Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Blaðsíða 39
Elsa B. Friðfinnsdóttir og Sólveig Stefánsdóttir, elsa@hjukrun.is
ÁHRIF BANKAKREPPUNNAR Á STÖÐU SJÓÐA
FÉLAGS ÍSLENSKRA HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum að fall íslensku bankanna hefur haft
víðtæk áhrif á efnahag þjóðarinnar, hvort sem miðað er við hag einstaklinga,
fyrirtækja, félaga eða annarra. Sjóðir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eru
þarna ekki undanskildir.
I vörslu FÍH eru fimm sjóðir: félagssjóður,
vinnudeilusjóður, vísindasjóður, starfs-
menntunarsjóður og orlofssjóður. Stjórn
félagsins og fjármálastjóri leita á hverjum
tíma allra leiða til að ávaxta þessa sjóði
sem best, að teknu tilliti til áhættu. Allir
eru sjóðirnir vistaðir hjá SPRON og hinir
þrír fyrrnefndu voru þar í fjárstýringu.
Sjóðirnir voru ávaxtaðir í sjóðum
SPRON: alþjóðlegum hlutabréfasjóði,
innlendum hlutabréfasjóði (að mjög
litlu leyti), stuttum skuldabréfasjóði og
í peningamarkaðssjóði, auk inneignar
á bankareikningi. Þegar þetta er
ritað (20. nóvember 2008) er Ijóst að
peningamarkaðssjóður SPRON greiðir
innistæðueigendum sem svarar 85,52%
af innistæðu miðað við gengi sjóðanna 3.
október 2008. Þá hefur verið opnað fyrir
viðskipti með alþjóðlegan hlutabréfasjóð
en staða hans er litlu lakari en áður
þar sem styrking erlendra gjaidmiðla
gagnvart krónu hefur mildað þær lækkanir
sem orðið hafa á erlendum hlutabréfum.
SPRON hefur ekki gefið FÍH upplýsingar
um stöðu annarra sjóða. Eignir þessara
þriggja sjóða hafa því rýrnað en þó ekki
verulega þegar tekið er tillit til mikillar
ávöxtunar mánuðina fyrir fall bankanna.
Nákvæm grein verður gerð fyrir stöðu
sjóðanna á aðalfundi félagsins 12. maí
2009.
Þó vísindasjóður hafi verið í fjárstýringu í
ofangreindum sjóðum er fjárstreymi um
þann sjóð það ríflegt að ekki mun koma
til nokkurrar skerðingar útgreiðslna úr
sjóðnum í mars á næsta ári.
Félagssjóður stendur undir daglegum
rekstri skrifstofu og allri starfsemi
FÍH. Áriegar áætlanir um starfsemi
og útgjöld eru alfarið í samræmi við
áætluð félagsgjöld. Ekkert bendir því
til þess að skera þurfi niður í starfsemi
félagsins umfram eðlilegt aðhald á
samdráttartímum. Því er gert ráð fyrir að
þjónusta félagsins við félagsmenn verði
sambærileg því sem verið hefur.
Að lokum er rétt að fara nokkrum
orðum um lífeyrissjóði þá sem
hjúkrunarfræðingar greiða í. Flestir
hjúkrunarfræðingar, sem fæddir eru fyrir
1950, greiða sín lífeyrisiðgjöld í Lífeyrissjóð
hjúkrunarfræðinga (LH) en þeir sem fæddir
eru eftir 1950 greiða flestir í A-deild
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR).
Enn er ekki að fullu Ijóst hversu mikil og
alvarleg áhrif bankahrunið hefur haft á
eignir þessara sjóða. Það verður vonandi
kynnt áður en langt um líður. Vegna
þeirrar ríkisábyrgðar, sem er á lífeyri
opinberra starfsmanna, er þó Ijóst að að
óbreyttum lögum munu lífeyrisgreiðslur til
þeirra hjúkrunarfræðinga, sem fá lífeyri úr
LH og LSR, ekki verða skertar.
Rétt er að ítreka að á næsta aðalfundi
FÍH, sem haldinn verður 12. maí 2009,
verður ýtarlega gerð grein fyrir fjárhag
FÍH eins og gert hefur verið á aðalfundi/
fulltrúaþingum. Samkvæmt nýjum lögum
FÍH eru aðalfundir eins og áður opnir
öllum félagsmönnum en ólíkt því sem
áður hefur verið hafa nú allir félagsmenn
atkvæðisrétt sem skrá sig á aðalfundinn
með að minnsta kosti viku fyrirvara.
Elsa B. Friðfinnsdóttir er formaður Féiags
íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sólveig
Stefánsdóttir er fjármálastjóri.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008
37