Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Blaðsíða 23

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Blaðsíða 23
Sigríður Jónsdóttir, gbr2@simnet.is VALDEFLING í VERKI Hlutverkasetur og félags- og tryggingamálaráðuneytið héldu í samstarfi við fagfólk, notendur og aðstandendur fræðsludaga um geðvernd á Húsavík 29.-30. ágúst síðastliðinn. Opinberun geðröskunar Það kom ekki á óvart að fordómar komu til tals á fræðsludögum um geðvernd. Fólk var á því að þeir blundi ekki hvað síst hjá geðsjúkum sjálfum. Kjarkaðir einstaklingar stigu fram og opinberuðu geðröskun sína. Dregnir voru fram kostirnir við slíka opinberun. Þeir helstu voru að það dregur úr fordómum, veitir betri andlega líðan og eykur sjálfstraust. Gallinn við opinberun var álitinn vera að fólk yrði berskjaldað og að við það ykjust líkurnar á að verða fyrir félagslegri höfnun og ofbeldi. Valdefling í verki Sagt var frá tilraunaverkefninu Geðheilsumiðstöð hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Vinnuaðferðir þar eru samhæfðar og felast í eftirfylgd/ meðfylgd við fólk utan stofnana á forsendum bæði notenda þjónustunnar og aðstandenda. Stuðst er við hugmyndafræði sem nefnd hefur verið valdefling (empowerment). Valdefling snýst um að fólk nái tökum og stjórn á eigin lífi, eflist og finni að það sjálft hefur áhrif á líðan sína og á þá þjónustu sem það fær. Lögð er rík áhersla á rétt fólks til upplýstrar ákvarðanatöku, til dæmis um meðferðarúrræði og að meðferðaraðilar séu leiðsögumenn en ekki yfirumsjónarmenn. Heildstæð þjónusta Með rannsóknum, fræðslu um geðsjúk- dóma og umræðum um geðvernd hafa geðsjúkir, aðstandendur geðsjúkra og fagfólk hleypt áhugaverðum, ánægju- legum en í og með átakanlegum straumum út í samfélagið. Margir vaxtarbroddar hafa sprottið upp og eiga einhverjir þeirra eftir að slípast til og dafna. Grasrótin hefur þannig dregið úr fordómum og skerpt á samfélagslegri grunnþjónustu, til dæmis í heilsugæslunni, en eftir situr spurningin: „Er það lagt að jöfnu að fá geðsjúkdóm og líkamlegan sjúkdóm?'1 Sigríður er hjúkrunarfræðingur, MS. Hún vinnur á heilsugæslustöðinni á Húsavík. G ^SL%, w Framboð til formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga auglýsir eftir framboði til formanns félagsins. Samkvæmt lögum félagsins skal formaður kjörinn til tveggja ára í senn með allsherjaratkvæða- greiðslu meðal félagsmanna það ár sem ber upp á oddatölu. Framboð berist til kjörnefndar á skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Framboðsfrestur er til 3. mars 2009. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.