Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Blaðsíða 11

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Blaðsíða 11
Magnús Ólafsson, magnol@simnet.is „Lífið hefur oft verið fjölskyldunni erfitt en við höfum borið gæfu til að standa saman. Að sjálfsögðu hefur fjölskyldan ekki lifað hinu hefðbundna lífi sem svo er kallað.“ svonefndu, sem mörg hefur rekið upp á sker að undanförnu, hafi styrkt frjáls félagasamtök, sem vinna að málum fatlaðra, myndarlega auk þess sem velgengni þeirra og skattgreiðslur hafi skapað opinberum aðilum svigrúm til að leggja málum lið. Auður bendir á að samkvæmt fjárlögum þessa árs hafi þrír milljarðar króna verið eyrnamerktir þróunarmálum erlendis og til hafi staðið að auka framlögin á næsta ári. „í Ijósi aðstæðna verðurfjárlagafrumvarpið væntanlega endurskoðað. Ég hef reynt að sannfæra alþingismenn og ráðherra um að flokka eigi lækningu á mænuskaða undir þróunarmál og hef reynt að fá fjárveitingar til málaflokksins á þeim forsendum. Það þarf að hafa allar klær úti. Alþjóðlegar viðmiðanir um hvað flokka skuli sem þróunarmál leyfa ekki slíkt orðalag en í Ijósi aðstæðna dagsins í dag finnst mér kjörið að endurskoða hlutina. Hagræða ætti þróunarhjálpinni þannig að meiri fjármunir fari til málefna fatlaðra sem eru sá hópur fólks sem minnstra mannréttinda nýtur. Ef það kæmi í heimsfréttum að ísland hefði lagt stóra fjárupphæð til framþróunar á vísindasviði mænuskaðans myndi ísland sannarlega styrkja ímynd sína. Hjálp til læknavísindanna nær til alls mannkyns." Álagið er gríðarlegt Ekki er svo hægt að skilja við Auði öðruvísi en að forvitnast um hennar einkahagi. Hún hefur í áratugi starfað sem hjúkrunarfræðingur á skurðstofum Landspítalans við Hringbraut og hafði stefnt að því að fara á eftirlaun í maí á næsta ári. í Ijósi taps lífeyrissjóða í bankahruninu í haust segist hún velta fyrir sér hvort slíkt sé gerlegt. Spurning sé hvort greiðslur til lífeyrisþega á komandi tíð verði þannig, að fólk geti lifað sómasamlegu lífi af þeim. „Ég er heilsuhraust og mér hefur tekist að stunda fasta vinnu alla tíð, jafnvel líka eftir að Hrafnhildur slasaðist. Álagið hefur þó oft verið gífurlegt og stundum velti ég því fyrir mér hvernig fólk, sem ekki hefur heilbrigðismenntun né þekkir innviði heilbrigðiskerfisins, fer að þegar mikið bjátar á. Það hefur verið mér mikill styrkur að hafa þá menntun og reynslu sem ég bý yfir og ómetanlegt er að þekkja lækna, hjúkrunarfræðinga og aðra sem hafa verið boðnir og búnir að hjálpa mér í tíma og ótíma. Ég á líka góða og trausta fjölskyldu. Ég á móður á lífi sem reynst hefur mér afar vel. Það er ósjaldan sem hún hefur tekið til hendinni, fjölskyldunni til hjálpar. Hún mamma mín hlær með mér þegar ég hlæ og grætur með mér þegar ég græt." Auður er gift Bjarna Halldórssyn skipstjóra, ættuðum frá Bolungarvík. Hún á þrjár dætur: Ólöfu, sem er menntaður hönnuður og á tvö börn, Hrafnhildi og Guðrúnu Dóru sem lýkur prófi í læknisfræði á næsta ári. Baráttan skili árangri „Lífið hefur oft verið fjölskyldunni erfitt en við höfum borið gæfu til að standa saman,“ segir Auður. „Að sjálfsögðu hefur fjölskyldan ekki lifað hinu hefðbundna lífi sem svo er kallað. Börnin mín og eiginmaðurinn hafa farið á mis við ýmislegt vegna afleiðinga slyss Hrafnhildar og köllunar minnar. Þegar allt kemur til alls erum við ekki óhamingjusöm fjölskylda og öll höfum við lært hvaða gildi það eru í lífinu sem skipta mestu máli. Þetta er allt bitur lífsreynsla sem er að sjálfsögðu sárust fyrir Hrafnhildi. Hvað mig persónulega varðar þá tel ég mig hafa notað þjáningu mína í góðum tilgangi og vona að barátta mín skili mannkyni árangri. Verði svo get ég kvatt lífið sátt við Guð og menn." HIN SANNA JÓLARÓS Lítið Ijóð um kærleikann, eina af æðstu dygðum mannsins. Hin sanna jólarós er í Ijóðinu tákn fyrir kærleikann. Hún rís hæst meðal tignustu rósa, reigir blómstur mót lágsætri sól. Hún er lofberi Ijóssins Ijósa og leiðir hin helgu jól. Hún er hugsana gjafmildi og gleði, glæðir dýrustu mannanna Ijóð. Leggur líf sitt af alúð að veði og lætur lausnir á alheimsins slóð. Hún er í háborgum hugheima þinna, hvar hún eflir hinn innri mann. Með nánd mun hún ávallt á minna hvað mannviskan metur og ann. Frá nálægð er náttmyrkrið svarta, nú lýsa hin fegurstu Ijós. Hún á hásæti í hugföngnu hjarta, hin sanna jólarós. Ljóð þetta var samið í nóvember 2007. Björgvin Þ. Valdimarsson samdi sér- staklega við það lag og var það frum- flutt í Hallgrímskirkju 14. desember 2007 á jólatónleikum Vox Feminae og Gospelsystra Reykjavíkur undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.