Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Side 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Side 35
úr fiskvinnslu, sjómennsku eða annarri erfiðri vinnu þá veit ég hvernig aðstæður þess eru. Ég þekki kuldann, álagið og gigtina sem því fylgir." Þegar Grazyna var farin að ná tökum á íslenskunni fór hún að svipast um eftir annarri vinnu. Hún var þá gift íslenskum manni, átti með honum einn son og var ekkert á leið heim eða til Kanada. Hún frétti af því að það vantaði hjúkrunarfræðinga á sjúkrahúsinu á ísafirði. Það tók sinn tíma að fá hjúkrunarleyfi frá heilbrigðisráðuneytinu en í janúar 1994 gat hún byrjað að vinna sem hjúkrunarfræðingur. Hvernig varað vinna á íslandi? „Mér fannst ég alltaf vera velkomin í frystihúsinu. Þar voru margir innflytjendur fyrir og mér fannst ég ekkert öðruvísi en aðrir. Á sjúkrahúsinu var sumt starfsfólkið meira á varðbergi og ekki vant því að vinna með erlendum hjúkrunarfræðingum. Það voru yfirhöfuð fáir Þólverjar að vinna í öðru en fiski. Sumir voru því tortryggnir en það voru ekki allir með þessi viðhorf. Ég var fyst á almennri deild sem var einnig bráðadeild. Á vöktum þurfti ég að aðstoða við fæðingar og einnig að hjálpa til á öldrunardeild. Svo var ég í eitt ár deildarstjóri á öldrunardeild. Með deildinni fylgdi einnig yfirumsjón með hjúkrunardeild sem var á einni hæð í húsi með þjónustuíbúðum fyrir aldraða. Vinnan á öldrunardeild fannst mér mjög skemmtileg. Ég lærði mikið um ísland og sögu íslands á að spjalla við gamla fólkið. Þegar ég hætti á ísafirði fékk ég í kveðjugjöf frá einum skjólstæðingi málverk sem ég held mikið upp á.“ Grazyna flutti suður 2002 og fór þá að vinna hjá Liðsinni. „Þau auglýstu eftir hjúkrunarfræðingum og mér fannst það mjög spennandi," segir hún. Þau ár, sem hún var hjá Liðsinni, vann hún á 18 mismunandi deildum. Mest var hún á lyflækningadeildum, öldrunardeildum og í heilsugæslu í Reykjavík, Keflavík og Bolungarvík, en einnig á skurðlækningadeildum. „Ég á auðvelt með að aðlagast aðstæðum og er ekkert að velta mér upp úr því hvort mér finnst gaman eða ekki. Þetta er bara vinna og mér finnst alltaf gaman að vinna, kynnast nýju fólki og takast á við ný verkefni," segir Grazyna. Hún þekkti engan í bænum þegar hún flutti suður og henni fannst gott að vera hjá Liðsinni og kynnast þannig mörgum deildum og vinnustöðum. „Ég hef langa reynslu sem hjúkrunarfræðingur og treysti mér til að vinna á flestum stöðum. Sonur minn var 10 ára þegar við fluttum suður og það var gott að geta ráðið vinnutímanum. Stundum vann ég meira þegar hann var hjá pabba sínum og stundum minna." 2004 innritaði Grazyna sig í háskólanám í Róllandi. Námið var 20 einingar og tók hún það með vinnu. Hún hafði ætlað sér að fara í diplómanám í Háskóla íslands en hjúkrunarfræðideild mat það þannig að hana vantaði ýmislegt upp á til þess að fá inngöngu. Grazyna valdi að bæta við sig í Póllandi. „Þetta var mjög erfiður tími. í fjóra mánuði var ég í skóla með vinnu og fórfram og til baka milli Þóllands og íslands. Skólinn lagaði námið að mér eins og hægt var og á einni helgi tók ég 11 próf. Ég hvíldi mig svo fram að hausti en fór þá í diplómanám í Háskóla íslands. Þetta var einnig mjög erfitt þar sem mikið af námsefninu var á ensku en enskan er ekki mín sterkasta hlið. En ég var ákveðin í að sýna að ég gæti þetta og lauk náminu á þrjóskunni. Ég er mjög ákveðin manneskja og gefst aldrei upp, tek bara eitt skref í einu.