Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Blaðsíða 58

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Blaðsíða 58
INNGANGUR Rafræn samskipta- og veftækni með stöðugt nýjum tækifærum til framfara og þróunar þjónartugmilljónum notenda um allan heim. Nútímaupplýsingasamfélag opnar möguleika til samfélagslegra umbóta og aukinnar skilvirkni heilbrigðis- og félagsþjónustu. Upplýsingatækni á heilbrigðissviði (health informatics) er mikilvæg nútímavísindagrein sem skapar ótal möguleika í öllu sem viðkemur skipulagi, vörslu, aðgangi og samskiptum með heilbrigðisupplýsingar (Bingman o.fl., 2003; Murphy, 2001). Upplýsingatækni notenda heilbrigðisþjónustu (consumer health informatics) er sérgrein tengd upplýsingatækni á heilbrigðissviði sem hefur þann tilgang að styrkja heilsutengd lífsgæði (quality of life) fólks með upplýsingum og þjónustu. Það er meðal annars gert með því að greina þörf, rannsaka aðferðir og innleiða upplýsingatækni samkvæmt óskum notenda. Takmarkið er að virkja notendur til skilnings, sjálfshjálpar og ákvarðanatöku um eigin heilsu og fjölskyldunnar, með eða án milligöngu heilbrigðisþjónustunnar (Eysenbach, 2000). Það á að vera hægt að auka öryggi, gæði og hagkvæmni þjónustunnar með rafrænum aðgangi notenda að eigin upplýsingum og þjónustu. Heilbrigðisþjónustuna mætti til dæmis stórauka og bæta með öruggum aðgangi einstaklinga að eigin heilsufarsskrá (personal health record) og gagnvirkum samskiptum við þjónustuaðila hvenær sem þörf krefur (Eng og Gustafson, 1999). Heilsufarskerfi notenda (consumer health informatics system, CHIS) eru þá tilvalin, þar geta einstaklingar haft aðgang að eigin heilbrigðisupplýsingum, stýrt honum og deilt í samskiptum við þá sem til þess hafa tilskilin leyfi og réttindi (Bingham o.fl., 2003). Aðgangur einstaklinga að heilsufarskerfum gæti til dæmis lágmarkað álag og þjáningar fólks með langvinna sjúkdóma og bætt heilsutengd lífsgæði fólks til muna (Eng og Gustafson, 1999). Einstaklingurinn og upplýsingasamfélagið Upplýsingasamfélagið gerir ráð fyrir rafrænum aðgangi almennings að eigin upplýsingum og heilbrigðisþjónustu (Silber, 2004). Landslög tryggja meðal annars almenningi rétt til heilbrigðisþjónustu, friðhelgi einkalífs og aðgangs að eigin heilbrigðisupplýsingum. íslensk heilbrigðis- og félagsmálaþjónusta nær yfir allt sem viðkemur heilbrigði og velferð almennings, frá upphafi lífs til endaloka. Notendur heilbrigðisþjónustu eru því allir einstaklingar sem sækja og eiga rétt á heilbrigðis- og almannatryggingaþjónustu, hvort sem þeir eru sjúkir eða ekki. Tryggingastofnun ríkisins (TR) framfylgir íslenskum lögum um almannatryggingar og félagslega aðstoð (TR, 2004). Þjónustan á, samkvæmt velferðarhugsjónum, að stjórnast af lögmáli almannaheilla með sanngirni í jöfnun lífskosta (Vilhjálmur Árnason, 1993). Þrátt fyrir stefnuyfirlýsingar og fyrirheit stjórnvalda standa íslendingar mörgum þjóðum að baki í rafrænni heilbrigðisþjónustu og þeir hafa dregist aftur úr með almenna nýtingu upplýsingatækni á síðastliðnum árum (Capacent ráðgjöf, 2007). Markmið íslenskrar upplýsingastefnu um rafrænt aðgengi að upplýsingum, eins og rétt til afsláttar í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðis- og félagsþjónustu miðað við þarfir og ávinning netborgarans, gefa góð fyrirheit. Þar er gert ráð fyrir að