Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Síða 10
hugsjón mín metin og hætt var að líta á
mig og mitt sem vandamál kerlingar sem
var alltaf með vesen. Fyrir tíð Guðlaugs og
þess góða fólks, sem honum fylgdi, var
heilbrigðisráðuneytið sérstakur kapítuli. Öll
mál voru flækt og vandamálin voru hreint
út sagt búin til. Það er meðal annars
ástæða þess hve hægt hefur rniðað."
Velviljinn er skýr
En þótt hægt miði að mörgu leyti
hefur margt áunnist. Velvilji og virðing
þjóðarinnar gagnvart málstaðnum er
skýr, að mati Auðar. Góðar undirtektir í
landssöfnun til handa Mænuskaðastofnun
íslands í september eru til vitnis um það
þó þeir fjármunir, sem lofað var þar
og þá, hafi enn ekki skilað sér sem
skyldi, meðal annars vegna ástandsins á
fjármálamörkuðunum.
Mæðgur á Seltjarnarnesi. „Börnin mín og eiginmaðurinn hafa farið á mis við ýmislegt vegna afleiðinga
slyss Hrafnhildar og köllunar minnar. Þegar allt kemur til alls erum við ekki óhamingjusöm fjölskylda."
liðs við okkur í ríkari mæli en gerst hefur
hingað til. Við eigum að koma af stað
vitundarvakningu og beita okkurfyrir því að
alþjóðastofnanir og sjóðir beini fjármagni
inn á vísindasvið mænuskaðans. Eins
geta fulitrúar íslands hjá WHO lagt fram
tillögu þess efnis hjá stofnuninni, náist
samkomulag meðal aðildarþjóðanna, að
stofnaður verði sjóður sem þjóðir heims
skuldbinda sig til að greiða í, til dæmis
visst hlutfall að sektargreiðslum fyrir
hraðakstur. Sjóðurinn yrði svo notaður
til rannsókna á miðtaugakerfinu," segir
Auður og heldur áfram: „Við íslendingar
getum gert mannkyninu mikinn greiða
með því að beita áhrifum okkar fyrir hönd
þessa alvarlega heilbrigðisvandamáls
sem svo erfiðlega hefur gengið að
finna lækningu á. Ég hef haft þessar
hugmyndir í fjölda ára og talað fyrir þeim í
heilbrigðisráðuneytinu, oftast fyrir daufum
eyrum. Þegar Guðlaugur Þór Þórðarson
tók við embætti heilbrigðisráðherra á
síðasta ári varð breyting. Þá fyrst var
„Alþingismenn og ráðherrar hafa oft
rétt mér hjálparhönd, bæði fjárhagslega
og með kynningu á verkefninu hjá
alþjóðastofnunum. Samt vantar alltaf
herslumuninn, lokahnykkinn svo ísland
verði raunverulega forystuafl í málefnum
mænuskaðaðra. í því árferði, sem nú ríkir,
þarf ísland að auka álit sitt. Tækifærið til
að gefa er einmitt núna. Við íslendingar
ættum að nota okkar alþjóðlegu sambönd
til að gefa mannkyninu gjöf sem mölur
og ryð fá ekki grandað. Ef vel tekst til
gæti sú gjöf markað djúp spor og skilað
íslandi virðingu umheimsins."
Hjálp til alls mannkyns
Auður kveðst óttast að hamfarir á
fjármálamörkuðum muni breyta miklu fyrir
starfsemi líknarfélaga. Útrásarfyrirtækin
„Ég hef reynt að
sannfæra alþingis-
menn og ráðherra um
að flokkaeigilækningu
á mænuskaða undir
þróunarmál og hef
reynt að fá fjárveitingar
til málaflokksins á
þeim forsendum.11
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008