Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Síða 53
RITRÝNDAR FRÆÐIGREINAR
áföll: „Sjúkdómurinn er allt ööruvísi en bækurnar segja til um.“
Réttmæti niðurstaðna var styrkt enn frekar með því að bera
heildarniðurstöður undir tvo samræðufélaga (þrep ellefu). Ekki
var gert ráð fyrir því að heildarmynd fyrirbæranna félli alveg
að þeirri mynd sem dregin var upp með hverjum og einum en
það kom á daginn að þeir þekktu megindrætti lýsingarinnar.
Loks voru niðurstöður skráðar en þær byggðust á orðum
samræðufélaga í samhengi við hugtakagreiningu, fræðilega
gagnagreiningu og túlkun rannsakenda (þrep tólf) (Sigríður
Halldórsdóttir, 2000 og 2003a).
Niðurstöður
Helstu niðurstöður voru að meiriháttar streita vegna
líkamiegra eða sálrænna áfalla var sá áhrifaþáttur sem flestir
samræðufélagar lýstu að hefði leyst sjúkdóminn úr læðingi
(sjá töflu 2). Meginþemað f frásögum þeirra af samspili streitu
og iktsýki var að „sjúkdómurinn blossaði upp“ við langvarandi
streitu. Nokkrir ytri þættir ýttu, að mati samræðufélaga,
undir þróun langvarandi streitu, eins og álag í vinnu eða
námi, hjónabandserfiðleikar, niðurbrjótandi samskiptaháttur
heilbrigðisstarfsfólks, skilningsleysi samfélagsins og áhyggjur
(sjá mynd 2). Langvinn streita var einnig til staðar hjá þeim
sem voru ómeðvitað með innibyrgða reiði og þjáningu í
þögn í farteskinu. Reiði og þögn skarast við umfjöllunina um
bjargráð við alvarlegum sálrænum áföllum. Þannig var þögnin
nokkrum þátttakendum nauðsynlegt skjól við alvarleg áföll
og hjá sumum virkaði reiðin sem drifkraftur til uppbyggilegra
athafna. Meginþemað í tileinkun bjargráða eftir alvarleg sálræn
áföll var þolgæði, „að ekki gefast upp“.Bjargráð, sem reyndust
hafa jákvæð áhrif á þolgæðið, voru trú og von, að leggja rækt
við sjálfan sig, að eiga trúnaðarvin, sjálfsþekking, samkennd,
listiðkun og skapandi skrif. Eins og fyrr greinir virkuðu reiði og
þögn í báðar áttir, styrktu þolgæðið í sumum tilvikum en veiktu
það í öðrum tilvikum (sjá mynd 3).
Samspil áfalla og upphafs iktsýki
Hjá samræðufélögum kom fram að einkenni iktsýki gerðu fyrst
vart við sig milli tvítugs og sextugs og allar konurnar lýstu því
að alvarlegt sálrænt áfall hefði að þeirra mati, átti þátt í að
leysa sjúkdóminn úr læðingi. Sálrænu áföllin voru margvísleg
(sjá töflu 2).
1. ALVARLEGT SÁLRÆNT ÁFALL
Alvarlegt eignatjón í eldsvoða (Sara, bls. 8).
Dauði nákomins af slysförum og röð dauðsfalla (Anna, bls.
28).*
„Bíllinn bakkaði á mig“ (Unnur, bls. 83).*
Eignast langveikt og fjölfatlað barn (Ásta, bls. 104).
Alvarlegt einelti á vinnustað (Guðrún, bls. 122).*
2. LÍKAM LEGT ÁFALL EÐA ÁLAG
Rauðir hundar og síðar sýking í kjölfar skurðaðgerðar
(Gunnar bls. 107 og 110).
„Bara kom allt í einu ... náttúrulögmálin [...] kannski
kæfisvefn" (Þórður, bls. 69 og 74).*
3. ANNAÐHVORT 1) EÐA 2)
Erfiður skilnaður við maka, trúar- og menningarmismunur
og/eða svæsin magasýking (Sunna, bls. 35 og 51).
’Áttu það sameiginlegt að hafa orðið fyrir alvarlegum sálrænum áföll I æsku.
Tafla 2. Lýsíng samræðufélaga á þvf hvað leysti iktsýkina úr læðingi.
Samspil langvarandi streitu og iktsýki
Samræðufélagar lýstu slæmum áhrifum langvarandi streitu
á sjúkdómseinkenni og meginþemað var að „sjúkdómurinn
blossar upp" við slíka streitu. Fimm þættir sem orsökuðu
langvarandi streitu að þeirra mati birtust í lýsingum þeirra (sjá
mynd 2).
Niðurbrjótandi
samskiptaháttur
heilbrigðisstarfsfólks
Anna sagði svo frá sínum áföllum: „Ég upplifi níu dauðsföll á
einu og hálfu ári ... þar af tvö sjálfsvíg vina [...] mér finnst alveg
kiár tengsl þarna á milli og sjúkdómsins" (bls. 28). Reynsla
karlanna tveggja tengdist líkamlegum veikindum sem valda
mikilli streitu, Gunnar sagði: „Mér dettur í hug að það geti hafa
verið rauðir hundar sem ég veiktist af [...] það er eina áfallið
sem ég geri mér grein fyrir að ég hafi orðið fyrir (þögn 7 sek.)
þetta er mín heimatilbúna kenning" (bls. 107). Eftir gullmeðferð
varð sjúkdómshlé hjá honum í 25 ár en sjúkdómseinkenni
gerðu aftur vart við sig í kjölfar sýkingar eftir skurðaðgerð: „Ég
fæ háan hita ... þetta þrjátíu og níu stig og þetta (skurðsárið)
bólgnaði óskaplega mikið og þá byrjar mín þrautaganga á ný“
(Gunnar, bls. 110).
Mynd 2. Lýsing samræðufélaga á samspili streitu og sjúkdómseinkenna.
Áhrifaþættirnir höfðu mismikið vægi og skiptust í ytri og
innri áhrifaþætti. Ytri áhrifaþættir, sem ýttu undir langvarandi
streitu að mati samræðufélaga, voru m.a. mikið vinnuálag,
álag vegna frekara náms, áhyggjur, hjónabandserfiðleikar,
skilningsleysi maka, fjölskyldunnar og umhverfisins gagnvart
sjúkdómseinkennum ásamt niðurbrjótandi samskiptahætti
heilbrigðisstarfsfólks.
Allir samræðufélagar lýstu reynslu af skilningsleysi samfélagsins
gagnvart „ósýnilegum sjúkdómi". Lýsing Þórðar var dæmigerð:
„Samt finnst mér fólkið ekkert vera að skilja þetta og þú sérð
ef þú horfir á mig ... þetta svo sem sést ekkert á mér“ (bls. 61).
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008
51