Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Page 44
Sigurður Bogi Sævarsson, sigbogi@simnet.is
Alhjúkrun sinnir verkefnum fyrir heilbrigðisstofnanir og leigir út hjúkrunarfræðinga:
ÞJÓNUSTA HEILBRIGÐISKERFISINS ÞARF AÐ VERA
FJÖLBREYTTARI
„Þjónustu Alhjúkrunar er hvarvetna vel tekið enda kemur starfsfólk okkar oft
inn á stofnanir þegar mannekla er mikil og leysa þarf úr brýnum vanda. Eigi
að síður finnum við fyrir ákveðinni tortryggni. Stjórnendur sjúkrastofnana
vilja hafa aðgang að þjónustu okkur en vilja þó ekki þurfa að nýta hana
nema til skemmri tíma. Þetta er mjög ríkjandi viðhorf,11 segja Dagmar
Jónsdóttir og Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, stjórnendur Alhjúkrunar ehf.
Pær Dagmar Jónsdóttir og Jóna Ingibjörg Jónsdóttir eru stjórnendur Alhjúkrunar. „Hefðin fyrir
einkarekstri hjúkrunarfræðinga, borið saman við til dæmis lækna, er mjög takmörkuð."
Núna í febrúar eru sex ár liðin
síðan Dagmar Jónsdóttir stofnaði
þjónustufyrirtækið Alhjúkrun sem útvegar
heilbrigðisstofnunum, fyrirtækjum og
einstaklingum hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða. Er tilgangur fyrirtækisins,
eins og segir á vefsetri þess, að leysa
mönnunarvanda á heilbrigðisstarfsfólki,
til lengri eða skemmri tíma, bæði á
heilbrigðisstofnunum og meðal einstakl-
inga sem þurfa hjúkrun heima fyrir.
Viðurkenni fleiri möguleika
„Starfsemin fór af stað haustið 2001
enda þó ég stofnaði Alhjúkrun ekki fyrr
en á útmánuðum 2002. Satt að segja
hafði ég lengi brætt með mér að setja
á laggirnar starfsemi á þessu sviði. Hins
vegar lét ég ekki til skarar skríða fyrr en
ég fór á frumkvöðlanámskeiðið Auður í
krafti kvenna í Háskólanum í Reykjavík,"
segir Dagmar sem er framkvæmdastjóri
fyrirtækisins og eini eigandi.
„Árið 2001 skynjaði ég talsvert breyttar
aðstæður í þjóðfélaginu; fólk var orðið
opnara fyrir kröftum einkaframtaksins í
heilbrigðisþjónustunni og viðurkenndi fleiri
möguleika en bara ríkisrekstur. Enn er þó
ákveðin tortryggni til staðar. Skýringarnar
á því geta verið fjölmargar. Ein þeirra kann
að vera sú að hefðin fyrir einkarekstri
hjúkrunarfræðinga, borið saman við til
dæmis einkarekstur lækna, er mjög
takmörkuð. Mörgum finnst einfaldlega
sem svo að hjúkrunarfræðingar eigi að
halda sig til hlés og vera nkisstarfsmenn.‘‘
Tíu hjúkrunarfræðingar
Starfsmenn Alhjúkrunar eru nú þrettán
talsins, tíu hjúkrunarfræðingar og þrír
sjúkraliðar sem starfa á Hrafnistuheimil-
unum þremur á höfuðborgarsvæðinu,
Skjóli, Grund og á Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja í Keflavík og Heilbrigðisstofnun
Suðausturlands á Höfn í Hornafirði. Þá hefur
Alhjúkrun mikið starfað fyrir Landspítala,
svo sem á geð-, lyflækninga-, öldrunar-
og endurhæfingarsviðum, en nú eru þau
verkefni úr sögunni, í bili að minnsta kosti,
eftir að samstarfssamningur við sjúkra-
húsið rann út um síðustu áramót vegna
sparnaðar í rekstri.
Jóna Ingibjörg hefur þó vissar efasemdir
um að hægt sé að halda uppi eðlilegri
þjónustu á sjúkrahúsinu nema með
aðkeyptri hjúkrunarþjónustu.
„Það er alltaf þörf á hjúkrun, hvort sem hún
er veitt af aðkeyptum hjúkrunarfræðingum
42
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008