Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Síða 39
FRÉTTAPUNKTUR
fari sífellt lækkandi. Einnig nefndi hún
að það vill brenna við í síauknum
mæli að þeir hverfi frá hefðbundnum
hjúkrunarstörfum, jafnvei innan tveggja
ára frá útskrift, vegna óánægju með
aðbúnað, álags út af mikilli vaktabyrði
og óhagstæðra launakjara. Einnig hafi
þarna áhrif mikil eftirspurn á almennum
vinnumarkaði eftir hjúkrunarfræðingum
og yfirgripsmikilli þekkingu þeirra.
Gestur fundarins var Gyða Baldursdóttir,
starfsþróunarstjóri Landspítala, sem hefur
m.a. starfað að því undanfarin misseri að
taka viðtal við unga hjúkrunarfræðinga
sem starfa á Landspítala til að ræða
viðhorf þeirra og reynslu af störfum
þeirra. Samkvæmt úttekt Gyðu eru þessir
hjúkrunarfræðingar á heildina litið ánægðir
með starf sitt, þeim finnst almennt
góður starfsandi á vinnustöðunum
og hafa ánægju af því að vinna með
skjólstæðingum sínum. Neikvæðar hliðar
starfsreynslunnar finnst þeim vera mikil
vaktabyrði, mikil ábyrgð í starfi sem oft
reynist erfitt að standa undir, álag vegna
manneklu og óánægja með að veitast
ekki tími til að sinna þjónustu við sjúklinga
á þann hátt sem hjúkrunarfræðingarnir
helst óska. Þessar niðurstöður eru
algerlega sambærilegar við þann hug sem
stofnfélagar ungliðadeildarinnar þóttust
verða áskynja meðal samstarfsfólks síns
og var hvatinn að stofnun deiidarinnar.
Frá upphafi hefur stjórn ungliðadeildar-
innar haft það að leiðarljósi að viðfangsefni
hreyfingarinnar mótist af vilja þátt-
takendanna sjálfra. Því var ákveðið að
strax á stofnfundinum yrði fundargestum
skipt niður í umræðuhópa þannig að betri
tengsl næðust á milli þátttakendanna og
tækifæri gæfist til þess að viðra mikla
breidd málefna og greina hvar helst þarf
að bera niður á næstu mánuðum.
Hóparnir ræddu hver sitt málefni. Þau
voru aðbúnaður á vinnustað, afstaða til
fræðslu og símenntunar, líðan í starfi,
kjaramál og væntingar til starfsþróunar.
Umræður í hópunum voru líflegar og Ijóst
að margt áhugavert bíður umfjöllunar
á næstu mánuðum. Almennt voru
þátttakendur sammála um að launin væru
alltof lág og fannst þeim launaramminn
í stofnanasamningunum þröngur. Þá
fannst fólki að 80% starfshlutfall (32
klst. á viku) ætti að teljast full vinna
vaktavinnufólks. Einnig kom í Ijós hversu
li'tið hinn almenni hjúkrunarfræðingur
hefur kynnt sér kjarasamningana, t.d. eru
margir sem ekki nýta sér frítökurétt vegna
ónógrar hvíldar. Þá var almenn óánægja
með að fá aðeins að taka fjórar vikur af
sumarfríinu á almennum sumarleyfistíma.
Þátttakendurnir voru sammála um að
ef kjör hjúkrunarfræðinga bötnuðu ekki
verulega í næstu samningum væru þeir
Viðbót við langlífar
hjúkrunarkonur
í 3. tölublaði 2007 á bls. 29 var
skrá yfir langlífar hjúkrunarkonur
sem Jónas Ragnarsson ritstjóri
tók saman og sendi Tímariti
hjúkrunarfræðinga. Hann tók fram
að listinn væri ekki tæmandi og
nú hefur ein hjúkrunarkona bæst
í hópinn. Eiríkur Páll Sveinsson,
læknirá Akureyri, hafði samband við
ritstjóra og sagði frá ömmusystur
konu hans sem hét Bjarney Sigríður
Samúelsdóttir, f. 11.11.1893,
d. 23.12.1991, og varð því 98 ára ef
rétt er í íslendingabók. Eiríki er hér
með þakkað fyrir þessa viðbót.
Langlífir hjúkrunarfræðingar
24.01.2008 JR. Langlifi.net
Ragnheiður Svanlaugsdóttir
f. 15.05.1907 100 ára
Ragna S. G. Norðdahl f. 07.05.1908 99 ára
Sigrún Straumland f. 15.02.1909 98 ára
Bjarney S. Samúelsdóttir f. 11.02.1893 d. 23.12.1991 98 ára
Þorbjörg Jónsdóttir Schweizer f. 23.09.1903 d. 31.01.2002 98 ára
Helga Thordersen f. 23.09.1909 98 ára
Valgerður Helgadóttir f. 12.12.1902 d. 21.03.2001 98 ára
Sólveig Guðrún Halldórsdóttir f. 08.11.1908 d. 02.05.2006 97 ára
Systir Anna Pauline f. 17.02.1911 d. 24.10.2007 96 ára
Ólafía Klemenzdóttir f. 14.11.1870 d. 21.02.1967 96 ára
Ekki er víst að skráin sé tæmandi varðandi
látna hjúkrunarfræðinga
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008
37