Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Síða 38
Hólmfríður Berentsdóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir, gunnza@internet.is
Stofnfundur ungliðadeildar FÍH
15. janúar síðastliðinn var haldinn stofnfundur ungliðadeildar Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga á Hilton Reykjavík Nordica.
Frá stofnfundí ungliðadeildar
Á haustdögum 2007 fór hópur hjúkrunar-
fræöinga að hittast til að undirbúa
stofnun ungliðadeildar innan Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hópurinn
hittist nokkrum sinnum og setti sig í
samband við FÍH og fékk hugmyndin
góðan hljómgrunn þar, en FIH hafði um
alllangt skeið velt því fyrir sér hvernig hægt
væri að laða að unga hjúkrunarfræðinga
og fá þá til að vera virkari í starfi
félagsins. Undirbúningshópurinn gerði
ráð fyrir að ungliðadeildin yrði vettvangur
skoðanaskipta, félagsskapar og fræðslu
og að þangað gætu ungir hjúkrunar-
fræðingar sótt sér stuðning og eflt með
sér stéttarvitund. Úr varð að ákveðið var
að stofnuð yrði ungliðadeild innan FÍH á
14 ára afmæli félagsins 15. janúar 2008.
Ungliðadeildin mun skipa álíka sess og
öldungadeild og fagdeildir innan FÍH gera
núna og standa fyrir opnu húsi fyrir unga
hjúkrunarfræðinga með reglulegum hætti
þar sem tekin verða fyrir þau málefni sem
brenna heitast hverju sinni. Skipuð hefur
verið stjórn ungliðadeildarinnar og veitir
Hrefna Hugosdóttir henni formennsku og
varaformaður er Jón Jökull Óskarsson.
Aðrir stjórnarmenn eru Sigurbjörg
Þorvaldsdóttir, Guðný Helgadóttir,
Hólmfríður Berentsdóttir og Gunnhildur
Gunnarsdóttir.
Markhópur ungliðadeildarinnar eru
þeir hjúkrunarfræðingar sem hafa lokið
námi í hjúkrun árið 2000 eða síðar en
ungliðadeildin tekur að sjálfsögðu öllum
áhugasömum fagnandi. Miðað við þessa
afmörkun má reikna með að ungliðar innan
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga séu
um 700 talsins. Við það bætast að öllum
líkindum hjúkrunarfræðinemar í nánustu
framtíð en það er vilji ungliðadeildarinnar
að vinna sérstaklega að því að styrkja
tengsl þeirra við FÍH. Þeir hafa sem
stendur aukaaðild að FÍH og er það von
ungliðadeildarinnar að FÍH fari með fullt
samningsumboð fyrir hönd þeirra hið
fyrsta.
Um 130 hjúkrunarfræðingar og
hjúkrunarfræðinemar sóttu stofnfundinn
og mátti þar augljóslega finna fyrir þeirri
samkennd og gagnkvæmu virðingu sem
almennt ríkir meðal hjúkrunarfræðinga.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður FÍH,
setti fundinn og kom fram í opnunarræðu
hennar hversu þarft það er að standa
vörð um hagsmuni og líðan ungra
hjúkrunarfræðinga í starfi enda sé staðan
nú skuggalegri en nokkru sinni fyrr þar
sem hlutfall ungra hjúkrunarfræðinga, sem
ráða sig til hefðbundinna hjúkrunarstarfa,
36
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 1. tbl. 84. árg. 2008