Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Blaðsíða 16

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Blaðsíða 16
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is VON STYRKTARFÉLAG Sesselja H. Fríðþjófsdóttir er ásamt Bríeti Bírgisdóttur stofnandi styrktarfélagsins Vonar. Von, styrktarfélag skjólstæðinga gjörgæsludeildar Landspítala í Fossvogi, var stofnað fyrir rúmu ári. Á gjörgæsludeildinni eru framtakssamar konur sem bíða ekki eftir að hlutirnir gerist heldur fara bara að framkvæma sjálfar. í ágúst 2007 var ákveðið að skrá sig í Reykjavíkurmaraþon til þess að hrista starfsfólkið saman og tengjast betur gjörgæsludeildinni á Hringbraut. Það endaði með stofnun styrktarfélags. Hjúkrunarfræðingar bera hag skjól- stæðinga sinna fyrir brjósti en fáir hafa farið út í að styrkja þá með beinum hætti. Þetta gerðist hins vegar á gjörgæsludeildinni í Fossvogi þó að hugmyndin væri upphaflega að hlaupa maraþon. Til þess að skrá sig sem hóp í Reykjavíkurmaraþon 2007 þurfti að styrkja eitthvert málefni. En hvað átti að styrkja? „Við Bríet Birgisdóttir sátum á Súfistanum og ræddum þetta. Ákveðið var að stofna styrktarfélag til handa skjólstæðingum okkar. Við tókum upp símann og hringdum í skattstofu til þess að athuga hvernig ætti að fara að því. Þar fengum við góðar ráðleggingar og hjálp með að finna umsóknareyðublöð á netinu sem við byrjuðum strax að fylla út,“ segir Sesselja H. Friðþjófsdóttir sem er stjórnarformaður. Þetta var 2. ágúst 2007 og félagið var komið með samþykki deildarstjóra, stjórn og kennitölu 10. ágúst. „Við fórum stór hópur í maraþonið af gjörgæslunni í Fossvogi og skoruðum þá á gjörgæsluna á Hringbraut. Það heppnaðist frábærlega, tii samans hlupum við um 600 km,“ bætir hún við. Rrentaðir voru sérstakir bolir sem allir hlauparar voru í ásamt að bolir voru seldir. Vistor gaf styrktarfélaginu veglega gjöf ásamt því að Merkt prentaði bolina mjög ódýrt. Næsta hugmynd, sem hrint var í framkvæmd, var að selja jólakort. Fyrrverandi skjólstæðingur deildarinnar, ungur strákur að nafni Nóni Sær Ásgeirsson, teiknaði myndina á jólakort- inu sem seldist mjög vel. Samtals seldust 7.500 kort. Nóni Sær er orðinn mikill vinur deildarinnar og hefur tekið virkan þátt í starfi Vonar ásamt fjölskyldu sinni sem hefur veitt styrktarfélaginu ómældan stuðning. Samtals safnaði Von 'styrkjum upp á rúmlega milljón krónur fram að áramótum 2007-2008. í ágúst í ár var aftur farið af stað að safna áheitum í Reykjavíkurmaraþon. Samtals hlupu 37 starfsmenn og aðstandendur þeirra 387 km. Einn deildarlæknir hljóp heilt maraþon og sex hjúkrunarfræðingar 21 km, aðrir hlupu ýmist 10 eða 3 km. Þegar starfsmenn gátu ekki hlaupið sjálfir hlupu ættingar þeirra í staðinn. Davíð Hilmar, sonur Sesselju, hljóp 10 km og fékk ættingja að heita á sig. Árangurinn verður að teljast mjög góður, starfsfólk deildarinnar hljóp eins langa vegalengd og sambærileg styrktarfélög, til dæmis Regnbogabörn. Jólakort Vonar 2008 heitir „í hlýju og makindum" og er eftir Ólöfu Pétursdóttur (1948-2008). Myndin er máluð með olíu á striga í janúar 2008. 14 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.