“ Eftir námið fór Grazyna að vinna á Landspítala, fyrst á lungnadeild og svo á bæklunardeild. í dag vinnur hún á sýkingavarnadeild. Sonur hennar var orðinn þreyttur á vaktavinnunni en á sýkingavarnadeild er unnið í dagvinnu. Þetta er að nafni til skrifstofuvinna en samt mjög fjölbreytt. Fræðsla til starfsfólks er stór hluti vinnunnar. Grazyna fer mikið um og heimsækir deildir og finnst það mjög skemmtilegt. Ég er mjög ákveðin manneskja og gefst aldrei upp, tek bara eitt skref í einu.“ En að vera í starfi og námi er alls ekki nóg fyrir Grazynu. Hún hefur alltaf haft gaman af félagsstörfum og af kennslu og byrjaði snemma að kenna Rólverjum íslensku fyrir vestan. Þar tók hún einnig þátt í Rótum, áhugahópi um menningarfjölbreytni. í sveitarstjórnar- kosningunum 2002 fór hún fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn á ísafirði. Grazyna segist vera blá inn við beinið og ekkert annað en Sjálfstæðisflokkurinn kom til greina. Henni fannst mjög áhugavert að kynnast sveitarstjórnarmálum og viðhorf hennar breyttist mjög. „Fólk, sem er að kvarta yfir bæjarstjórn, sér oft ekki hlutina í stærra samhengi. Fólk áttar sig ekki alltaf á eða kann að meta það sem er búið að gera eða hvað það kostar að gera breytingar. Stundum verður bara það sem er nógu gott að nægja, við höfum ekki alltaf efni á dýrustu lausnunum. Ég hef reynslu af því hvernig var í Róllandi kringum 1980. Þá voru hillurnar tómar í búðunum og skömmtun var á mörgum vörum eins og kjöti, áfengi, fatnaði og sælgæti. Enginn var svangur en margt vantaði." 2007 fór hún fram í alþingiskosningunum í Reykjavík og lenti í 12. sæti í prófkjöri. Núna er hún annar varaþingmaður í Reykjavík norður. Fyrsti varaþingmaður er ófrísk þannig að það er ekkert ólíklegt að hún þurfi að fara á þing einhvern tíma á þessu kjörtímabili. Grazyna hefur tíma fyrir ýmislegt annað en að vera í stjórnmálum. Hún er til dæmis formaður í Lionsklúbbi pólskra kvenna. Þá er hún í stjórn neytendasamtaka í Reykjavfk og tekur þátt í vinnuhópi í Rauða krossi íslands. Hún er einnig í Zontaklúbbi en það er alþjóðleg hreyfing sem hjálpar konum og börnum. Klúbburinn hennar styður meðal annars við bólusetningarverkefni á Indlandi. Þá hefur Grazyna starfað við túlkaþjónustu á vegum Alþjóðahússins frá stofnun þess. Svo tekur hún einn og einn kúrs í háskólanum. Einmitt núna er hún í námi sem heitir Kennsla á vettvangi. Þegar það er búið ætlar hún að fara í enskunám en henni finnst enskuþekking sín hamla sér við nám. Það er, segir hún, greinilegt að bekkjarfélagar hennar séu fljótari að vinna verkefni upp úr námsefni á ensku en hún þurfi að leggja talsverðan tíma í að leita í orðabókum. Grazyna hefur einnig tekið að sér að vera ráðgjafi fyrir pólska hjúkrunarfræðinga sem hafa ráðið sig til vinnu á Lands- pítalanum. Einmitt núna eru fjórir nýráðnir Tfmarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbi. 84. árg. 2008 33

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.