allir samfélagshópar, óháð aldri, heilsufari, búsetu og þjóðerni, eigi kost á búnaði og aðstöðu fyrir aðgang að eigin upplýsingum og þjónustu (Forsætisráðuneytið, 2004; 2008). Fjarskiptaáætlun kveður einnig á um að allir landsmenn, öryrkjar og fatlaðir einstaklingar þar með taldir, skuli hafa tækifæri til fjarskipta (Samgönguráðuneytið, 2005). íslendingar eru fremstir meðal Evrópuþjóða í tölvu- og netnotkun almennings. Notkunin fer hratt vaxandi, rúm 90% landsmanna á aldrinum 16 til 74 ára notuðu tölvu og Internet árið 2008, 92% heimila höfðu tölvur og 88% gátu tengst Interneti (Hagstofa íslands, 2008). Vitað er að konur leita frekar eftir heilbrigðisþjónustu og telja heilsutengdar upplýsingar gagnlegri en karlar (Ágústa Pálsdóttir, 2003). Þær sækjast líka frekar eftir að sjá eigin heilbrigðisupplýsingar og taka þátt í rannsóknum en karlar (Fowles o.fl., 2004). Einnig hefur verið sýnt fram á að notendur rafrænnar heilbrigðisþjónustu fara að settum reglum við notkun þjónustunnar (White o.fl., 2004). Nútímanotendur heilbrigðisþjónustu sýna þekkingu og færni við öflun og lestur upplýsinga, gera kröfur um virka þátttöku í eigin þjónustu, vilja sjálfir eiga val og taka ákvarðanir í stað þess að lúta einhliða fyrirmælum starfsmanna (Ball og Lillis, 2001). Fyrri rannsóknir hafa sýnt að notendur með aðgang að eigin heilbrigðisupplýsingum hafa meiri skilning og eru ábyrgari gagnvart eigin heilsufari og meðferð (Fowles o.fl., 2004; Gustafson o.fl., 2001; Pyper o.fl., 2001). Ábyrgðin tengist aukinni þekkingu og skilningi notenda (Baker og Masys, 2004) sem sinna líka einkennum sjúkdóma frekar en ella (White o.fl., 2004). í Ijós hefur komið að notendur, sem hafa aðgang að eigin heilbrigðisupplýsingum, vilja geta bætt eigin óskum við heilsufarsskrána og telja sig geta aukið réttmæti og nákvæmni upplýsinganna (Pyper o.fl., 2004). Heilsufarskerfi notenda eru ekki gerð til að koma í stað þjónustu heldur eiga þau að gera hana enn betri. Markmiðið er að styrkja heilbrigðan lífsstíl með auknum forvörnum og vitund almennings um eigið heilbrigði. Langveikir og fólk með lífshættulega sjúkdóma, eins og krabbamein, kransæðasjúkdóma, sykursýki eða eyðni, eiga mikilla hagsmuna að gæta sem mikilvægir markhópar við innleiðingu heilsufarskerfa (Bingman o.fl., 2003; Gustafson o.fl., 2001). Þessir samfélagshópar hafa meiri reynslu af heilbrigðisþjónustu, þurfa meira á henni að halda og vita betur hvað þarf til að heilsutengd lífsgæði verði bætt. Þess vegna er líka mjög mikilvægt að innleiðingin byggist á reynslu og þörfum einstaklinga og þjónustuaðila til að aukið öryggi, lífsgæði og ánægja notenda verði tryggð (Eng og Gustafson, 1999). Rannsókn Bury Knowle-heilsugæslunnar í Oxford á viðhorfum og óskum um aðgang að eigin heilsufarsskrá (N=427, 41% svörun) sýndi að yfir 90% þátttakenda töldu sig eiga að hafa aðgang að eigin heilbrigðisupplýsingum og barna sinna, 85% töldu góða hugmynd að innleiða rafræna sjúkraskrá og rúm 60% töldu aðganginn auka skilning á eigin heilsu. Flestir þátttakenda vildu stýra aðganginum (73%) og taka þátt í að uppfæra heilsufarsskrána (61%). Meirihlutinn (77%) kunni skil á réttindum sínum til að sjá heilsufarsskrána en aðeins 5% höfðu beðið um aðgang og einum verið neitað (Pyper o.fl., 2001). Rannsókn 56 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.