af iðgjaldi vísindasjóðs í B-hluta
sjóðsins.
• Vaxtatekjur sjóðsins munu standa undir beinum kostnaði
við rekstur vísindasjóðs FÍH og afgangurinn fer í B-hluta
sjóðsins.
• Umsýslugjald, sem vísindasjóður greiðir til félagssjóðs,
minnkar úr 4% í 2% í Ijósi þeirrar hagræðingar sem
ofangreindar breytingar hafa í för með sér.
Styrkir úr A-hluta vísindasjóðs eru greiddir sjóðsfélögum á
fyrsta ársfjórðungi ár hvert. Ekki þarf að sækja um úthlutun
úr A-hluta vísindasjóðs heldur greiðir félagið hverjum
sjóðsfélaga 95% af því iðgjaldi sem komið hefur í sjóðinn
á hans nafni. Upphæðin er lögð inn á bankareikning
viðkomandi sem félagið hefur stofnað í SPRON, Borgartúni
26.
Sjóðsfélagar þurfa hins vegar að sækja um styrk úr B-
hluta vísindasjóðs og er umsóknarfrestur til 15. mars ár
hvert. Reglur B-hluta vísindasjóðs voru endurskoðaðar af
stjórn sjóðsins í byrjun árs og er þær að finna á heimasíðu
félagsins undir „Styrkir og sjóðir". Umsóknir í sjóðinn fara
nú eingöngu fram rafrænt og hefur nýtt umsóknareyðublað
ásamt leiðbeiningum um útfyllingu þess verið sett á
heimasíðu félagsins.
AJF
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 1. tbl. 84. árg. 2008
27