Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Blaðsíða 21
Anna B. Garðarsdóttir fór með ritnefndina í
skoðunarferð um heilsugæslustöðina í Borgarnesi.
glöggt er gestsaugað og fór undrun
gestanna vaxandi með hverju skrefinu
er þeir gengu um stöðina með Önnu
og sáu hversu víðfeðmt starfssvið
hjúkrunarfræðinganna reyndist. Enda
kom í ijós að hér er fjölbreytnin í fyrirrúmi,
enginn dagur er eins og „líður sem
korter" eins og Anna orðaði það. Meðal
annars sinna hjúkrunarfræðingarnir
hér hefðbundnum verkefnum, svo
sem ungbarnaeftirliti, heimahjúkrun og
skólahjúkrun, en einnig vinna þeir á
skiptistofu, taka röntgenmyndir, sinna
dauðhreinsun, útköllum með sjúkrabíl
og sjá um Ijósalampameðferð. Lifandi
dæmi um þetta var þegar við hittum í
lok heimsóknarinnar á Rósu hjúkrunarfor-
stjóra sem kom brunandi úr vitjun með
tösku og blóðprufur í hendi, engin
lognmolla þar á ferð. Það er ánægjulegt
að geta sagt frá því að gagnstætt mörgum
öðrum stöðum ríkir hér ekki mannekla.
Hjúkrunarfræðingarnir telja sig að mestu
leyti vel mannaða þrátt fyrir að á sumrin
sé mikill erill vegna vaxandi fjölda gesta
sem dvelja í sumarbústöðum á svæðinu
á þeim tíma.
Það hafði enn kólnað og fyrstu snjókorn
vetrarins sigu af himni er við lögðum
aftur af stað. Hlýjar móttökur og
tilfinning fyrír mannhelgi og virðingu fyrir
skjólstæðingnum urðu þó til þess að
kuldaboli beit síður á ritnefndinni.
Þá lá leiðin í snjó og muggu yfir Bröttu-
brekku og alla leið í Búðardal. Þar hittum
við Ásgerði Jónsdóttur, hjúkrunarfræðing
á heilsugæslustöðinni, en viðtal við
Ásgerði birtist í næsta tölublaði. Áttum
við þar gott spjall yfir kaffibolla. Vorum við
stolt yfir þessum hjúkrunarfræðingi sem
með atorku og dugnaði sinnir ótrúlega
breiðu starfssviði Ifkt og stallsystur hennar
í Borgarnesi. Eftir að Ásgerður hafði sagt
okkur frá sínum högum og starfsemi
heilsugæslustöðvarinnar höfðum við á
orði að hér væri þjónustan við hinn
almenna sjúkling á margan hátt síst lakari
en á höfuðborgarsvæðinu. Hér er til að
mynda auðvelt að fá viðtal við lækni eða
heimavitjun samdægurs.
Þá lá leið okkar í Stykkishólm. Á
sjúkrahúsinu þar beið okkar Anna Gyða
Gunniaugsdóttir, hjúkrunarforstjóri St.
Franciskusspítala. Margt bar á góma
í samræðum okkar, þar á meðal
sameining heilsugæslustöðva og
sjúkrahússins á Vesturlandi. Greinilegt
er að ákveðinn beygur rfkir vegna
fyrirhugaðrar sameiningar Vesturlands í
eina heilbrigðisstofnun og þess að fulls
jafnræðis verði gætt við þá sameiningu.
Jafnframt sjá menn þar talsverð tækifæri
til bóta, eins og öflugra aðgengi að
sérfræðingum, bættari upplýsingarkerfis,
sameiginleg innkaup svo eitthvað sé
nefnt. Talsvert verk virðist enn óunnið
hvað varðar samvinnu við og milli
heilsugæslustöðvanna og sjúkrahússins
Heilugæslustöðin í Borgamesi þjónar bænum og héraðinu í kring. íbúafjöldinn í
héraðinu er um 4500 manns en svæðið, sem stöðin þjónar, nærfrá Hafnarfjalli vestur
að Vegamótum á Snæfellsnesi, upp að Langjökli og upp á miðja Holtavörðuheiði.
Lengsta vegalengdin, sem hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar þurfa að aka í
heimahjúkrun, er 1 klukkustund aðra leiðina. Sumarbústaðir eru í kringum 2000
og hér eru 2 háskólar sem heilsugæslan þjónar. Á svæðinu, sem heilsugæslan
nær til, eru einnig 5 grunnskólar og í Borgarnesi er þar að auki framhaldsskóli. Á
heilsugæslustöðina kemur Ijósmóðir einu sinni í viku. Einnig koma sálfræðingur,
heyrnartæknir og augnlæknir auk þess sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari er í
húsinu. Hjúkrunarfræðingarnir á stöðinni eru 5 og auk þess er 1 sjúkraliði en það
gerir 4,5 stöðugildi. Stöður lækna eru 3 en leyfi er fyrir 4 á sumrin. Til marks um
vaxandi umsvif stöðvarinnar er að frá 1. janúar til l.október eru komnar 1856
vitjanir í heimahjúkrun (voru 1745 á sama tímabili í fyrra). Á þessu sama tímabili
eru komin 21210 samskipti (símtöl þar með talin) á stöðina en það er u.þ.b. 650
samskiptum fleira en á sama tímabili í fyrra.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008
19